Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Page 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Page 49
26.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 Tristan á 16 ára dóttur, sem var tæplega tveggja vetra þegar Tristan og Stefán hófu sambúð. Aðlögun fjölskyldunnar að íslensku samfélagi eftir heimkomuna hefur að sögn gengið vel. „Mjög vel enda höfum við líka fundið nýja hluti fyrir okkur að gera, eins og hugleiðslukennsluna. Í dag finn ég fyrir svo mikilli ástríðu fyrir því kenna allt sem ég hef lært – og er enn að læra, því and- leg vinna tekur aldrei enda. Ég finn að þetta er eitthvað sem mig langar að byggja líf mitt í kringum,“ bætir Tristan við. Kynlífið verður betra Eins og gefur að skilja hefur ýmislegt í lífi hjónanna breyst frá því að þau byrjuðu að stunda hugleiðslu fyrir 13 árum og því for- vitnilegt að vita hverjar helstu breyting- arnar hafi verið að þeirra mati. „Í gegnum nútímahugleiðslu hef ég gefið hjartanu og tilfinningunum meiri gaum, meira rými en í hefðbundnum hugleiðslum, sem hefur hjálp- að mér gífurlega að skilja betur hvaða manneskju ég hef að geyma – og ekki síst, hvenær ég bregst við af tilfinningasemi sem undirliggjandi byggist venjulega á ótta. Með því að sjá og verða meðvitaður um hegðun mína er auðveldara að breyta hegð- un minni í átt að kærleiksríkari hegðun. Við það má bæta að þegar við stundum jóga og hugleiðslu, þá stundum við Stefán betra kynlíf,“ segir Tristan á léttum nótum og hlær. Stefán Árni glottir og bætir við: „Við vorum að grínast með það á leiðinni hingað að það gæti verið helsta sölutrikkið okkar, en málið er samt að það er alveg satt. Fyrir mitt leyti er frekar auðvelt að horfa á síðastliðin 13 ár ævi minnar, hugsa út í hvað ég fengið mikið út úr þeim og segja það sjálfkrafa allt hugleiðslunni að þakka, en það er ekki endilega sanngjarnt. Ég vil sem sagt ekki vera með nein gylli- boð um að hugleiðsla sé endilega ávísun á frábært líf, en hún hefur allavega virkað fyrir mig. Hún hefur aukið sjálfsmeðvitund mína og með aukinni meðvitund finn ég að ég er betri maður og hef þar af leiðandi meira til að gefa af mér.“ Af þeim orðum má mögulega draga þá ályktun að hjónin Stefán Árni og Tristan séu orðin hluti af hópi „furðufuglanna“ sem Stefán hræddist og heillaðist af í senn fyrir þrettán árum og þegar blaðamaður ber það undir hann svarar hann brosandi: „Já, það má örugglega segja það – og ég er alveg sáttur við það,“ við jákvæðar undirtektir Tristans. ndað rslu da. Morgunblaðið/RAX * Við það má bætaað þegar viðstundum jóga og hug- leiðslu, þá stundum við Stefán betra kynlíf… „Myndin sem ég held að fólk hafi venjulega af hugleiðslu er þessi dæmigerða sena þar sem einstaklingur situr með lokuð augun og reynir að tæma hugann. Staðreyndin er samt sú að það er eiginlega ekki framkvæmanlegt. Trikkið er að láta hugsanirnar ekki hafa áhrif á þig, að sjá að hugsanirnar eru ekki hver þú ert. Hug- leiðsla gengur út á það að skoða sjálfan sig, taka sig aðeins út úr hugsunum sínum, horfa á það sem maður er að hugsa og skilja að það er einhver meðvitund utan hugsunarinnar,“ segir Stefán Árni þegar hann er beðinn um að lýsa út á hvað hugleiðsla gengur í grófum dráttum. Að sögn Stefáns og Tristan byggist hug- leiðslan sem kennd verður á námskeiðinu End- urnýjun og vöxtur, svokölluð nútímahugleiðsla (e. Modern-Day Meditation), á fjórum skref- um. Það fyrsta snýst um að opna um hjartað og losa um tilfinningar, sem er gert með aðstoð ýmissar tónlistar. Það næsta gengur út á að róa hugann og tilfinningar og leyfa öllum hugs- unum að fljóta hjá án þess að hafa áhrif. Þriðja skrefið er einkennandi fyrir þessa tegund hug- leiðslu og byggist á því að velta tiltekinni spurningu eða einstöku vandamáli fyrir sér í algjöru jafnvægi, án þess að láta tilfinningar hafa áhrif. Að lokum snýst fjórða skrefið um að koma því sem kom í ljós í hugleiðslunni í fram- kvæmd. Út á hvað gengur hugleiðsla? www.rekstrarland.isRekstrarland | Skeifunni 11 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100 Mikið úrval. Vistvæn mál, bakkar, diskar, hnífapör o.fl. Einnota vörur fyrir veisluna Verð frá 779kr. Pappadiskar einnota, 23 cm, 100 stk. í pakka – Verð 779 kr. Hampi diskur pálma, 310x180 mm, 25 stk. í pakka – Verð 2.529 kr.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.