Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Side 42
*Fjármál heimilannaBílakaup geta tekið á taugarnar og kaupandi hefur á mismiklum upplýsingum að byggja
Bergsteinn Sigurðsson blaðamað-
ur rekur heimili í Álfheimunum í
Reykjavík ásamt unnustu sinni,
þriggja ára dóttur og tólf ára syni
sem býr hjá þeim part úr mánuði.
Hvað áttu alltaf til
í ísskápnum?
Ég reyni að eiga alltaf mjólk, ost,
egg og safa. Dóttur minni finnst
tómatsósa ómissandi og af ein-
hverjum ástæðum er alltaf líka til
kók en þann djöfladjús drekk ég
ekki, heldur konan mín.
Hvað fer fjölskyldan með í
mat og hreinlætisvörur á
viku?
Okkur finnst það vel af sér vikið
ef við náum að halda okkur á
bilinu 20 til 25 þúsund. En það
tekst ekki alltaf (kannski sjaldnast).
Hvar kaupirðu helst
inn til heimilisins?
Ég fer í Bónus fyrir helstu nauð-
synjavörur fyrir utan ávexti og
grænmeti, það kaupi ég í Víði.
Kjötborðið í Krónunni er ágætt
(sérstaklega þegar maður rekst á
folaldakjöt) en fiskmeti vil ég
helst fá ferskt og bý svo vel að
fiskbúðin Hafberg er í hverfinu.
Hvað freistar helst í mat-
vörubúðinni?
Í sjálfu sér fátt. Konan mín er
listakokkurinn á heimilinu og sér
alla möguleikana í hráefnunum í
búðinni og á til að „impróvísera“
við innkaupin meðan ég fylgi inn-
kaupalistanum. Það er helst í
ostabúðum sem ég fell í freistni
og reyni þess vegna að halda mig
frá þeim. Beikonið í Pylsumeist-
aranum í Laugalæk er líka af-
bragð.
Hvernig sparar þú í heim-
ilishaldinu?
Helst með þeirri viðleitni að nota
bílinn sem minnst og spara bensín
(ég er innan við tíu mínútur að
hjóla í vinnuna). Ég hef hins vegar
talsvert svigrúm til að taka skipu-
lagið við innkaupin fastari tökum.
Ég fór að nota Meniga nýlega og
vona að það eigi eftir að hjálpa
mér að halda mér réttum megin
við núllið.
Hvað vantar helst á heimilið?
Okkur „vantar“ í sjálfu sér ekki
neitt en stærri uppþvottavél
kæmi sér sannarlega vel. Við eig-
um þurrkara en höfum því miður
ekki pláss fyrir hann. Það stendur
þó til að koma upp þvottaað-
stöðu.
Eyðir þú í sparnað?
Í lögbundinn - og viðbótarlífeyr-
issparnað.
Skothelt sparnaðarráð
Fyrir ungmenni sem eru að stíga
sín fyrstu skref á einstigi fjárhags-
legs sjálfstæðis: Temdu þér nægju-
semi, safnaðu fyrir hlutunum
frekar en að taka lán fyrir þeim
og taktu aldrei yfirdráttarlán
(hvað þá smálán).
NEYTANDI VIKUNNAR BERGSTEINN SIGURÐSSON
Fellur helst í freistni í ostabúðum
Bergsteinn Sigurðsson með dóttur sína Iðunni á göngu um óbyggðir.
* Eftir pitsuveislu sitjum við uppimeð stafla af flötum pappakössum í
eldhúsinu. Þau sem búa svo vel að
hafa sérstaka tunnu undir pappa
geta komið kössunum rakleitt þang-
að en ef engin er endurvinnslutunn-
an eru góð ráð dýr. Ábyrga leiðin er
auðvitað að hreinsa allar matarleifar
úr kössunum, geyma þá og fara með
á næstu endurvinnslustöð um leið
og færi gefst.
Fyrir óþolinmóða er það ekki sér-
lega heillandi leið til að losna við
hauginn af borðinu. Þá er gott að
vita að allt sem þarf er vatn úr kran-
anum og plastpoki.
Láttu volgt vatn renna og settu
tóman pitsukassa undir bununa.
Bylgjupappinn gefur fljótlega eftir og
þegar þú hefur rennbleytt allan kass-
ann er hægt að rúlla honum upp og
brjóta saman. Kassinn verður svo
linur að það er hreinlega hægt að
vinda úr honum eins og tusku og
skella í plastpoka. Á augabragði má
koma stórum stafla af pitsukössum
fyrir í einum innkaupapoka sem svo
fer beint í tunnuna.
púkinn
Aura-
Rennblautir
pitsukassar
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
(FÍB) mælir eindregið með því að
kaupendur bifreiða fari með bílinn
í ástandsskoðun áður en skrifað er
undir kaupsamning „til að minnka
líkurnar á eftirmálum“. Forsvars-
menn Bílagreinasambandsins eru
sama sinnis.
Sumir bílasalar hvetja fólk ein-
dregið til þess að láta skoða bíla,
til öryggis, en það er reyndar ekki
algilt. Sunnudagsblað Morgun-
blaðsins veit um nýlegt dæmi þar
sem kaupandi ákvað að fara með
notaðan bíl, sem hann hafði áhuga
á að kaupa, í ástandsskoðun á
verkstæði, þrátt fyrir fullyrðingar
bílasalans um að ekkert væri at-
hugavert við farartækið.
Á verkstæðinu fékk hinn áhuga-
sami hins vegar þær upplýsingar
að fyrsta verk eftir kaupin væri að
fara með bílinn á verkstæði þar
sem þyrfti að gera við ákveðna
hluti. Það myndi kosta um það bil
120.000 krónur. Hann hætti snar-
lega við kaupin.
„Við höfum þá skoðun að rétt sé
að hvetja fólk til að láta skoða bíl-
inn sem það er að spá í að kaupa,
hvort sem það er gert hjá ein-
hverju fyrirtæki sem býður upp á
slíka þjónustu eða fólk leitar ein-
faldlega til einhvers sem hefur
meira vit á bílum en kaupandinn
sjálfur,“ segir Özur Lárusson,
framkvæmdastjóri Bílgreina-
sambandsins, við Sunnudagsblað
Morgunblaðsins.
Özur segir fólk fá góða vísbend-
ingu um ástand bílsins við slíka
skoðun. „Þetta getur margborgað
sig til þess að sleppa við kostnað
seinna meir. Það koma alltaf upp
einhver tilfelli; bílar bila og hvort
sem maður hefur keypt nýjan eða
notaðan bíl kemur það líklega alltaf
jafn mikið á óvart. Varahlutir eru
dýrir og því borgar sig fyrir fólk
að kynna sér alla þætti bílsins áður
en það fjárfestir.“
Bílgreinasambandið er samtök
atvinnurekenda í sölu ökutækja,
vöru og þjónustu sem þeim tengist.
Sambandinu tilheyra 155 fyrirtæki;
almenn bílaverkstæði, bílasölur,
bílaumboð, hjólbarðaverkstæði,
málningar- og réttingarverkstæði,
ryðvarnarstöðvar, smurstöðvar,
varahlutasalar og aðrir þjónustuað-
ilar í bílgreininni. Sambandið ber
því í raun hag allra fyrir brjósti.
BOÐIÐ UPP Á SÖLUSKOÐUN Á NOTUÐUM BÍLUM
Skoðun margborgar sig
KAUPANDI AÐ NOTUÐUM BÍL HEFUR OFT TAKMARKAÐAR UPPLÝSINGAR UM ÁSTAND ÞESS SEM HANN LANGAR Í. ÞVÍ
ER KAUPENDUM GJARNAN RÁÐLAGT AÐ SETJA SLÍKAN BÍL Í SVOKALLAÐA SÖLUSKOÐUN Á VOTTUÐU VERKSTÆÐI. SLÍK
SKOÐUN KOSTAR HINS VEGAR SITT OG MARGIR HAFA EKKI EFNI Á ÞVÍ AÐ FARA MARGAR SLÍKAR FERÐIR.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Nauðsynleg sjón! Ráðlegt er að láta skoða notaðan bíl áður en lagt er í fjárfestinguna. Þessi reyndist í mjög góðu lagi.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Söluskoðun bifreiða
Í söluskoðun er m.a. farið yfir öll skoðun-
aratriði sem venjulega eru framkvæmd
í aðalskoðun og gerð athugasemd við
slit hvort sem það er innan eða utan
viðmiðunarmörk Skoðunarhandbókar.
Til viðbótar er ástand lakks, ryðvarnar,
innréttingar, sæta og fleiri atriða könnuð.
Bílnum er einnig reynsluekið.
Reynsluakstur, bíll stefnumældur, demp-
araprófaður og gerð bremsuprófun.Allir
slitfletir skoðaðir i undirvagni, undirvagn
skoðaður almennt , ryð og tjón, dekk og
felgur skoðað, lakk skemmdir, dældir á
yfirbyggingu, innrétting skoðuð - þ.e.a.s.
öryggisbelti, mælaborð og sæti, tjakkur
og annar búnaður sem á að fylgja bílnum
athugað, þjónustubók og athugað hvort
reglubundnu viðhaldi hafi verið fylgt.
15% afsláttur til félaga í FÍB
5% afsláttur til FÍB félaga
Allt að 10-15
10 ára ára
Bíll allt að 2,5 t 10.600 12.200
Bíll 2,5 t - 3,5t 11.400 13.500
Bíll 3,5 - 5 t 12.300 14.500
Fólksbílar og jepplingar 9.700
Jeppar 10.500
Breyttir jeppar
38” og yfir, 11.500