Morgunblaðið - 04.06.2013, Síða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2013
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Í nýrri þáttaröð sem hefur göngu
sína á Rás 1 á ellefta tímanum í dag
rekja þeir Vernharður Linnet og
Hreinn Valdi-
marsson djass-
sögu Íslands frá
árinu 1919 til loka
seinni heimsstyrj-
aldarinnar. Ekki
hefur verið fjallað
um þennan þátt
íslenskrar tónlist-
arsögu og segir
Vernharður hann
hafa legið að
mestu í glatkist-
unni því nær allir íslenskir djassleik-
arar sem nú eru þekktir komu til sög-
unnar eftir seinna stríð.
„Þetta er afskaplega áhugavert
tímabil,“ segir Vernharður. Umsjón-
armennirninr hafa verið að afla heim-
ilda og efnis um langt árabil.
„Við Hreinn vorum byrjaðir að
safna efninu hvor í sínu horninu, ég í
viðtölum og sagnfræði og hann að
finna tónlistina á plötum og böndum.
Við lögðum síðan kraftana saman
fyrir um fimmtán árum en þetta hef-
ur gengið hægt, enda verið áhugamál
með öllu öðru.“
Saga að hverfa
Vernharður segist hafa áttað sig á
því þegar Gunnar Ormslev saxófón-
leikari lést árið 1981 að þarna væri
merkileg saga að hverfa.
„Ég fór þá að safna viðtölum við
elstu djassleikarana, sem komu fram
eftir stríð, og náði þeim nær öllum.
Vilhjálmur Guðjónsson klarinettu-
leikari var dáinn en ég ræddi við
bróður hans, Kjartan Guðjónsson
listmálara. Ég byggi mikið á þessum
viðtölum í þáttunum.“
Talsvert er til af upptökum með
þeirri kynslóð djassmanna sem kom
fram á eftirstríðsárunum en hins
vegar er ekki vitað um margar upp-
tökur með íslenskum spilurum frá
millistríðs- og stríðsárunum.
„Af ekta íslenskum djassi eru til
tvö lög frá 1943, með Danshljómsveit
Þóris Jónssonar sem var þá „Borg-
arbandið“ á Hótel Borg.“
Frásögnin í þáttunum hefst í Kan-
ada er íslensk djasshljómsveit vinnur
djasskeppni þar í landi. Þá er rakin
saga tónlistarmanna á borð við Poul
Otto Bernburg, fiðlara og hljómsveit-
arstjóra, sem var miðpunktur ry-
þmískar tónlistar á Íslandi á þriðja
áratug aldarinnar og píanistans
Reynis Gíslasonar, sem spilaði með
fremstu djasshljómsveitum Dan-
merkur á svipuðum tíma.
„Reynir var vinur Guðjóns í Lax-
nesi og Halldór Laxness sonur hans
segir frá honum. Reynir flýði Ísland
árið 1919, enda ekkert að hafa hér,
fór til Danmerkur og komst í aðal
dans- og djasshljómsveit Dana. Hann
hlýtur að hafa verið sleipur,“ segir
Vernharður og bætir við að stór hluti
þeirrar tónlistar sem gekk milli
stríða undir nafninu djass hafi verið
djassskotin danstónlist með sveiflu.
Og hann segir frá fleiri merkum
mönnum, eins og hinum vestur-
íslenska Páli Dalmann sem árið 1938
tók við danshljómsveitinni á Borg-
inni. Hótel Borg kemur mikið við
sögu sem lýkur þegar Íslendingar
eru komnir í öll aðalhlutverk í djass-
skotinni tónlist hér, menn á borð við
Svein Ólafsson, Vilhjálm Guðjónsson,
Jóhannes Eggertsson, Þóri Jónsson
og Bjarna Böðvarsson.
„Þetta er afskaplega
áhugavert tímabil“
Djasssaga Íslands frá 1919 til stríðsloka á Rás 1
Vernharður
Linnet
Frumkvöðlar Í lok þáttanna eru Íslendingar í aðalhlutverkum, þar á meðal
Bjarni Böðvarsson, Sveinn Ólafsson og Þorvaldur Steingrímsson.
Tríó saxófónleikarans Sigurðar
Flosasonar kemur fram í kvöld
og heldur tónleika á Kex hosteli
og eru þeir hluti af djasssumar-
tónleikaröð staðarins. Með Sig-
urði leika hamm-
ond-orgelleikarinn Þórir Baldurs-
son og trommuleikarinn Einar
Scheving. Tríóið mun flytja blús-
blandaða djasstónlist. Tónleikarn-
ir hefjast kl. 20.30 og verða um
tveggja klukkustunda langir, með
hléi. Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
KEX hostel er á Skúlagötu 28 í
Reykjavík.
Iðinn Sigurður Flosason saxófónleikari er iðinn við tónleikahald.
Tríó Sigurðar leikur blúsaðan djass
Gagnrýnandi breska blaðsins The
Observer valdi verk Ragnars Kjart-
anssonar á aðalsýningu Feneyja-
tvíæringsins, fleyið S.S. Hangover,
eitt af tíu hinum áhugaverðustu á
þessari viðamiklu sýningu. Mörg
hundruð listamenn eiga verk á
tvíæringnum; á aðalsýningunni sem
Massimiliano Gioni stýrir, í skálum
þjóðlandanna, þar sem Katrín Sig-
urðardóttir er fultrúi Íslands, eða á
öðrum sýningum eins og „Personal
Structures“, þar sem Gjörninga-
klúbburinn tekur þátt.
Verk Ragnars, S.S. Hangover, er
gamall fiskibátur frá Reykjavík sem
hefur gengið gegnum breytingar og
siglir á milli viðkomustaða í frægri
skipakví Feneyja daglega fram á
haust. Um borð er blásarasveit sem
leikur látlaust tregafullt tónverk eft-
ir Kjartan Sveinsson.
Í umfjöllun sinni segir rýnir Ob-
server verk Ragnars hafa snortið
hvern þann sem nam staðar til að
hlusta á tónlistina sem barst frá
bátnum meðan báturinn sigldi fram
og til baka. Verkið verður sýnt fram
í nóvember, siglandi með blásurum.
Ljósmyndir birtar með leyfi i8 gallerís
Áhugavert S.S. Hangover siglir á milli viðkomustaða í frægri skipakví.
The Observer valdi verk
Ragnars eitt hið besta
Listamennirnir Kjartan Sveinsson
og Ragnar Kjartansson í Feneyjum.
Á vef Borgar-
bókasafnsins má
nú finna sk. Ís-
landskort bók-
menntanna, kort
sem starfsmenn
safnsins hafa
útbúið. Sögusvið
eða áhrifastaðir
skáldsagna af
ýmsu tagi hafa
verið merktir inn
á kort af Íslandi með prjónum og þá
að langmestu leyti íslenskra skáld-
sagna. Þegar smellt er á prjón birt-
ist mynd af kápu bókar, stutt lýsing
á henni og í sumum tilfellum texta-
brot eða tengill á ritdóma.
„Tilgangur kortlagningarinnar er
að auðvelda áhugasömum ferða-
mönnum og almennum lesendum að-
gang að efni um tiltekna staði og
svæði á landinu en í hefðbundnum
bókasafnskerfum eru skáldverk ekki
efnistekin samkvæmt staðsetningu á
landakorti,“ segir m.a. í tilkynningu
vegna þessa. Í þessu felist mikilvæg
og skemmtileg viðbót við hefð-
bundnari ferðabækur, auk þess sem
áhugasamir lesendur geti betur átt-
að sig á staðsetningum og tilvís-
unum verkanna, þó þeir sitji heima í
stofu. Kortið sé í stöðugri vinnslu og
starfsmenn safnsins þiggi góðar
ábendingar frá lesendum um bækur
og staði.
Af einstökum verkum má nefna
Eins og steinn sem hafið fágar eftir
Guðberg Bergsson frá árinu 1998
sem birtist þegar smellt er á prjón
sem stungið hefur verið í Grindavík
en í þeim bæ fæddist Guðbergur árið
1932 og ólst þar upp. „Sagan um
steininn sem hafið fágar er óður um
lítið timburhús við sjó, óður um fá-
tækt og óupplýst fólk sem býr yfir
miklu viti og djúpum tilfinningum,“
segir m.a. um bókina.
Íslandskort
bókmenntanna
Guðbergur
Bergsson
Hverfisgötu 19 551 1200 leikhusid.is midasala@leikhusid.is
VIÐ SÝNUM TILFINNINGAR
Englar alheimsins (Stóra sviðið)
Fös 7/6 kl. 19:30 Fös 14/6 kl. 19:30 Sun 1/9 kl. 19:30
Lau 8/6 kl. 19:30 Lau 15/6 kl. 19:30 Fös 6/9 kl. 19:30
Sun 9/6 kl. 19:30 Þri 30/7 kl. 19:30 Lau 7/9 kl. 19:30
Fim 13/6 kl. 19:30 Lau 31/8 kl. 19:30 Sun 8/9 kl. 19:30
"Fullkomin útfærsla á skáldsögunni" SÁS Fréttablaðið
Dýrin í Hálsaskógi (Stóra sviðið)
Sun 9/6 kl. 14:00 Sun 1/9 kl. 14:00 Aukas.
Sun 25/8 kl. 14:00 Aukas. Sun 8/9 kl. 14:00 Aukas.
Örfáar aukasýningar í haust - komnar í sölu
Kvennafræðarinn (Kassinn)
Fim 6/6 kl. 19:30 Lau 8/6 kl. 19:30
Brjálæðislega góð sýning!
Patch Adams - fyrirlestur (Stóra sviðið)
Fim 6/6 kl. 19:30
Stöngin inn! (Stóra sviðið)
Sun 16/6 kl. 19:30
Leikfélag Fjallabyggðar sýnir áhugaverðustu áhugasýningu ársins
Mary Poppins (Stóra sviðið)
Mið 5/6 kl. 19:00 aukas Fös 6/9 kl. 19:00 ný sýn. Lau 14/9 kl. 19:00 ný sýn.
Fim 6/6 kl. 19:00 Lau 7/9 kl. 19:00 ný sýn. Sun 15/9 kl. 15:00 ný sýn.
Fös 7/6 kl. 19:00 Sun 8/9 kl. 15:00 ný sýn. Fim 19/9 kl. 19:00 ný sýn.
Lau 8/6 kl. 19:00 Fim 12/9 kl. 19:00 ný sýn. Fös 20/9 kl. 19:00 ný sýn.
Sun 9/6 kl. 13:00 Fös 13/9 kl. 19:00 ný sýn. Lau 21/9 kl. 19:00 ný sýn.
Einn vinsælasti söngleikur heims, loks á Íslandi. Nýjar sýningar komnar í sölu!
Gullregn (Stóra sviðið)
Þri 11/6 kl. 20:00 aukas. Fim 13/6 kl. 20:00 Lau 15/6 kl. 20:00 lokas
Mið 12/6 kl. 20:00 Fös 14/6 kl. 20:00
Frumraun Ragnars Bragasonar í leikhúsi. Allra síðustu sýningar.
Mýs og menn (Stóra sviðið)
Sun 9/6 kl. 20:00 lokas
Meistaraverkið eftir John Steinbeck.
Núna! (Litla sviðið)
Þri 4/6 kl. 20:00 lokas
Þrjú ný íslensk verk eftir ung og öflug leikskáld í einni sýningu.
Circus Cirkör: Wear it like a crown (Stóra sviðið)
Fim 4/7 kl. 20:00 Lau 6/7 kl. 20:00 Mán 8/7 kl. 20:00
Fös 5/7 kl. 20:00 Sun 7/7 kl. 20:00 Þri 9/7 kl. 20:00
Í samstarfi við Norræna húsið. Meginsýning Volcano sirkushátíðarinnar.
Tengdó (Litla sviðið)
Fös 7/6 kl. 20:00 lokas
Grímusýning síðasta leikárs. Allra síðustu sýningar.
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gullregn – allt að seljast upp!