Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Síða 60

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Síða 60
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2013 F ullyrða má að hugur þýsku þjóðarinnar verði í höfuðborg Bretlands í kvöld, laugardagskvöld. Þessi merka menningar- þjóð er ákaflega stolt af knatt- spyrnumönnum sínum og þegar landsliðið á í hlut fylgjast háir sem lágir grannt með. Hið sama verður upp á teningnum í kvöld, þegar tvö þýsk lið mætast í lokarimmunni um Evrópumeistaratitil félagsliða. Kanslari Þýskalands, Angela Markel, verður vitaskuld á Wem- bley-leikvanginum í kvöld og 50.000 Þjóðverjar aðrir, stuðn- ingsamenn liðanna, sem gátu keypt miða. Aðrir stjórnmálaleiðtogar eru hins vegar ekki nauðsynlegir. Bæjarar frábærir í vetur Bayern, sögufrægasta lið þýskrar knattspyrnusögu, hefur haft betur gegn Dortmund á öllum víg- stöðvum í vetur. Dortmund varð þýskur meistari í fyrra og hitti- fyrra en Bayern endurheimti krúnuna í vor með áður óþekktum yfirburðum, og sló þá gulu einnig út úr þýsku bikarkeppninni. Úr- slitaleikur hennar er á dagskrá um næstu helgi, þar sem Bayern mæt- ir VfB Stuttgart, og með sigri þá getur liðið tryggt sér glæsilega þrennu, að því tilskildu að það vinni Evrópubikarinn í kvöld. Til lítils er í sjálfu sér að spá um úrslit leiksins í kvöld. Hann getur farið á hvorn veginn sem er þótt Bayern sé vitaskuld talið sig- urstranglegra vegna stórbrotins ár- angurs í vetur. Á góðum degi er Dortmund hins vegar ekki síðra lið og fyrst og fremst gleður það unn- endur þýskrar knattspyrnu að liðin tvö skuli mætast í lokaleiknum. Þau eru best, á því leikur ekki vafi. Spænsku risarnir tveir, Real Ma- drid og Barcelona, steinlágu gegn þýsku liðunum í undanúrslitunum og það segir allt sem segja þarf. Bæði lið hafa á að skipa frábær- um markvörðum, varnirnar eru yfirleitt mjög traustar, miðsvæðið eingöngu skipuð afburðamönnum og framherjarnir í fremstu röð; bæði í eiginlegri og óeiginlegri merkingu. Liðin hafa þegar mæst fjórum sinnum í vetur, deildarleikjunum lauk báðum með jafntefli, en Bay- ern vann í tvígang; fyrst í þýsku meistarakeppninni og sló Dort- mund svo út úr bikarkeppninni. Eins og hjartaáfall Risinn úr Bæjaralandi hefur ekki einungis sært litla bróður úr Ruhr- héraðinu innan vallar í vetur held- ur gekk nýverið frá samningi við einn efnilegasta leikmann heims, Mario Götze, sem er aðeins 21 árs og hefur verið á mála hjá Dort- mund síðan hann var níu ára! Margt þykir benda til þess að pólski framherinn Lewandowski, hættulegasti sóknarkmaður Dort- mund, fari sömu leið að loknum úr- slitaleiknum. Jürgen Klopp, hinn skemmtilegi þjálfari Dortmund, leyndi ekki von- brigðum sínum þegar ljóst var að Götze færi. „Það var eins og að fá Þjóðverjar taka völdin í London ÞÝSK LIÐ MÆTAST Í FYRSTA SKIPTI Í ÚRSLITALEIK MEISTARADEILDAR EVRÓPU Í KNATTSPYRNU Í KVÖLD. NÝBAKAÐIR ÞÝSKALANDSMEISTARAR BAYERN MÜNCHEN EIGA Í HÖGGI VIÐ LANDSMEISTARA SÍÐUSTU TVEGGJA ÁRA, BORUSSIA DORTMUND. 67 .3 58 17 .2 74 17 .4 55 25 .6 26 25 .8 37 30 .2 75 30 .9 20 32 .7 48 990 1.230 846 306 380 2.421 207 254 17 .7 38 18 .8 69 19 .5 38 23 .4 5930 .2 75 34 .6 0142 .6 12 45 .1 16 306 306 380 380 380 306 380 552 Hvar mæta flestir áhorfendur? Aðsókn á nokkrar knattspyrnudeildir í Evrópu Tölurnar eru síðan keppnistímabilið 2011-2012 en voru alls staðar ámóta í vetur. Aðrar helstu íþróttadeildir heimsins, til samanburðar Meðalfjöldi áhorfenda á leik Áhorfendur alls í deildinni (milljónir) Fjöldi leikja 7, 17 5, 987, 7711 ,5 0 13 ,1 5 13 ,0 4 13 ,8 1 6, 78 74 ,8 6 2, 03 7, 91 21 ,6 8 21 ,4 7 Þý ska 1. d eil din (Bu nd esl iga ) (Þý ska lan d 2 01 2-1 3) En ska Úr val sde ild in (Pr em ier Le agu e) Sp æn ska 1. d eil din (LA Lig a) Íta lsk a 1 . d eil din (Se ria A) Ho lle nsk a 1 . d eil din (Er ed ivis ie) Fra nsk a 1 . d eil din (Li gu e 1 ) Næ st efs ta de ild En g- lan di (C ha mp ion shi p) Ás tra lsk aA FL -de ildi n - á str als ku r fó tbo lti Ba nd arí ska haf nab olt ad. – „ ba seb all“ Ka nad ísk a fó tbo lta d. – k ana dís kt rug by Me xík ósk a k nat t- spy rnu d. - L iga MXJap ans ka haf nab olt ade ildi n Ísh ok kíd eild No rð ur- Am erí ku – N HL Kö rfu bo lta d.N or ðu r- Am erí ku – N BA Ba nd arí ska NF L-d eild in – a me rísk ur fót bo lti 17 ,1 0 17 ,1 2 9, 79 Venjulega eru leikirnir mun fleiri en fækkaði vegna verkfalls veturinn 2011-2012. Meðaltalið þó svipað. Félög sem oftast hafa orðið Evrópumeistarar Real Madrid 9 sinnum AC Milan 7 sinnum Liverpool 5 sinnum Bayern München, Ajax og Barcelona 4 sinnum Manchester United og Internazionale 3 sinnum Þrisvar áður hafa bæði úrslitaliðin verið frá sama landi Sjöundi úrslitaleikurinn á Wembley Real Madrid vann Valencia 2000 í París AC Milan vann Juventus 2003 í Manchester Manchester United vann Chelsea 2008 í Moskvu 1963 AC Milan - Benfica 2:1 1968 Manchester United - Benfica 4:1 (eftir framlengingu) 1971 Ajax - Panathinaikos 2:0 1978 Liverpool - Club Brugge 1:0 1992 Barcelona - Sampdoria 1:0 (eftir framlengingu) 2011 Barcelona - Manchester United 3:1 Þetta verður sjöundi úrslitaleikur Meistaradeildarinnar (áður Evrópukeppni meistaraliða) áWembley leikvanginum í London. Einn úrslitaleikur hefur farið fram þar síðan völlurinn var endurbyggður. * „Knattspyrna er einföld íþrótt; 22 leikmenn elta einn bolta í90 mínútur og alltaf eru það Þjóðverjarnir sem fagna sigri.“Gary Lineker fv. landsliðsmaður Englands. Þetta á a.m.k vel við í dag þegar tvö þýsk lið leika til úrslita í Meistaradeildinni! Boltinn SKAPTI HALLGRÍMSSON skapti@mbl.is Jürgen Klopp, þjálfari Dort- mund, er 45 ára. Glaðlegur náungi og raunar síbrosandi að því er virðist. Stundum kall- aður Broskallinn frá Stuttgart. Jupp Heynckes, starfsbróðir Klopps hjá Bayern, er 68 ára. Gælunafnið Osram festist á sínum tíma við Heynckes; eftir þýska ljósaperuframleiðand- anum þekkta, vegna þess hve rauður þjálfarinn verður í framan þegar hann æsist! BROSKALL OG PERA Þjálfararnir Jupp Heynckes þjálfari Bayern. Jürgen Klopp þjálfari Dortmund.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.