Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Qupperneq 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2013 Heilsa og hreyfing Fallegar umbúðir Ekki láta blekkjast af fallegum umbúðum sem líta heilsusamlega út. Vendu þig á að afla þér upplýsinga um vöruna sem þú kaupir, rétt eins og þú gerir þegar þú kaupir vörur sem þurfa að endast þér eða gera gagn. Eitt besta heilsuráð sem hægt er að gefa fólki er að hvetja það til að lesa inni- haldslýsingar á umbúðunum og læra það ef það kann það ekki. Ef innihaldslýsing vör- unnar er ekki til staðar, ekki kaupa vöruna. Íslensk lög segja að matvara skuli hafa inni- haldslýsingu og upplýsingar um næringargildi (hlutfall próteina, kolvetna og fitu). Athugaðu líka að innihaldslýsingar evr- ópskra matvara byggjast á 100 g en bandarískar mat- vörur miðast við einn skammt sem er mismunandi stór eftir matvöru. Helmingi minni fita en áður Athugaðu hvað liggur að baki auglýsingaherferðum eða upplýsingum á umbúðum sem segja minna af, meira af eða án eins og til dæmis: 55% minni fita en áður eða enginn sykur. Slíkar yfirlýsingar þurfa ekki endilega að þýða að varan sé holl og næringarrík og ekki heldur að varan sé hollari en hún var áður. Það er ekki alltaf betra að minnka fituna því sumar fitur eru okkur lífsnauðsynlegar og sykurlaus vara getur verið full af sætuefnum. Notaðu hyggjuvitið og skoðaðu hvað varan inniheldur frekar en að velta fyrir þér hvað hún inniheldur ekki. 10 kíló farin á 4 vikum! Ef það er satt, að einhver hafi lést um 10 kíló á 4 vikum, geta verið ýmsar misheilsusamlegar ástæður að baki og margar jafnvel ekki svo eftirsóknarverðar. Ein ástæðan gæti verið að viðkomandi hafi verið í mikilli yfirvigt og/eða á mjög slæmu mataræði áður en hafist var handa og því ólíklegt að hann hafi misst mikla fitu, heldur fyrst og fremst misst mikið vatn úr líkamanum. Þá sýna rann- sóknir að meiri líkur eru á að þeir sem léttist hratt hafi ekki náð að breyta lífsstíl sínum að sama skapi til að við- halda árangrinum og því ólíklegra að þeir haldi kílóunum af. Þá nær húðin síður að dragast saman ef viðkomandi léttist hratt. Fyrir þá sem þurfa að grenna sig og halda aukakílóun- um af, er raunhæft og skynsamlegt að léttast um 0,5-1,5 kg á viku, en því þyngra sem fólk er, því meira má það léttast á viku. Hér á því vel við að segja að ef eitthvað hljómar of gott til að vera satt, þá er það oftast raunin HUGSUM MÁLIÐ ÁÐUR EN VIÐ TRÚUM ÞVÍ SEM VIÐ LESUM OG HEYRUM TIL DÆMIS UM HEILSUVÖRUR EÐA HEILSUSÖGUR ANN- ARRA ER GÓÐ REGLA AÐ VELTA FYRIR SÉR HVAÐ LIGGUR AÐ BAKI UPPLÝSINGUNUM. EKKI ER ALLT SEM SÝNIST. Algengar ranghugmyndir um líkamann og hreyfingu * Það er offita er í ættinni,þess vegna er ég feit(ur). Réttara er: Athafnir þínar og ákvarðanir á hverjum degi hafa meiri áhrif á heilsu þína en erfða- fræðilegir þættir. * Ég svelti mig baraRéttara er: Best er að borða oft á dag og frekar lítið í einu. Of lítil næring á hverjum degi getur til dæmis truflað efnaskipti líkamans, dregið úr orku og rýrt vöðva, sem allt getur dregið úr líkum á að maður grennist. * Ég þarf ekki að hreyfa migRéttara er: Það þurfa allir að hreyfa sig reglulega, feitir, mjóir, litlir og stórir. Lágmarkshreyfing er þrisvar sinnum í viku, 30 mín. í senn. Það er enginn óhultur gegn sjúkdómum, en hreyfing dregur úr líkum á hjarta- og æða- sjúkdómum, krabbameini og syk- ursýki. Hún styrkir einnig beinin, bætir líkamsstöðu og eykur lífs- gleði, svo fátt eitt sé nefnt. BORGHILDUR SVERRISDÓTTIR Heilbrigt líf Hvernig er best að grenna sig? Nú þegar júnímánuður er rétthandan við hornið og ferðalög-in að hefjast er gott að munalíka eftir hollum og næringarríkum mat til að taka með til að vega upp á móti aukinni ís- neyslu, bjór- og létt- vínsdrykkju og færri klukkustundum í ræktinni, sem að margra mati er hluti af íslensku sumri. Margir nýta þó útiveruna til hreyfingar og borða léttari og hreinni fæðu á sumrin, sem er hið besta mál. Þegar maður er að ferðast er mikilvægt að nestið sé handhægt og þurfi til dæmis ekki að vera í kæli. Safaríkir ávextir, mjúkir ostar, kjöt og jóg- úrt eru því síður hentugir val- möguleikar. Gott nesti í bílinn eða í útivistinni Besta snakkið á ferða- lögum er ávextir, græn- meti, ósaltaðar hnetur og þurrkaðir ávextir, harðfiskur og nóg af vatni (sítrónuvatni, léttkolsýrðu sódavatni eða bara hreinu vatni). Allar tegundir grænmetis henta ekki á ferðalögum og það sama má segja um ávexti. Safinn úr appels- ínum gæti til dæmis kallað á handþvott og hentar kannski ekki öllum aðstæðum. Fátt er þó hentugra en að skera nið- ur gulrætur, agúrkur, papr- ikur og epli í hæfilega stóra bita og setja í smellupoka áður en maður leggur í hann. Gráfíkjur, döðlur og rúsínur ásamt val- hnetum, jarðhnetum og fræjum er líka frábær valmöguleiki til að setja í box með þéttu loki, til að metta svanga munna. Harðfiskur er líka hollt og gott nesti sem betra er að borða í guðsgrænni náttúrunni heldur en í bíl. Hafðu nóg af brúsum í bílnum, en það getur verið frábær upplifun að stoppa við næstu bergvatnsá, þar sem allir fara út og fylla brús- ana af ísköldu vatni. Betra gerist það ekki! Taktu með heitt vatn á hitabrúsa og bolla en það stendur alltaf fyrir sínu að stoppa í góðri laut og fá sér heitt kakó. Ekki gleyma að taka eld- húsrúllur og blautþurrkur með í bílinn. Ruslapokar eru líka nauðsynlegir. Grillaðu ávexti og grænmeti Mundu alltaf eftir grænmeti og ávöxtum þegar þú grillar. Búðu til girni- legt ferskt grænmetissalat og gerðu það enn girnilegra með döðlum, rúsínum, ósölt- uðum hnetum, kókosflögum, ferskum krydd- jurtum, sesamfræjum eða graskersfræjum. Grillaðir sveppir með fetaosti eru ómót- stæðilegir. Paprika, rauðlaukur, kúrbítur er líka frábært á grillið og ekki má gleyma grilluðum ananas og banana í eftirrétt með jarðarberjum og bláberjum ofan á. Fiskur og magurt kjöt Grillaðu lax, steinbít, löngu, keilu, túnfisk, kjúklingalundir að ógleymdu lambakjöti. Kauptu ókryddað og veldu góð krydd og gerðu þínar eigin marineringar. FERÐALÖGIN AÐ HEFJAST Fæðan í fríinu GOTT ER AÐ MINNA SIG Á HEILSUSAMLEGA VALMÖGULEIKA ÞÓ MAÐUR SÉ Í FRÍI OG HEFUR ÞAÐ JAFNVEL AÐEINS OF GOTT. Borghildur Sverrisdóttir borghildur74@gmail.com Gönguferð í blíðu á björtum sumardegi er dásemd og ekki spillir fyrir ef gott nesti er meðferðis. Morgunblaðið/Ómar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.