Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Blaðsíða 39
26.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
K
vikmyndahátíðin í Cannes
stendur nú yfir í 66. skipti
en fyrsta hátíðin var hald-
in 1946. Allar helstu
þokkagyðjur úr heimi kvik-
myndanna hafa átt ógleymanleg
augnablik í Cannes. Í alíslenskri
vorrigningu og jafnvel hagléli er
hressandi að skoða kjólana og
skartið og fá fréttir af því hver hafi
verið með hverjum og hver vildi
ekki hvern á þessum eftirsótta stað.
Mbl.is sagði frá því í vikunni að unga og eft-
irsótta ofurfyrirsætan, Cara Delvinge, hefði
hafnað leikaranum Leonardo DiCaprio, sem
er 38 ára. Delvinge mætti í eftirpartí í til-
efni af sýningu The Great Gatsby í Cannes
klædd svörtum blúndukjól frá Burberry.
Þegar hann reyndi að stíga í vænginn við
hana sneri hún upp á sig og vildi lítið með
leikarann hafa.
Þeir sem hafa séð kvikmynd Baz Lu-
hrmanns um hinn mikla Gatsby eru
eflaust eitt spurningarmerki yfir við-
brögðum Delv-
inge. Maður
hefði haldið að
töfrar mynd-
arinnar hefðu
kannski haldist
út eftir-
partíið, en
svo varð
víst ekki.
Skýr-
ingin sem Delvinge gaf var
að henni fyndist DiCaprio
of gamall fyrir sig …
Konur sem komnar eru yfir þrítugt
í kringum mig stóðu á öndinni yfir þessu. Hver
hafnar DiCaprio? Þegar Smartland bauð les-
endum sínum á myndina í vikunni þurfti að
ræða DiCaprio sérstaklega eftir sýninguna.
Ekki var rætt hvað hann hefði leikið vel í mynd-
inni heldur hvað hann væri vel klæddur og liti vel
út. Einhverjar höfðu líka orð á því að það væri eins
og hann væri í formalíni, hann eltist ekki neitt. Ég
veit ekki alveg hvort það er jákvætt eða neikvætt
en það skiptir svo sem engu máli. DiCaprio hafði
þó ekki bara áhrif á kvenpeninginn því fleiri en
einn karlmaður sem ég talaði við í vikunni höfðu
orð á því að þá langaði að breyta um fatastíl eft-
ir að hafa séð myndina. Ég hef bara eitt að
segja um það. Látið það eftir ykkur!
martamaria@mbl.is
Úr myndinni The Great Gatsby.
Hún hafnaði honum …
Hún hafnaði honum ...
Brigitte Bardot í
Cannes1953.
Joan Collins
í Cannes
1979.
Sophia Loren
í Cannes
1959.
Cara
Delvinge í
kjól frá
Burberry.
Sean Connery í
Cannes á sjö-
unda áratugnum.
Jerry Hall í
Cannes
1983.
Gylfaflöt 7, Grafarvogi | Sími 587 8700 | www.krumma.is
Opið: mán.-fös 8:30-18:00, lau 11:00-16:00
Öryggi – gæði - leikgildi
MIKIÐ
ÚRVAL
af garni, blöðum,
prjónum, tölum,
og öðrum
prjónavörum
Þönglabakka 4, sími: 571-2288, www.gauja.is
Lopi frá
Ístex -
mögulega
besta
verð á
landinu!