Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Síða 17
Þrjú ný öndvegisrit
og ein sígild hljóðbók
Manngerðir – hljóðbók
Þeófrastos
Lesari: Hjalti Rögnvaldsson
Manngerðir lýsa á gamansaman hátt
þrjátíu ámælisverðum sérkennum í háttum
manna og rakin eru dæmi af hegðun
þeirra í hversdagslegum aðstæðum; t.d. er
hér lýst nískupúkanum, ólíkindatólinu,
smjaðraranum, smásálinni, dindilmenninu,
hrokagikknum og fruntanum. Ýmislegt í
fari persónanna reynist kunnuglegt!
Tilviljun og nauðsyn
Ritgerð um náttúrulega
heimspeki nútímalíffræði
Jacques Monod
Lífið er bæði fjölbreytt og
einsleitt. Innan tegunda eru
einstaklingar furðu líkir,
en tegundirnar sjálfar nær
óendanlega margvíslegar.
Í bók þessari er lýst
hugmyndum nútímavísinda
um orsakakeðjur, afritun
hins lífræna efnis og
stökkbreytingar. Monod
glímir við hinstu rök,
verufræðileg, siðferðileg og
pólitísk, og eykur þannig
skilning á undirstöðum
líffræðinnar og vekur
umhugsun um tengsl
vísinda við grunnþætti
veruleikans. Guðmundur
Eggertsson prófessor þýddi
og ritar ítarlegan inngang.
Fjórða Makkabeabók
Í riti þessu, sem er frá fyrstu
öld e.Kr., sameinast grísk
heimspeki og gyðinglegur
átrúnaður í trúfræðilegri og
heimspekilegri viðureign við
hina torleystu gátu um tengsl
skynsemi og tilfinninga. Þessi
2000 ára gamla rökræða á því
fullt erindi við okkur í dag.
Rúnar M. Þorsteinsson þýddi
og ritar inngang.
Til hins kristna aðals
Marteinn Lúther
Eitt pólitískasta rit Lúthers.
Árið er 1520 og reiði hans yfir
harðstjórn og græðgi páfa og
kardínála brýst út af mikilli
mælsku í þessu klassíska
riti. Engu er eirt, orðfærið
laust við hik og kurteisi enda
tilefnin ærin. Dr. Vilborg
Auður Ísleifsdóttir þýddi
og ritar inngang.