Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Síða 8
Baldur fékk tvö högg í and-
litið, sár á nefið og
brunasár á bakið í la-
ser tag.
BALDUR RAGNARSSON FÉKK TILNEFNINGU TIL GRÍMUVERÐ-
LAUNA, FRUMSÝNDI LEIKRIT, SLASAÐIST Í ANDLITI, KLÁRAÐI
PLÖTU OG FESTI KAUP Á DRAUMAGÍTARNUM Í VIKUNNI
honum var
þó líklega að
ná að festa
kaup á forláta
Gibson Explo-
rer gítar frá
1991. „Ég hef
lengi haft
augastað á
og ég með glóð-
arauga. Fékk tvö
högg í andlitið og
sár á nefið. Það
var dásamlegt,“
segir Baldur og
hlær.
Hápunktur
vikunnar hjá
„Þetta er bara búin að vera draumavika.
Biddu fyrir þér,“ segir Baldur Ragnarsson,
leikari og gítarleikari í Skálmöld.
Baldur skartar nú myndarlegu glóð-
arauga en hann er í leikhópnum Lottu sem
frumsýndi Gilitrutt í síðustu viku. „Við héld-
um frumsýningarteiti að sjálfsögðu og þar
var meðal annars farið í laser tag. Leikar
hitnuðu mjög og það komu þrír blóðgaðir út
þessum gítar. Ég er búinn að spila á gítar
bróður míns í smá tíma en þetta er meiri
þungarokksgítar. Ég græjaði hann eins og
ég vildi hafa hann og þetta er orðinn æv-
intýralegur gripur.
Formið á gítarnum hefur alltaf heillað
mig mikið. Þetta startrekk form er ynd-
islegt.“
Á fimmtudag hlaut Baldur svo tilnefningu
til Grímuverðlauna. „Við Gunni Ben, Krist-
inn Gauti og Halldór fengum tilnefningu til
Grímunnar í flokknum Hljóðmynd ársins
2013 fyrir Dýrin í Hálsaskógi. Það er heldur
betur gleðiefni og gríðarlega gaman.“
Þar með er vísan aðeins hálfkveðin því
Ljótu Hálfvitarnir, þar sem Baldur spilar og
syngur, kláruðu plötuna sína í vikunni sem
leið en hún kemur út innan skamms. „Hún
er frábær. Henni verður fylgt eftir. Svo er
Skálmöld að spila út um allt og Gillitrut að
sýna út um allt land. Svo verður Skálmöld í
Evróputúr í einn og hálfan mánuð í sumar.“
Það verður því nóg um að vera hjá Baldri í
sumar og ekkert sumarfrí framundan. „En
eftir sumarið ætla ég að stinga af til Suður
Ameríku í nokkra mánuði. Fara í smá pásu.“
Gítar, frumsýning,
plata, tilnefning
og glóðarauga
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.6. 2013
Það er við hæfi að ávarpa sjómenn í dag endaer þetta þeirra dagur. Sjómannadagurinnmun fyrst hafa verið haldinn hátíðlegur árið
1938. Hann er jafnan fyrsti sunnudagur í júní nema
þegar hvítasunnu ber upp á þann dag, þá er hann
næsti sunnudagur þar á eftir. Frá því á öndverðri
öldinni sem leið mun það hins vegar hafa tíðkast að
halda sérstakar sjómannamessur í kirkjum áður en
skip héldu til veiða eftir vetrarlægi. Öll eigum við
einhverjar tengingar við sjóinn og sjómennsku en
þó mismiklar. Mín tengsl liggja fremur inn til lands-
ins en til sjávarins þótt ekki þurfi ég langt að leita til
að finna tengingar út á sjó.
Þannig stundaði afi minn Ögmundur, bóndi og
ökumaður í Hólabrekku á Grímsstaðaholti í
Reykjavík, útræði í Skerjafirði og eitthvað út á
Faxaflóann. Hann réri til grásleppu- og rauðmaga-
veiða á vorin til að draga björg í bú þótt það væri
aðeins brot af hans lífsbjargarviðleitni. Þetta minn-
ir hins vegar á að flest býli nærri sjávarsíðunni
reiddu sig að einhverju leyti á sjávarfangið fram
undir miðja síðustu öld. Þótt við værum þá í þann
veginn að ganga inn í borgarsamfélagið hafði ekki
enn verið tekin upp félagsleg verkaskipting í þeim
mæli sem síðar varð. Að mörgu leyti sakna ég grá-
sleppukarlanna við Ægisíðuna þegar þeir komu að
landi með aflann við mikla hrifningu og spenning
okkar krakkanna. Ég er fæddur um miðja síðustu
öld en það er ekki lengra síðan en svo að Ægisíðan í
Reykjavík var enn vettvangur sjávarútvegsins.
Þannig mátti þá enn sjá fisk breiddan út til þurrk-
unar upp af austanverðri Ægisíðunni.
Önnur tenging við sjóinn úr minni fjölskyldu er
konu minnar megin og minnir okkur á samfélag
fyrri tíðar. Langafi hennar, Jóakim, var fæddur og
uppalinn á Búðum á Snæfellsnesi en þar var þá
mannmargt enda stutt í kistur hafsins að sækja lífs-
viðurværið. Á Búðum var heilsársbúseta en í ver-
stöðvunum utar á sunnanverðu Snæfellsnesinu var
aðeins búseta á vertíðum, til dæmis í Dritvík, einni
helstu verstöðinni, þaðan sem 600 til 700 manns
réru til fiskjar þegar mest var. Hákarlaveiðar voru
stundaðar frá Búðum fram á fjórða áratug síðustu
aldar og kann það að hafa valdið því að Jóakim, há-
karlaformaður, hélt norður á Strandir með dætur
sínar tvær eftir að hann hafði misst konu sína. Við
Húnaflóann stundaði hann sjóinn og hélt jafnframt
sinni litlu fjölskyldu í hlýjum föðurfaðmi.
Þriðja tengingin sem ég nefni er við togara-
útgerðina. Ég hlustaði ungur á frásagnir af Hans,
móðurbróður mínum, sem á sínum yngri árum var
háseti á togara hjá frænda sínum, Snæbirni, bróður
þeirra Sigvalda Kaldalóns og Eggert Stefánssonar
óperusöngvara. Þegar Hans ætlaði að hverfa til
annarra starfa kom Snæbjörn skipstjóri á fund
ömmu minnar, Ingibjargar í Hólabrekku, og bað
hana lengstra orða að beita sér fyrir því að Hans
sonur hennar hætti ekki á sjónum. „Hann hefur svo
góð áhrif á starfsandann um borð, hann er söngvinn
og alltaf í góðu skapi. Það skiptir ekki litlu máli að
hafa slíka menn í áhöfn á skipi,“ sagði Snæbjörn
skipstjóri – sem svo aftur minnir okkur á að á skip-
um – ekki síst þeim sem halda lengi úti – eru lítil
sjálfstæð samfélög. Það á við um þessi litlu samfélög
eins og okkar stóra, að andinn skiptir máli.
Stóra samfélagið í litlu samfélögunum, á bátunum
og skipunum, á mikla skuld að gjalda – nú sem fyrr.
Við þurfum að hlúa að sjómennskunni og sýna henni
ræktarsemi og virðingu. Það er gott að hugsa til
hinnar sögulegu rótar. Til hamingju með daginn!
Ögmundur, Jóakim og Hans
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Kastljóssstjarnan Helgi Seljan
lýsti gleði sinni á fésbókinni í vikunni
yfir því að styrkur
hans við fjár-
mögnun á Bulsum
um rúmar tvö þús-
und krónur hefði
orðið til þess að
hann hlaut að launum Bulsupakka.
„Líður eins og splæsi af Warren
Buffet, Nýsköpunarsjóði og Nelson
Mandela. Og allt þetta fyrir andvirði
tveggja sígarettupakka.“
Aron Jóhannsson, knatt-
spyrnumaður hjá AZ Alkmaar,
stendur frammi fyrir því að að velja
á milli Íslands og
Bandaríkjanna. Ar-
on má spila með
báðum landsliðum.
Hann vildi fá
umhugsunarfrest
og spunnust miklar umræður um
málið á Twitter.
Tómas Þór Þórðarson,
íþróttaspekúlant Morgunblaðsins
og umsjónarmaður fótbolta.net-
útvarpsþáttarins, benti á að eflaust
væri ekkert sniðugt fyrir Aron að
kíkja til Íslands í frí.
„Eflaust stuð fyrir Aron að kíkja í
bæinn núna. Íslendingar svo feimnir
í glasi að þeir myndu eflaust ekkert
vilja ræða þetta mál við hann,“ sagði
Tómas Þór í kaldhæðni.
Hannes Friðbjarnarson,
Eurovision-fari og Buffari, var ekki
hrifinn af því að Aron skyldi taka
sér umhugsunarfrest: „Þessi Aron?
Er þetta Tevez Íslands? Vesenisti! Er
Klinsmann með hann a speeddial?“
#ísland!! #fotbolti
Heiða Kristín
Helgaóttir, ann-
ar formanna
Bjartrar framtíðar,
var í innkaupaleið-
angri í vikunni.
„Fjárfesti í nýju
rúmi í gær. Það er
strax búið að hafa töluverð áhrif á
líf mitt. Svaf tvo tíma yfir mig og
Snorrabarn með.“
Magnús Halldórsson frétta-
maður birti mynd
af Toffee-mola en
hann er ekki hrifinn
af hnetunni í miðj-
unni. „Hér má sjá
hvernig má eyði-
leggja góða hug-
mynd. Hér hefur einhver þrjótur
laumað óætri hnetu inn í annars fína
samsetningu karmellu og súkku-
laðis. Ófyrirgefanlegt.“
AF NETINU
Vettvangur
Baldur segir að vikan hafi
verið draumi líkust þrátt
fyrir glóðaraugað.
Morgunblaðið/Eggert