Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Page 45

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Page 45
hætti það högg sem nýja ríkisstjórnin telur „heim- ilin“ hafa orðið fyrir í kjölfar falls bankanna. Þá er átt við „forsendubrest“ sem orðið hafi hjá þeim sem skulduðu verðtryggt lán, sem ekki hafi verið „leið- rétt“ eins og dómstólarnir hafa gert varðandi tiltekin gengisbundin lán. Að því hefur verið fundið að ekki sé í sáttmálanum niðurnjörvuð lýsing á því hvernig þessu verði náð í einstökum atriðum. En ekki var við neinu slíku að búast. Málið er ekki einfalt og það lýt- ur þeim lögmálum að ekki verður það rætt opinber- lega í þaula fyrr en niðurstaða liggur fyrir og full samstaða er orðin um hana. Það sést einnig á því sem sagt er um skattamál í sáttmálanum að vilji stendur til þess að snúa af ógæfubraut fyrri ríkisstjórnar í þeim efnum. En ekki verður heldur sagt að þar festi menn auðveldlega hönd á einstökum atriðum. En að því verður heldur ekki fundið vilji menn sýna eðlilega sanngirni. Það hefði raunar mátt jafna því til ábyrgðarleysis að tíma- og tölusetja skattalækkanir á þessu stigi, um- fram það sem gert er. En hitt er víst að þessi tvö at- riði eru mjög tengd stjórnarflokkunum er þeir leggja sinni skútu úr vör. „Skuldamálin“ hanga um háls framsóknar og skattamálin á sjálfstæðismönnum. Þetta voru tvö „stóru málin“ þeirra tveggja. Dálítið loðið orðalag í stjórnarsáttmála nú breytir engu um það. Hvað var sagt er eitt, gert annað Spor gömlu stjórnarinnar hræða. Vegferð hennar var vörðuð sviknum fyrirheitum. Ekki aðeins þeim sem birtust í stjórnarsáttmála, heldur ekki síður þeim sem flokkarnir sögðust standa fyrir áður en að honum var komið. Þess vegna er Samfylkingin núna smáflokkur og Steingrímur flúinn úr formannsstóli VG og flokkurinn ekki svipur hjá sjón. Orðalag um Evrópusambandsmál var af einhverjum ástæðum haft loðnara í sáttmálanum en efna standa til og ekki hefur staðið á því að fámennishópar, mistengdir stjórnarflokkunum, séu byrjaðir að hræra í þeim veikleika. Við því var að búast. Í stjórnarsáttmálanum segir svo, eins og fyrr er nefnt: „Með aðgerðum sínum hyggst ríkisstjórnin einnig eyða þeirri pólitísku óvissu sem hefur verið of áberandi þáttur í íslensku þjóðlífi á undanförnum ár- um.“ Ekkert mál eitt annað en aðildarbröltið hefur átt jafn ríkan þátt í að ýta undir „pólitíska óvissu“ í íslensku þjóðlífi á undanförnum árum. Afstaða nær allra flokksmanna og kjósenda beggja stórnarflokk- anna og þjóðarinnar er ljós í málinu. Ekki sýnist vit- urlegt eða nauðsynlegt að viðhalda óvissu að óþörfu. Það gefur þeim einum færi sem vilja veg þessarar ríkisstjórnar sem minnstan. Klukka kjörtímabilsins tifar strax En eins og vitað er þá eru það ekki eingöngu brigð á stjórnmálalegum yfirlýsingum sem geta orðið stjórn- málamönnum og flokkum skeinuhætt þegar þeir ganga til kosninga á ný. Það sama á við um hvernig haldið er á slíkum málum. Síðasta ríkisstjórn hafði þannig vissulega lofað að endurskoða stjórnar- skrána. Einhverjir myndu halda því fram að það hefði hún þó svo sannarlega gert. En það gerði hún ekki. Þess í stað ákvað hún að fram myndi fara ein- hvers konar bögglauppboð um stjórnarskrána og það sem út úr því kæmi, hversu sundurtætt og skrítið sem það yrði, yrði síðan látið búa til heildstæða stjórnarskrá fyrir þjóðina! Ekki var heil brú í þeirri nálgun, né í ferlinu sem átti sér stað. Hvorki rík- isstjórnin né forysta hennar í þinginu veitti nokkra leiðsögn um í hvaða farveg stjórnarskrárbreytingar skyldu fara. Næsta sérkennilegur hópur fólks hertók málið og lét eins og hann væri rétthafi þess og endaði svo með því að fara í þingframboð með „stjórn- arskrármálið“ í stafni. Hópurinn talaði hátt í nafni þjóðarinnar, en náði þó ekki einu sinni fylgi 2,5% hennar og varð á eftir auðum og ógildum í úrslit- unum. Fyrir löngu var ljóst orðið að hefðbundnir stuðn- ingsmenn ríkisstjórnarinnar vildu ekki lengur standa að þessari furðulegu uppákomu um svo mikilvægt mál. En hinir sömu þorðu þó ekki að hafa sig í frammi opinberlega, af ótta við hávaðaseggina sem hrópuðu svo hátt og sögðust gera það í nafni þjóð- arinnar. Þetta mál varð því til þess, meðal annarra, að sannfæra kjósendur um að það væri ekki alvöru- ríkisstjórn í landinu. Það var því hreint formsatriði að hún færi. Því formsatriði hefur nú loks verið full- nægt. Það er eitt af vormerkjunum sem gleðja geð guma núna. Morgunblaðið/Kristinn 26.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.