Morgunblaðið - 04.06.2013, Síða 26
26 UMRÆÐAN Minningar
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2013
✝ Ólafur Alex-ander Ólafsson,
alltaf kallaður Alli,
fæddist í Lækj-
arkoti í Borgarfirði
27. janúar 1931.
Hann lést á gjör-
gæsludeild Land-
spítalans í Fossvogi
28. maí 2013.
Foreldrar hans
voru Valgerður
Kaprasíusardóttir,
f. 1904, d. 1942, og Ólafur Magn-
ússon, f. 1907, d. 1993. Stjúpmóð-
ir Helga Guðmundsdóttir, f. 1907,
d. 1995. Systir Alla er Katrín, f.
1932, og hálfsystur eru Sólveig, f.
1946, og María, f. 1954. Alli
kvæntist 13. október 1953 Maríu
Gísladóttur, f. 1. desember 1930,
d. 2. janúar 1994. Börn þeirra eru
1) Gísli Örvar, f. 1953, maki Mar-
grét Árnadóttir, f. 1953, d. 2011,
börn þeirra eru Steinar Freyr, f.
1976, Rúnar Bogi, f. 1982, og
Kristín Ýr, f. 1993. 2) Valgerður
Björk, f. 1955, maki Reynir Jó-
hannsson, f. 1953, börn þeirra
eru Dagmar Heiða, f. 1978, Daní-
el Helgi, f. 1981, og Íris Björk, f.
Alli hitti ástina sína, hana
Möllu, í Sjálfstæðishúsinu við
Austurvöll en árið 1953 stóðu þau
á stofugólfinu hjá prestinum og
létu lofa sig saman eins og hann
sagði sjálfur frá.
Alli var málarameistari og
starfaði sem sjálfstæður atvinnu-
rekandi og var oft með nema og
marga menn í vinnu. Þegar hann
byggði húsið í Sæviðarsundi þá
ákvað hann að læra að múra til
þess að geta múrað húsið sitt
sjálfur og tók meistarapróf í
þeirri iðn. Þegar Malla lést árið
1994 ákvað hann að hætta að vera
sjálfstæður og fór þá að vinna hjá
Byggingardeild Reykjavíkur og
starfaði þar þangað til hann varð
sjötugur. Hann var mikill áhuga-
maður í golfi og var alla tíð í Golf-
klúbbi Ness, fór hann í golfferðir
til útlanda á hverju ári og stund-
um oft á ári og hann hefur unnið
til margra verðlauna. Hann var í
landsliði eldri kylfinga og var
einnig meðlimur í Einherja-
klúbbnum fyrir holu í höggi. Á
sínum yngri árum spilaði hann
badminton. Alli fór á hverjum
degi út á golfvöll allt árið um
kring ef ekki til að spila golf þá til
að hitta, spjalla og ganga með
vinum sínum en einnig stundaði
hann líkamsrækt.
Útför Ólafs fer fram frá Nes-
kirkju í dag, 4. júní 2013, og hefst
athöfnin kl. 13.
1989. 3) Helga
Hrönn, f. 1958, maki
Roger Gustafsson, f.
1957, börn þeirra
eru Maria Kristina,
f. 1985, Anna Kat-
arina, f. 1987 og
Lena Karin El-
isabeth, f. 1990. 4)
Hulda Sjöfn, f. 1962,
maki Ólafur Sturla,
f. 1962, börn þeirra
eru Kristján, f. 1987,
Ólafur Alexander, f. 1988, og
Lilja Ósk, f. 1992. 5) Ólafur Örn,
f. 1971. Langafabörnin eru 5.
Alli flutti til Akraness þegar
hann var tveggja ára og bjó þar
til níu ára aldurs en þá flutti hann
með föður sínum til Lambastaða
á Seltjarnarnesi en Katrín systir
hans flutti til móðursystur sinnar
vegna veikinda móður þeirra.
Eftir langa sjúkralegu missti Alli
móður sína við ellefu ára aldur og
voru það erfiðir tímar fyrir hann
og Katrínu þar sem þau voru að-
skilin í tvö ár en þau sameinuðust
aftur þegar Ólafur faðir þeirra
keypti hús á Grettisgötu ásamt
móðursystur þeirra.
Ein af mínum sætari minning-
um sem krakki eru tímar sem ég
eyddi í Sæviðarsundi þar sem
amma og afi bjuggu til lengri
tíma. Þar var ávallt kátt á hjalla
og mikið var um manninn þegar
gesti bar að garði. Þar ólst ég upp
að vissu leyti mín fyrstu ár. Það
voru afi og amma sem kynntu mig
fyrir golfinu og aftur varð ekki
snúið. Ég gleymi ekki þeim fjór-
um sumrum sem ég var meðlimur
NES golfklúbbsins og spilaði með
þeim fleiri hringi en ég get talið.
NES klúbburinn, verð ég að
segja, voru höfuðstöðvar hans
afa. Ef þig vantaði að ná tali af
honum þá var án undantekninga
hægt að nálgast hann þar, því þar
var hann öllum þeim stundum
sem hann gat og jafnvel meira en
það. Golfari af lífi og sál. Ég segi
með stolti að ég hef aldrei unnið
afa í golfi. Þó ég hafi ekki eytt
gríðarlegum tíma með afa síðast-
liðin ár þá á ég nokkrar minning-
ar af honum sem seint munu
gleymast og tvær af þeim eru
vinnu tengdar. Það var þegar fjöl-
skyldan mín var að byggja verk-
stæðið uppá Kletthálsi þá sá afi
um að mála húsið að innan. Þetta
var árið 2004 og ég og afi vorum
staddir í fábrotinni körfu sem sit-
ur ofan á lyftaratönnum í 9 metra
hæð. Afi ákveður að stíga uppá
handriðið á körfunni með öðrum
fæti og hélt sér með vinstri hendi
við vegginn til að bletta aðeins á
stað sem enginn hefði vitað um
(fagmaðurinn að verki) og ég
hugsaði með mér „Er maðurinn
búinn að glata sér?“. Þetta var óðs
manns æði og ég ungviðið nötraði
og skalf af ótta við að eitthvað
myndi fara úrskeiðis. En nei, afi
kláraði verkið án þess að svitna.
Annarri eins færni og kjark hafði
ég ekki orðið vitni að og það af
manni sem var löngu kominn á
eftirlaun. Fjórum árum seinna
voru foreldrar mínir að stækka
bústaðinn sinn og ég, faðir minn,
afi og frændi vorum að hlaða
grjóti á gaflinn, staddir í stillans í
ca 8 metra hæð og þá ákveður afi
að endurtaka leikinn og teygir sig
yfir að veggnum með annan fót-
inn á vaggandi stillans og aðra
höndina sér til stuðnings til að
festa grjótið. Þá hugsaði ég með
mér „Jæja, 4 árum eldri en síðast,
sami háskaleikurinn og ennþá
meiri dugnaður“. Þetta verður
ekki auðveldlega leikið eftir, það
var töggur í kallinum. Hans verð-
ur sárt saknað. Eiginmaður – fað-
ir – fagmaður – golfari – afi.
Steinar Freyr Gíslason.
Elsku afi, nú ert þú búinn að
kveðja þennan heim og kominn til
ömmu. Eins og Embla María,
langafabarn þitt, sagði þá ert þú
orðinn engill og hvílir á hvítu skýi.
Við erum afar þakklát fyrir að
hafa kynnst þér svona vel. Við
höfum alltaf verið mikið í kring-
um þig og átt margar góðar
stundir saman. Fyrir nokkrum
árum tók Íris við þig viðtal fyrir
skólaverkefni og fékk þannig að
kynnast þínum uppvaxtarárum.
Þetta er Írisi mjög minnisstætt
og augljóst að þú hafðir einnig
mjög gaman af. Á síðustu árum
heimsótti Daníel þig oft og horfði
með þér á fótbolta. Ekki má
gleyma ófáum símtölum þar sem
sjónvarpið var að stríða þér og
Daníel kom þér til aðstoðar. Það
var virkilega gaman að sjá hvað
langafabörnin gáfu þér mikið og
hvað þeim fannst gaman að hitta
þig. Þau komu oft til þín og sett-
ust í fangið á þér og þú áttir það til
að gantast aðeins við þau. Það er
okkur mjög minnisstætt þegar
Embla María kom til þín eins og
hálfs árs gömul með bleyju og
rétti þér hana, lagðist á gólfið fyr-
ir framan þig og bað þig um að
skipta á sér. Það var yndislegt að
sjá þegar þú stóðst yfir henni og
skiptir á henni, enda ekki á hverj-
um degi sem maður sér langafa
skipta á barni.
Við systurnar og foreldrar okk-
ar fórum oft með þér á tónleika
með Karlakór Reykjavíkur fyrir
jólin og áttum þar góðar stundir
saman. Við munum ekki gleyma
jólunum þegar við vorum krakkar
og þú þóttist vera töframaður.
Vakti það mikla lukku hjá okkur
systkinum. Við komum til með að
sakna þín á jólunum enda höfum
við verið saman flest jól frá því við
munum eftir okkur. Hver á að fela
möndluna í grautnum nú þegar
þú ert farinn?
Þó svo aldurinn væri farinn að
færast yfir þig þá varst þú aldrei
gamall í okkar augum. Þú varst
hraustur og duglegur og sast ekki
auðum höndum heima við. Hátt á
áttræðisaldri tókstu t.d. að þér að
flota og mála kjallara í blokkinni
þar sem Dagmar bjó en ekki
myndu allir ráðast í slíkt á þess-
um aldri. Þú varst duglegur að
hreyfa þig enda stundaðir þú lík-
amsrækt og fórst daglega út á
golfvöll til þess að spila golf eða
ganga hring.
Elsku afi, við munum sakna þín
mikið.
Dagmar, Daníel og Íris.
Ólafur A.
Ólafsson
HINSTA KVEÐJA
Elsku afi, alltaf þegar við
komum til Íslands, þá hugs-
aðir þú alltaf um að við
hefðum það sem allra best.
Við vorum alltaf velkomnar
til þín og þú vildir ganga úr
rúmi fyrir okkur, en við
þurftum að neyða þig til að
sofa í þínu eigin rúmi. Þeg-
ar við vorum hjá þér, þá
keyrðir þú okkur út um allt
og varst tilbúinn að gera
allt fyrir okkur. Þó að við
séum ekki góðar í íslensku
þá skildum við samt alltaf
hvort annað. Síðast þegar
við vorum á Íslandi, þá voru
kærastar okkar með og þá
naust þú þess að vera með
okkur og við með þér. Við
vitum að amma bíður eftir
þér. Þú ert alltaf í hjörtum
okkar.
Maria, Anna og Lena.
Stefnuyfirlýs-
ing ríkisstjórnar
Sigmundar Dav-
íðs Gunnlaugs-
sonar var birt
22. maí 2013.
Þar er meðal
annars fjallað
um efnahags-
vanda heim-
ilanna, sem staf-
aði af gengisfalli
flotkrónunnar og verðbólgu
sem óhjákvæmilega fylgdi í
kjölfarið. Þær hugmyndir sem
fram koma í stjórnarsáttmál-
anum til lausnar vandanum
eru ekki trúverðugar og vafa-
samt er að þær séu að
óbreyttu nothæfar. Að
minnsta kosti er ekki fjallað
um þá leið sem menn munu að
lokum neyðast til að fara.
Þetta er leið fastgengis, fyrst
upptaka erlends gjaldmiðils,
sem hægt er að gera strax og
síðar stofnun myntráðs með
erlendan gjaldmiðil sem stoð-
mynt.
Í stjórnarsáttmálanum er
talað um tvær meginleiðir, það
er að segja að „beita bæði
beinni niðurfærslu höfuðstóls
og skattalegum aðgerðum“.
Ljóst má vera, að höfunda
skortir tiltrú á að þessar tvær
aðgerðir dugi, því að opnað er
á þann möguleika „að stofna
sérstakan leiðréttingarsjóð“.
Höfundar hafa fylgt sáttmál-
anum eftir með munnlegum
útskýringum. Nokkuð ljóst er
því orðið, hvaða hugmyndir
þeir hafa til lausnar á efna-
hagsvanda heimilanna. Í sátt-
málanum segir:
„Í ljósi þess að verð-
tryggðar skuldir hækkuðu og
eignaverð lækkaði, m.a. vegna
áhrifa af gjaldþroti fjármála-
fyrirtækja og áhættusækni
þeirra í aðdraganda hrunsins,
er rétt að nýta svigrúm, sem
að öllum líkindum myndast
samhliða uppgjöri þrotabú-
anna, til að koma til móts við
lántakendur og þá sem lögðu
sparnað í heimili sín, rétt eins
og neyðarlögin tryggðu að
eignir þrotabúanna nýttust til
að verja peningalegar eignir
og endurreisa innlenda banka-
starfsemi.“
Flotkrónan er móðir
eignabrunans
Athygli vekur, að ekki er
rétt farið með ástæður skulda-
vandans. Geng-
isfalls flotkrón-
unnar er að engu
getið, en vísað er
til áhættusækni
fjármálafyr-
irtækja. Einnig
er ekki traust-
vekjandi að tala
um að svigrúm
muni „að öllum
líkindum“ mynd-
ast samhliða
uppgjöri
þrotabúanna. Þá
er fjallað rangt
um tilgang neyðarlaganna,
sem höfðu tvíþættan tilgang.
Annars vegar að forða erlend-
um innistæðutrygg-
ingasjóðum og ríkissjóði Bret-
lands frá tjóni. Hins vegar að
heimila stofnun ríkisbanka til
að viðhalda starfsemi banka-
kerfisins. Að lokum nefnir
sáttmálinn leiðréttingarsjóð-
inn: „Ríkisstjórnin heldur
þeim möguleika opnum að
stofna sérstakan leiðrétting-
arsjóð til að ná markmiðum
sínum.“
Því er haldið fram, að meg-
inleiðirnar – niðurfærsla höf-
uðstóls og skattalegar aðgerð-
ir – kunni að verða seinfarnar.
Sérstakur leiðréttingarsjóður
geti brúað það tímabil sem
kunni að líða, þangað til meg-
inleiðirnar skili árangri. Leið-
réttingarsjóðurinn byggist á
hugmynd sem nefnd hefur
verið „magnbundin íhlutun“
(quantitative easing) og fjallar
um kaup seðlabanka á verð-
bréfum, án þess að hafa til
þess alvöru peninga. Menn
þekkja þessa aðferð frá
bankahruninu, þegar Seðla-
bankinn keypti af bönkunum
mikið magn skuldabréfa sem
ganga undir nafninu „ást-
arbréf“.
Fyrirætlunin virðist vera að
Seðlabankinn prenti flotkrón-
ur, sem notaðar verða til að
greiða hrægömmunum fyrir
stökkbreytt skuldabréf hús-
eigenda. Hrægammarnir
verða auðvitað himinlifandi, að
fá í hendur flotkrónur – vænt-
anlega með ábyrgð ríkissjóðs
– fyrir skuldabréf sem öruggt
er að munu ekki innheimtast
að fullu. Eins og allir vita er
flotkrónan sýndarpeningur
(fiat money), en með rík-
isábyrgð og hugsanlega geng-
istryggingu verður hún alvöru
peningur (real money).
Flotkrónan getur líka ver-
ið gagnlegt veiðarfæri
Það sem vantar í þær hug-
myndir sem settar eru fram í
stjórnarsáttmálanum er að-
ferð til að knýja hrægammana
til að láta af hendi þau verð-
mæti sem þeir hafa til umráða.
Eina færa leiðin að því marki
er að taka upp fastgengi og
það verður að vera alvöru fast-
gengi. Ekki dugar að taka upp
gengistyllingu undir stjórn
Seðlabankans. Már Guð-
mundsson bankastjóri notar
orðið „mjúkt-fastgengi“ yfir
gengistyllingu, en hvað sem
fyrirkomulagið er nefnt þá er
það afbrigði af flotgengi.
Samtímis því að fastgengi
er tekið upp, þarf að gera öll-
um skylt að skila þeim gjald-
eyri sem þeir ráða yfir, hræ-
gömmum jafnt og öðrum.
Fastgengi er komið á með
upptöku alþjóðlegs gjaldmið-
ils, til dæmis Kanadadals.
Seðlabankinn annast skipti á
flotkrónum og gjaldeyri, á fyr-
irfram ákveðnu gengi og eftir
reglum sem takmarka hversu
mikið hver einstaklingur fær
skipt. Fyrirtæki mæta af-
gangi, en einungis er skipt
þeim flotkrónum sem fram-
vísað er og alls ekki er skipt á
gjaldeyri og skuldabréfum.
Heimilt verður að nota
flotkrónuna áfram, en gengi
hennar og hugsanleg skipti
ríkisins á flotkrónum og gjald-
eyri ráðast af efnahags-
ástæðum. Þann hagnað sem af
þeim skiptum leiðir er hægt að
nota til margvíslegra nota,
meðal annars til að lækka
skuldir heimilanna. Hræ-
gammarnir munu ekki semja
um afskriftir krónueigna,
nema þeir verði fastir í neti
flotkrónunnar. Það er barna-
skapur að halda, að þeir muni
blikna við hótanir einar. Upp-
töku fastgengis er hægt að
gera á viku og um leið er snjó-
hengjan horfin sem dögg fyrir
sólu. Þarfir hagkerfisins verða
að ganga fyrir og því liggur
ekkert á, að öllum krónueign-
um verði skipt fyrir alvöru
pening.
Eftir Loft
Altice
Þorsteinsson
Loftur Altice
Þorsteinsson
» Þær hugmyndir
sem fram koma
í stjórnarsáttmál-
anum til lausnar
vandanum eru ekki
trúverðugar og að
óbreyttu er vafa-
samt að þær séu
nothæfar.
Höfundur er verkfræðingur
og stjórnarmaður í félaginu
Samstaða þjóðar.
Ríkisstjórnin er á villi-
götum með efnahags-
vanda heimilanna
Þegar við komum
til þeirra hjóna Sig-
rúnar og Magnúsar, hvort sem
var heim til þeirra eða á Grund,
var vinarþelið mikið og áhuginn á
námi, starfi okkar og lífi einlæg-
ur. Þó minni Sigrúnar væri að
mestu farið síðast þegar ég leit til
hennar í vor þá var hún jafn
Sigrún Jónsdóttir
✝ Sigrún Jóns-dóttir fæddist í
Borgarfirði 12.
febrúar 1918. Hún
lést í Reykjavík 14.
maí 2013.
Útför Sigrúnar
fór fram frá Krists-
kirkju, Landakoti,
27. maí 2013.
elskuleg við mig og
hún hafði ávallt ver-
ið, hún strauk mér
um vangann og við
héldumst í hendur,
spjölluðum saman
og hlógum. Svona
man ég Sigrúnu,
glaða og góða, bæði
við mig og börnin
mín frá upphafi okk-
ar kynna, fyrir rúm-
um 20 árum. Hafi
hún þökk fyrir elskusemi og alúð
alla tíð. Við vottum börnum,
barnabörnum og öðrum aðstand-
endum Sigrúnar samúð.
Ásdís Magnúsdóttir,
Ágúst R. Glad og
Vigdís M. Glad.
Móttaka aðsendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lifandi umræðu í landinu og birt-
ir aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í
notkun og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morg-
unblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem
einnig eru sendar eru á aðra miðla.
Að senda grein
Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í
hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist
felligluggi þar sem liðurinn "Senda inn grein" er valinn.
Í fyrsta skipti sem innsendikerfið er notað þarf notandinn
að nýskrá sig inn í kerfið. Ítarlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig
sem notanda í kerfið nóg að slá inn kennitölu notanda og
lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan
sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá kl. 8-18.
- með morgunkaffinu
Skráðu þig
í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/
Nú geta
allir fengið
iPad-áskrift