Morgunblaðið - 04.06.2013, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2013
Á síðasta ári nam kortavelta er-
lendra ferðamanna vegna kaupa í
verslunum hér á landi 13,7 milljörð-
um króna. Af þeirri upphæð var 2,7
milljörðum varið til kaupa í fata-
verslunum, sem er um 13% af heild-
arveltu íslenskra sérverslana með
föt á síðasta ári. Líklegt er að aðal-
lega sé um að ræða íslenskan útivist-
arfatnað.
Þetta kemur fram í tölum Rann-
sóknarseturs verslunarinnar sem
birtir nú í fyrsta sinn greiðslukorta-
veltu íslenskra og erlendra ferða-
manna hér á landi, flokkaða eftir teg-
undum verslana og þjónustu.
Í frétt frá Rannsóknarsetrinu
kemur fram að erlend kortavelta í ís-
lenskri dagvöruverslun var um 2,3
milljarðar króna í fyrra. Þá greiddu
erlendir ferðamenn með kortum sín-
um í tollfrjálsri verslun, eða Fríhöfn-
inni, fyrir um 1,4 milljarða eða litlu
lægri upphæð en þá sem var varið til
gjafa- og minjagripaverslunar, eða
um 1,8 milljarða.
Stærsti liður erlendrar kortaveltu
var í flokknum gistiþjónusta eða lið-
lega 14,4 milljarðar. Þá var velta ým-
issar ferðaþjónustu (t.d. skipulegra
skoðunarferða, pakkaferða, veiði-
leyfa o.fl.) 8,7 milljarðar, 7,6 millj-
arðar til veitingahúsa og 4,3 millj-
arðar til bílaleigna. Nánar á mbl.is.
14,4 milljarðar í gistingu
Erlendir ferðamenn greiddu með kortum í fyrra 2,7 milljarða fyrir fatnað
Þeir eyddu 13,7 milljörðum í verslunum 4,3 milljarðar komu í hlut bílaleigna
Vöxtur Tekjur þjóðarbúsins af erlendum ferðamönnum vaxa ár frá ári.
Morgunblaðið/Golli
Skotbómulyftarar
mest seldi
skotbómulyftarinn
2012
Vesturvör 32, 200 Kópavogur, Sími 564 1600 islyft@islyft.is - www.islyft.is
Lyftigeta 2.5 til 12 tonn
Fáanlegir með
• Vinnukörfum
• Skekkingju á bómu
• Bómu með lengd allt að 18 metrum
• Roto útfærsla með bómu
allt að 25 metrum
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Fyrir þá sem e
lska hönnun
H
önnuður:M
arcelW
anders
C
eram
ica
B
ardelli
● Sameinuðu ar-
abísku fursta-
dæmin tilkynntu í
gær að þau hygð-
ust sameina ál-
fyrirtækin Em-
irates Aluminium
(Emal) og Dubai
Aluminium (Du-
bal) undir nafn-
inu Emirates Glo-
bal Aluminium.
Með sameiningunni verður til fimmta
stærsta álfyrirtæki heims með heildar-
eignir upp á 15 milljarða Bandaríkja-
dala.
Emal er að auka framleiðslu sína upp
í 1,3 milljónir tonna, en Dubal framleiðir
um eina milljón tonna á ári. Mikil upp-
bygging hefur verið í áliðnaðinum á
þessum slóðum, samkvæmt frétt AFP.
Til samanburðar er samanlögð fram-
leiðslugeta álveranna þriggja á Íslandi
um átta hundruð þúsund tonn á ári.
Fimmta stærsta álfyrir-
tæki heims verður til
Dubaí Burj Khalifa,
hæsta bygging heims.
Norska flug-
félagið Norwegi-
an hefur hafið
beint flug til
New York frá
Garde-
moen-flugvelli
við Ósló. Fyrsta
flugið var farið
sl. fimmtudag og
um leið kynnti félagið áform sín um
að hefja beint flug frá Stokkhólmi
til New York nk. föstudag. Á laug-
ardag hefur Norwegian einnig beint
flug frá Ósló til Asíu, þar sem
áfangastaðurinn er Bangkok í Taí-
landi.
Norwegian er annað stærsta flug-
félagið á Norðurlöndum og þriðja
stærsta lággjalda flugfélagið í Evr-
ópu, og í örum vexti. Í fréttatilkynn-
ingu frá félaginu kemur fram að fé-
lagið reki 73 flugvélar og sé með
280 vélar í pöntun. Þar af eru átta
Boeing 787 Dreamliner, og verða
þrjár slíkar afhentar á þessu ári.
Beint flug frá
Ósló til NY
Af þeim tíu viðskiptateymum sem
tóku þátt í Startup Reykjavík 2012
hafa fimm fengið styrk frá Tækni-
þróunarsjóði. Þar með hafa öll
Startup Reykjavík-fyrirtæki sem
sóttu um hjá sjóðnum fengið styrk
og nemur heildarupphæð styrk-
vilyrða sem fyrirtækin hafa fengið
frá sjóðnum 135 milljónum króna,
samkvæmt fréttatilkynningu frá
Arion banka.
Fyrirtækið Skyhook ehf. með
vöruna mymxlog fékk nýverið
verkefnastyrk að upphæð 45 millj-
ónir króna, þ.e. 15 milljónir króna
á ári í þrjú ár.
Hin fyrirtækin sem fengið hafa
styrkjavilyrði frá Tækniþróunar-
sjóði eru WhenGone, Designing
reality, Eskitech og Cloud eng-
ineering. Þar til viðbótar hafði
fyrirtækið Guitarparty fengið
styrk frá Tækniþróunarsjóði áður
en það var valið til þátttöku í Star-
tup Reykjavík 2012.
Á Startup Iceland-ráðstefnunni í
Hörpu í dag verður tilkynnt hvaða
teymi munu taka þátt í Startup
Reykjavík 2013, sem stendur yfir
frá 18. júní til 23. ágúst, sam-
kvæmt því sem fram kemur í til-
kynningu.
Styrkir upp á 135 milljónir
til fimm Startup-fyrirtækja
Stofnendur Gísli Haukur, Jón Grétar og Guðrún, stofnendur mymxlog.