Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Síða 28
*Matur og drykkir Kokkurinn og bóndinn Árni Ólafur Jónsson eldar girnilegt í Árdal í Borgarfirði »30
Jú, ég luma á þó nokkrum grillráðum enda veit égfátt skemmtilegra en að grilla. Til dæmis er lyk-ilatrið að grillið sé orðið nógu heitt áður en steikiner lögð á það. Annars soðnar maturinn og það er
yfirleitt þannig að fólk heldur að grillið sé orðið nógu
heitt þegar það er það alls ekki,“ segir Jói Fel eins
og hann er jafnan kallaður.
Jói leggur um leið áherslu á að fólk fari ekki frá
grillinu nokkurn tíman meðan maturinn er eldaður
enda getur fljótt kviknað í feiti. „Fólk þarf að læra
inn á sín grill. Það eru engin tvö grill eins og þau eru
misfljót að hitna.“
Jói hefur í fjögur ár sankað að sér grilluppskriftum
í um 400 blaðsíðna grillbók sem kallast einfaldlega
Grillað með Jóa Fel. Í bókinni eru uppskriftir að öll-
um tegundum af mat, forréttir, eftirréttir, pitsur og
brauð en grillarinn lét eftirréttina vera enda gefið út
ófáar bækurnar um slíkar kræsingar. Hann segir að
þar sem uppskriftirnar séu afar margar geti allir
pottþétt fundið eitthvað sem þeim líkar.
„Það passar vel að hafa gott salat með þessari
svínasteik sem ég grillaði hér sem og grillaða sveppi,
aspas og kartöflustrá. Mér finnst fátt skemmtilegra
en að grilla kjöt en það er mikil lyst sem lærist
smám saman að grilla nautakjöt til dæmis. Það er af-
ar auðvelt að skemma það.“
Morgunblaðið/Kristinn
JÓI FEL GRILLAR SEM ALDREI FYRR
Hitinn skiptir öllu
JÓI FEL HEFUR GRILLAÐ FLEIRI RÉTTI EN HANN HEFUR TÖLU Á UM ÆVINA
OG LUMAR Á ÓFÁUM GÓÐUM GRILLRÁÐUM.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Jói Fel við grillið sitt sem hann segist aldrei yfirgefa meðan á grillun stendur og
passa að hafa nógu heitt áður en hafist er handa.
4 svínakótelettur
Kryddlögur:
1 dl hunang
3 msk. rifinn sítrónubörkur
1 sítróna, safinn
15 blöð af ferskri myntu, söxuð
½ dl ólífuolía
2 tsk. salt
1 tsk. cayenne–pipar
Blandið löginn og setjið í plastpoka.
Látið kjötið í pokann og veltið því vel
upp úr leginum. Látið marínerast í um
það bil 3 klukkustundir en best er ef
það er hægt að láta það liggja í leginum
yfir nótt. Takið kjötið úr pokanum og
látið vökvann leka vel af því áður en
það fer á grillið. Grillið við meðalhita í
4-5 mínútur á hvorri hlið, setjið þá
kjötið á efri grind og hafið það þar í 7
mínútur.
Salat:
1 poki ferskt blandað salat
½ krukka fetagráðaostur
6 konfekttómatar
½ rauðlaukur
10 myntulauf
½ dl ólífuolía
safi úr einni sítrónu
Setjið salatið í skál, hrærið upp í feta-
ostinum og setjið yfir salatið. Skerið
tómatana í fjóra báta og laukinn í
strimla, saxið myntulaufin létt niður og
blandið saman við. Hrærið saman olíu
og sítrónusafa og hellið yfir salatið.
Berið fram með steikinni.
Hunangssvína-
steik með salati