Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Qupperneq 33
26.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 33
Framleiðendur bresku Rowlett brauðristanna
hafa aldrei verið sammála því að brauðristar eigi
að vera ódýrar, ónákvæmar og ónýtar alltof snemma.
Þær hafa verið handsmíðaðar í tæp 70 ár og hvert
einasta tæki er prófað áður en það fer úr húsi. Það
hlýtur að vera öfundsvert starf að sjá um gæða-
eftirlitið með öllu þessu ristaða brauði.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Brauðristar-
gæðaeftirlit
Morgunblaðið/Kristinn
Sigurgeir Jónasson, Helena
Hauksdóttir og Jónas
Bjartmar Jónasson átta ára
fá sér sitt lítið af hverju.
600 g kjúklingalundir eða bringur
1 dl hveiti
salt, pipar og paprikuduft eftir smekk
2 egg
170 g nachosflögur, muldar smátt.
Hitið ofninn í 230 gráður.
Skerið kjúklingakjötið í hæfilega stóra
bita. Kryddið hveitið með salti, pipar og
paprikudufti og setjið í skál. Hrærið út egg-
in í annarri skál og setjið muldu nachosflög-
urnar í þá þriðju. Byrjið á því að velta kjúk-
lingabitunum upp úr hveitinu þannig að
þeir verði jafnt þaktir. Dýfið þeim síðan of-
an í eggjahræruna og látið renna vel af þeim
áður en þeim er velt upp úr nachosflög-
unum. Raðið á bökunarplötu sem þakin
hefur verið bökunarpappír. Bakið í um 15
mínútur, fer eftir stærð bitanna, aðeins
skemur ef þeir eru mjög litlir. Snúið bit-
unum við þegar eldunartíminn er hálfnaður
þannig að þeir verði jafngylltir báðum meg-
in. Stingið pinnum í bitana og berið fram
með salsasósu og sýrðum rjóma.
Nachos
kjúklinganaggar
300 g reyktur lax eða sil-
ungur
1 msk. laukur, saxaður
(gjarnan skallot- eða
graslaukur)
2 msk. sítrónu- eða lím-
ónusafi
2-4 msk. grísk jógúrt
eða sýrður rjómi
salt og sítrónupipar
ferskt dill
Setjið lax í bitum í mat-
vinnsluvél ásamt lauk og
maukið vel. Bætið sí-
trónusafa út í og þá grískri
jógúrt. Kryddið og smakkið
til með salti og sítrónupipar.
Athugið að magnið af grísku
jógúrtinni eða sýrða rjóm-
anum fer eftir því hve þykkt
þið viljið hafa það. Blandið
fersku dilli saman við. Berið
fram með niðurskornu
fersku grænmeti, kexi eða
ristuðu snittubrauði.
Laxaídýfa
Sykurpúðar í því magni
sem óskað er
Suðusúkkulaði
Skraut, svo sem kókosmjöl
Stingið grillpinna í sykurpúða
og dýfið þeim í brætt súkkulaði
eða Rice Crispies. Látið leka
vel af og skreytið að vild með
til dæmis kökuskrauti, kók-
osmjöli eða Rice Crispies.
Súkkulaðihjúpaðir
sykurpúðar
Rósu finnst einkar smart að bera kök-
ur fram í litlum krukkum eða glærum
glösum og segir það henta vel í stand-
andi partíum þar sem ekki er gert ráð
fyrir diskum handa gestum en slíkar
kökur séu líka flottar sem eftirréttur.
„Fyrst er að byrja að safna krukkum
og fá jafnvel aðstoð vina og vanda-
manna ef stutt er í næsta partí svo
söfnunin gangi hraðar.“ Hér er ein
hugmynd að einfaldri krukkuköku.
SÚKKULAÐIKAKA
MEÐ BANÖNUM
súkkulaðikökubotn eða bolla-
kökur
léttþeyttur rjómi
bananar
súkkulaðisósa (50 g suðusúkku-
laði og 1 msk. rjómi, brætt sam-
an)
pekanhnetur
Skerið hæfilegan bita af súkku-
laðikökubotninum eða bollakökunni í
hverja krukku.
Setjið síðan smá rjóma þar ofan á .
Sneiðið banana og raðið ofan á. Stráið
grófsöxuðum pekanhnetum þar yfir
og aftur rjóma. Hellið súkkulaðisósu
yfir að smekk og skreytið með pek-
anhnetum. Súkkulaðisósan sem ég
geri er brætt súkkulaði hrært saman
við rjóma, 1 msk. rjómi á móti hverj-
um 50 g af súkkulaði. En auðvitað er
hægt að nota hvaða sósu sem er.
Kaka í krukku