Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Blaðsíða 8
Baldur fékk tvö högg í and- litið, sár á nefið og brunasár á bakið í la- ser tag. BALDUR RAGNARSSON FÉKK TILNEFNINGU TIL GRÍMUVERÐ- LAUNA, FRUMSÝNDI LEIKRIT, SLASAÐIST Í ANDLITI, KLÁRAÐI PLÖTU OG FESTI KAUP Á DRAUMAGÍTARNUM Í VIKUNNI honum var þó líklega að ná að festa kaup á forláta Gibson Explo- rer gítar frá 1991. „Ég hef lengi haft augastað á og ég með glóð- arauga. Fékk tvö högg í andlitið og sár á nefið. Það var dásamlegt,“ segir Baldur og hlær. Hápunktur vikunnar hjá „Þetta er bara búin að vera draumavika. Biddu fyrir þér,“ segir Baldur Ragnarsson, leikari og gítarleikari í Skálmöld. Baldur skartar nú myndarlegu glóð- arauga en hann er í leikhópnum Lottu sem frumsýndi Gilitrutt í síðustu viku. „Við héld- um frumsýningarteiti að sjálfsögðu og þar var meðal annars farið í laser tag. Leikar hitnuðu mjög og það komu þrír blóðgaðir út þessum gítar. Ég er búinn að spila á gítar bróður míns í smá tíma en þetta er meiri þungarokksgítar. Ég græjaði hann eins og ég vildi hafa hann og þetta er orðinn æv- intýralegur gripur. Formið á gítarnum hefur alltaf heillað mig mikið. Þetta startrekk form er ynd- islegt.“ Á fimmtudag hlaut Baldur svo tilnefningu til Grímuverðlauna. „Við Gunni Ben, Krist- inn Gauti og Halldór fengum tilnefningu til Grímunnar í flokknum Hljóðmynd ársins 2013 fyrir Dýrin í Hálsaskógi. Það er heldur betur gleðiefni og gríðarlega gaman.“ Þar með er vísan aðeins hálfkveðin því Ljótu Hálfvitarnir, þar sem Baldur spilar og syngur, kláruðu plötuna sína í vikunni sem leið en hún kemur út innan skamms. „Hún er frábær. Henni verður fylgt eftir. Svo er Skálmöld að spila út um allt og Gillitrut að sýna út um allt land. Svo verður Skálmöld í Evróputúr í einn og hálfan mánuð í sumar.“ Það verður því nóg um að vera hjá Baldri í sumar og ekkert sumarfrí framundan. „En eftir sumarið ætla ég að stinga af til Suður Ameríku í nokkra mánuði. Fara í smá pásu.“ Gítar, frumsýning, plata, tilnefning og glóðarauga 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.6. 2013 Það er við hæfi að ávarpa sjómenn í dag endaer þetta þeirra dagur. Sjómannadagurinnmun fyrst hafa verið haldinn hátíðlegur árið 1938. Hann er jafnan fyrsti sunnudagur í júní nema þegar hvítasunnu ber upp á þann dag, þá er hann næsti sunnudagur þar á eftir. Frá því á öndverðri öldinni sem leið mun það hins vegar hafa tíðkast að halda sérstakar sjómannamessur í kirkjum áður en skip héldu til veiða eftir vetrarlægi. Öll eigum við einhverjar tengingar við sjóinn og sjómennsku en þó mismiklar. Mín tengsl liggja fremur inn til lands- ins en til sjávarins þótt ekki þurfi ég langt að leita til að finna tengingar út á sjó. Þannig stundaði afi minn Ögmundur, bóndi og ökumaður í Hólabrekku á Grímsstaðaholti í Reykjavík, útræði í Skerjafirði og eitthvað út á Faxaflóann. Hann réri til grásleppu- og rauðmaga- veiða á vorin til að draga björg í bú þótt það væri aðeins brot af hans lífsbjargarviðleitni. Þetta minn- ir hins vegar á að flest býli nærri sjávarsíðunni reiddu sig að einhverju leyti á sjávarfangið fram undir miðja síðustu öld. Þótt við værum þá í þann veginn að ganga inn í borgarsamfélagið hafði ekki enn verið tekin upp félagsleg verkaskipting í þeim mæli sem síðar varð. Að mörgu leyti sakna ég grá- sleppukarlanna við Ægisíðuna þegar þeir komu að landi með aflann við mikla hrifningu og spenning okkar krakkanna. Ég er fæddur um miðja síðustu öld en það er ekki lengra síðan en svo að Ægisíðan í Reykjavík var enn vettvangur sjávarútvegsins. Þannig mátti þá enn sjá fisk breiddan út til þurrk- unar upp af austanverðri Ægisíðunni. Önnur tenging við sjóinn úr minni fjölskyldu er konu minnar megin og minnir okkur á samfélag fyrri tíðar. Langafi hennar, Jóakim, var fæddur og uppalinn á Búðum á Snæfellsnesi en þar var þá mannmargt enda stutt í kistur hafsins að sækja lífs- viðurværið. Á Búðum var heilsársbúseta en í ver- stöðvunum utar á sunnanverðu Snæfellsnesinu var aðeins búseta á vertíðum, til dæmis í Dritvík, einni helstu verstöðinni, þaðan sem 600 til 700 manns réru til fiskjar þegar mest var. Hákarlaveiðar voru stundaðar frá Búðum fram á fjórða áratug síðustu aldar og kann það að hafa valdið því að Jóakim, há- karlaformaður, hélt norður á Strandir með dætur sínar tvær eftir að hann hafði misst konu sína. Við Húnaflóann stundaði hann sjóinn og hélt jafnframt sinni litlu fjölskyldu í hlýjum föðurfaðmi. Þriðja tengingin sem ég nefni er við togara- útgerðina. Ég hlustaði ungur á frásagnir af Hans, móðurbróður mínum, sem á sínum yngri árum var háseti á togara hjá frænda sínum, Snæbirni, bróður þeirra Sigvalda Kaldalóns og Eggert Stefánssonar óperusöngvara. Þegar Hans ætlaði að hverfa til annarra starfa kom Snæbjörn skipstjóri á fund ömmu minnar, Ingibjargar í Hólabrekku, og bað hana lengstra orða að beita sér fyrir því að Hans sonur hennar hætti ekki á sjónum. „Hann hefur svo góð áhrif á starfsandann um borð, hann er söngvinn og alltaf í góðu skapi. Það skiptir ekki litlu máli að hafa slíka menn í áhöfn á skipi,“ sagði Snæbjörn skipstjóri – sem svo aftur minnir okkur á að á skip- um – ekki síst þeim sem halda lengi úti – eru lítil sjálfstæð samfélög. Það á við um þessi litlu samfélög eins og okkar stóra, að andinn skiptir máli. Stóra samfélagið í litlu samfélögunum, á bátunum og skipunum, á mikla skuld að gjalda – nú sem fyrr. Við þurfum að hlúa að sjómennskunni og sýna henni ræktarsemi og virðingu. Það er gott að hugsa til hinnar sögulegu rótar. Til hamingju með daginn! Ögmundur, Jóakim og Hans ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Kastljóssstjarnan Helgi Seljan lýsti gleði sinni á fésbókinni í vikunni yfir því að styrkur hans við fjár- mögnun á Bulsum um rúmar tvö þús- und krónur hefði orðið til þess að hann hlaut að launum Bulsupakka. „Líður eins og splæsi af Warren Buffet, Nýsköpunarsjóði og Nelson Mandela. Og allt þetta fyrir andvirði tveggja sígarettupakka.“ Aron Jóhannsson, knatt- spyrnumaður hjá AZ Alkmaar, stendur frammi fyrir því að að velja á milli Íslands og Bandaríkjanna. Ar- on má spila með báðum landsliðum. Hann vildi fá umhugsunarfrest og spunnust miklar umræður um málið á Twitter. Tómas Þór Þórðarson, íþróttaspekúlant Morgunblaðsins og umsjónarmaður fótbolta.net- útvarpsþáttarins, benti á að eflaust væri ekkert sniðugt fyrir Aron að kíkja til Íslands í frí. „Eflaust stuð fyrir Aron að kíkja í bæinn núna. Íslendingar svo feimnir í glasi að þeir myndu eflaust ekkert vilja ræða þetta mál við hann,“ sagði Tómas Þór í kaldhæðni. Hannes Friðbjarnarson, Eurovision-fari og Buffari, var ekki hrifinn af því að Aron skyldi taka sér umhugsunarfrest: „Þessi Aron? Er þetta Tevez Íslands? Vesenisti! Er Klinsmann með hann a speeddial?“ #ísland!! #fotbolti Heiða Kristín Helgaóttir, ann- ar formanna Bjartrar framtíðar, var í innkaupaleið- angri í vikunni. „Fjárfesti í nýju rúmi í gær. Það er strax búið að hafa töluverð áhrif á líf mitt. Svaf tvo tíma yfir mig og Snorrabarn með.“ Magnús Halldórsson frétta- maður birti mynd af Toffee-mola en hann er ekki hrifinn af hnetunni í miðj- unni. „Hér má sjá hvernig má eyði- leggja góða hug- mynd. Hér hefur einhver þrjótur laumað óætri hnetu inn í annars fína samsetningu karmellu og súkku- laðis. Ófyrirgefanlegt.“ AF NETINU Vettvangur Baldur segir að vikan hafi verið draumi líkust þrátt fyrir glóðaraugað. Morgunblaðið/Eggert
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.