Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.6. 2013
Heilsa og hreyfing
Sumarið býður sérstaklega upp á að vera virkur í hreyfingu, eins og aðvera meira úti, þvo bílinn, hlúa að matjurtunum og garðinum, hjólameira og ganga meira. Það er því gaman að velta aðeins fyrir sér
hversu mikilli orku við eyðum í hina ýmsu hreyfingu. Landlæknir ráð-
leggur fullorðnum að hreyfa sig minnst 30 mín. á dag. Hér er átt við eig-
inlega hreyfingu þar sem tiltölulega mikil orka fer
í hreyfinguna, að minnsta kosti létt ganga. Það
getur samt verið gaman að skoða hvað það fer
mikil orka í að lifa eftir virkum lífsstíl frá degi til
dags. Þegar á heildina er litið getur það skipti
miklu máli að nýta líkamann til framkvæmda þó
að annað sé í boði, eins að taka stigann, hjóla í
vinnuna og þvo bílinn sjálf. Ég fann vefsíðu sem
sýnir orkunýtingu nokkurra athafna. Þessar tölur
eru þó aðeins til viðmiðunar og miðast við orku-
nýtingu (hitaeiningar) á mínútu út frá þyngd ein-
staklings (orkunýting x mín. x kg). Nánar á
www.acefitness.org.
Virkur lífsstíll getur skipt sköpum. Til gamans er hægt að skoða orku-
nýtingu einstaklinga miðað við mismunandi hreyfingu, en það minnir okkur
á að öll hreyfing skiptir máli og allt telur. Virkur lífsstíll alla daga ársins
getur jafnvel haft meira að segja en 60 mínútna kröftug hreyfing 3x í viku
með engri annarri hreyfingu þess á milli.
NÝTUM ORKU LÍKAMANS
VIÐ ERUM SÍFELLT MINNT Á HVAÐ HREYFING ER STÓR HLUTI HEILBRIGÐIS. RANNSÓKNIR SÝNA Æ OFTAR
AÐ HREYFING EYKUR LÍFSLÍKUR OKKAR OG ÞAÐ SEM MEIRA ER BÆTIR LÍFSGÆÐUM VIÐ LÍFIÐ.
Orkunýting 90 kg og
70 kg einstaklinga
(Tölurnar taka ekki mið af kyni
og eru til viðmiðunar).
Stöðvaþjálfun, 45 mín
90 kg einstaklingur nýtir 630 hitaeiningar
og 70 kg einstaklingur nýtir 441 hitaeiningu.
Kröftugur hjólatími, 60 mín.
: 90 kg einstaklingur nýtir 970 hitaein-
ingar og 70 kg einstaklingur nýtir 756 hita-
einingar.
Golfhringur með golfsettið
á öxlinni í 4 tíma
90 kg einstaklingur nýtir 1.728
hitaeiningar og 70 kg einstaklingur nýtir
1.344 hitaeiningar.
Bílaþvottur í 60 mín.
90 kg einstaklingur nýtir 378 hitaeiningar
og 70 kg einstaklingur nýtir
294 hitaeiningar.
Rösk ganga í 30 mín
90 kg einstaklingur nýtir 216 hitaeiningar
og 70 kg einstaklingur nýtir
168 hitaeiningar.
Eldamennska í 30 mín
90 kg einstaklingur nýtir 108 hitaeiningar
og 70 kg einstaklingur nýtir 84 hitaeiningar.
Knús og kossar í 5 mín
90 kg einstaklingur nýtir 9 hitaeiningar og
70 kg einstaklingur nýtir 7 hitaeiningar.
BORGHILDUR
SVERRISDÓTTIR
Heilbrigt
líf
E
ftir margra áratuga bann á ræktun hamp-
plöntunnar í ýmsum löndum eru ný tæki-
færi í hampræktun að líta dagsins ljós.
Bannið var fyrst og fremst sett vegna
hættulegra vímuáhrifa THC-efnisins sem ein teg-
und hamps, kannabis, inniheldur.
Bannið átti hins vegar við um allar hampplöntur
og því var ræktun og notkun á hampi sem ekki
innihélt THC einnig bönnuð, þrátt fyrir að sýnt
hefði verið fram á jákvæð áhrif hans á heilsuna.
Það er í takt við umræðu undanfarinna mánaða
að auka fjölbreytni matvælaframleiðslu í heim-
inum að banninu hefur verið aflétt í mörgum lönd-
um. Margir bændur geta nú ræktað hamp án
THC og framleitt afurðir hans að nýju og hafa
meðal annars verið gerðar tilraunir með slíka
ræktun hér á landi.
Á undanförnum árum hefur átt sér stað við-
horfsbreyting í garð hampsins sem hefur leitt til
fjölda rannsókna og þróunar í hampi svo sem til
notkunar í byggingariðnaði, í plastframleiðslu og
annarri neytendaframleiðslu eins og matvæla.
Ólíkar gerðir hamps fyrir
mismunandi afurðir
Ræktun á hampi hefur átt sér stað frá aldaöðli.
Annars vegar er um að ræða hampplöntu sem vex
upp í nokkurra metra hæð en úr henni eru fram-
leiddar vörur fyrir iðnað eins og kaðlar, strigi,
pappi og textíll. Hins vegar er um að ræða minni
hampplöntu en af henni eru fræin nýtt til að
framleiða ýmiskonar matvæli, s.s olíur, mjólk, te,
orkustykki og próteinduft.
Iðn- og matvælaframleiðsla úr hampi
Kína hefur verið stærsta hampframleiðsluland
heims í gegnum árin, en aukin ræktun fer fram í
Ástralíu, Kanada og Bretlandi. Hampræktun er
enn bönnuð í Bandaríkjunum þar sem allur hamp-
ur er ólöglegur, hvort sem hann inniheldur vímu-
gjafann THC eða ekki. Með aukinni ræktun
hamps og framleiðslu úr honum hafa margar iðn-
greinar orðið „grænni“ og snyrtivöruiðnaðurinn
hefur tekið við sér að nota olíu hampfræja í vörur
sínar.
Hampfræ eru próteinrík
Hampfræ eru einstaklega próteinrík og innihalda
einhver bestu náttúrulegu prótein sem völ er á,
ásamt því að vera rík af lífsnauðsynlegum fitusýr-
um. 25% af næringarefnum hampfræja eru pró-
tein, en þessi prótein eru einstaklega góð og auð-
meltanleg. 65% af próteinum hampfræja eru
svokölluð glóbúlar-prótein, þekkt sem edestín.
Líkaminn notar edestín til að draga úr eiturefnum
í líkamanum og hreinsa hann. Þau eru því talin
góð fyrir lifrina og fyrir alla sem eiga við lifr-
arvandamál að stríða. Edestín er einnig nauðsyn-
legt til að viðhalda góðu ónæmiskerfi. Hin 35% af
próteinum hampfræja eru albúmínprótein, en þau
eru auðmeltanleg og innihalda lifandi ensím sem
draga úr sindurefnum líkamans. Næring úr hamp-
fræjum er því vinsæl hjá íþróttafólki vegna pró-
teinanna en ekki síður vegna góðu fitunnar sem
hampfræin innihalda, en 30% af þyngd hampfræs-
ins er fita.
Hampolían með ákjósanlegt
hlutfall ómega 3 og 6
Óhreinsuð hampolía er grasgræn á lit og ber
ákveðinn hnetukeim, en hún er pressuð úr hamp-
fræjum. Þegar búið er að vinna hana er hún
hrein, litlaus og nánast bragðlaus. Hampolían inni-
heldur mikið af ómega 3- og 6-fitusýrum í ákjós-
anlegum hlutföllum fyrir mannslíkamann eða 1:3.
Rannsóknir sýna að ómega 3-fitusýrur geta dregið
úr bólgum í líkamanum og hjálpað til við að draga
úr líkum á gigt, hjartasjúkdómum og krabba-
meini.
Hampfræin er hægt að borða hrá eða möluð út
í ýmsa rétti. Hampprótein er notað í margskonar
hristinga og bakstur og hampolían er notuð til
matargerðar svo sem til steikingar, út á salat og
almennt notuð líkt og ólífuolía.
www.hemp.com
www.goodhempnutrition.com
HAMPOLÍA FYRIR HEILSUNA
Hampfræ – vannýtt
náttúruleyndarmál?
AFURÐIR HAMPPLÖNTUNNAR ERU NÚ TALDAR HEILSUVÖRUR EN
FRAMLEIÐSLA HAMPS VAR BÖNNUÐ LENGI VEL.
Borghildur Sverrisdóttir borghildur74@gmail.com
Morgunblaðið/Kristinn
30 gr Good Hemp Nutrition, Gym
Shake prótein með súkkulaðibragði
(fæst hjá Supersport, Álfheimum)
1 stappaður banani
50 gr glúteinfríir hafrar t.d. frá Urtek-
ram (má nota venjulega hafra ef þið
þolið vel glútein)
1 tsk kókosolía
1 msk hörfræjamjöl
3 msk vatn
1 tsk vínsteinslyftiduft
1 tsk kanill
2 dropar af stevia
Aðferð Blandið Golden flax seed og
vatninu vel saman og geymið í ísskáp í 15
mínútur til að fá einskonar „eggáferð“. Hitið
ofninn í 180 gráður og setjið allt hitt inni-
haldið í matvinnsluvél til að deigið fái mjúka
áferð. Bætið blöndunni úr ísskápnum út í.
Setjið bökunarpappír á plötu og notið
matskeið til að búa til litlar kökur. Einföld
uppskrift gefur 9 kökur. Bakið í 30 mín og
njótið.
Næringargildi í einni köku:
57 kalóríur, 2,6 gr prótein, 7 gr kolvetni
(þar af 2 gr trefjar), 2,2 gr fita.
Hampsúkkulaði-
kökur
Hampolía (hemp
oil) er ekki ósvipuð
ólífuolíu að lit.