Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Síða 42
*Fjármál heimilannaFerðavenjur Íslendinga hafa breyst og sífellt færri fjölskyldur virðast kjósa að keyra hringveginn
Torfi Stefán Jónsson er Reykvíkingur og
starfar sem framhaldsskólakennari í FÁ,
ásamt því að vera landvörður á Þingvöllum.
Hann lærði það snemma hjá foreldrum sín-
um að nýta hlutina vel en hann vandi sig fljót-
lega á að leggja ávallt peninga fyrir í hverjum
mánuði.
Hvað eruð þið mörg í heimili?
Við erum fjögur í heimili. Ég, eiginkona mín
og svo eigum við tvö börn saman.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?
Ég er ávallt tilbúinn í bakstur svo ég á alltaf til
rjóma, smjör og egg.
Hvað fer fjölskyldan með í mat og
hreinlætisvörur á viku?
Það getur verið mismunandi en það er
örugglega 25-30.000 á viku.
Hvar kaupirðu helst inn?
Ég versla mest við Kost í Kópavogi og við
Þína verslun í Breiðholti. Ég fer í Þína verslun
til að kaupa mér kjöt og á þriðjudögum fer
ég í Kost. Þá eru þeir með svo gott tilboð á
mjólkurlítranum.
Hvað freistar helst í
matvörubúðinni?
Það eru sætindi og þá sérstaklega súkkulaði.
Svo er ég líka mikið fyrir gott kjöt svo það
freistar mín oft.
Hvernig sparar þú í
heimilishaldinu?
Ég spara helst með því að hjóla þangað sem
ég þarf að fara. Við hjónin erum tiltölulega
nýbúin að kaupa okkur bíl en þangað til það
gerðist fór ég út um allt á hjóli.
Hvað vantar helst á heimilið?
Þar sem ég hjóla nú mikið gæti ég vel hugsað
mér að eignast fótanuddstæki. Það væri
mjög þægilegt að geta sett lappirnar í eitt
svoleiðis tæki eftir langan hjólatúr.
Eyðir þú í sparnað?
Já, það geri ég. Ég er nýkominn úr námi svo
ég hef undanfarið ekki lagt háa upphæð fyrir
í hverjum mánuði. Það fer að breytast núna
og framvegis mun ég leggja töluvert meira
fyrir í hverjum mánuði.
Skothelt sparnaðarráð?
Fyrir utan að hjóla hef ég þá stefnu að eyða
aðeins þeim peningum sem ég á inni á bók
og taka aldrei lán. Þegar ég er búinn með
mínar mánaðartekjur hætti ég að kaupa mér
hluti.
NEYTANDI VIKUNNAR ER TORFI STEFÁN JÓNSSON
Að nota hjólið borgar sig
Torfi Stefán Jónsson er fjölskyldufaðir búsettur
í Breiðholti. Hann reynir að hjóla sem mest og
kaupir sér aðeins hluti ef hann á fyrir þeim.
Öllum er okkur reglulega boðið
í alls kyns samkvæmi, hvort sem
það eru útskriftir, afmæli eða ferm-
ingar. Við slík tilefni er venja að
koma með gjöf en aurapúkinn er
með nokkur góð ráð til sparnaðar í
þeim efnum. Búðu frekar til eigin
gjöf eða gefðu gjöf með öðrum.
Heimatilbúin gjöf er innilegri og
handskrifað kort með gjöfinni gerir
hana sérstakari.
Skrifaðu niður á lista það sem þig
vantar áður en þú ferð í búðina.
Haltu þig við listann og ekki setja
neitt í körfuna sem er ekki á listan-
um, sama hversu freistandi varan
er.
Íslendingar eyða árlega háum
fjárhæðum í skyndibitaát. Eldaðu
frekar hollan og ódýrari mat heima
hjá þér og þú græðir ekki aðeins í
peningum, heldur verður heilsan
betri.
Vertu dugleg/ur að fara á alls
kyns markaði. Hægt er að gera
mjög hagkvæm kaup, hvort sem þig
vantar ný húsgögn eða föt.
púkinn
Aura-
Gefðu heima-
tilbúna gjöf
Þ
jóðvegur 1 eða hringvegurinn
er vegur sem liggur um Ís-
land og tengir saman flestöll
byggileg héruð á Vestur-,
Norður-, Austur- og Suðurlandi. Að
„fara hringinn“ hefur löngum verið
vinsælt en akstur um hringveginn á
bíl með 10 lítra eyðslu á hverja
hundrað kílómetra kostar rúmar 32
þúsund krónur miðað við meðalverð
á bensíni í maí. Árið 2009 kostaði
tæpar 22 þúsund krónur að taka
bensín til að fara hringinn og hefur
kostnaður því hækkað um 49% á
fimm árum. Vegurinn er samtals
1.333 km á lengd og liggur um alla
landshluta nema Vestfirði og miðhá-
lendið.
,,Það hefur dregið alveg svakalega
úr þessu sökum krísunnar og hátt
eldsneytisverð hjálpar náttúrlega
ekki til. Þetta er mikill kostnaður
fyrir tekjulágt fólk og ef við miðum
við bíl sem eyðir tíu lítrum á hundr-
aðið þá kostar það tugi þúsunda að
fara hringveginn. Þetta gerir fólki
erfiðara fyrir að rækta tengslin við
ættingja og vini og svo er þetta vont
fyrir atvinnulífið á landsbyggðinni,“
segir Stefán sem telur víst að elds-
neytisverð letji innlenda ferðamenn
til að fara hringinn.
Friðleifur Ingi Brynjarsson, verk-
efnastjóri hjá Vegagerðinni, tekur í
sama streng og Stefán og segir um-
ferðina um þjóðveg 1 hafa snarm-
innkað seinustu ár: ,,Þetta hefur
minnkað alveg rosalega frá hruni og
botninum var náð árið 2011. Í fyrsta
skiptið frá árinu 2009 erum við að
sjá aukningu og við gerum ráð fyrir
að aukningin í umferð á hringvegin-
um í ár verði um 2-3%,“ segir hann.
Bensínlítrinn kostar nú um 246
krónur en um helmingur þess gjalds
rennur beint í kassa ríkisins. Hlutfall
álagðra gjalda sem renna í ríkissjóð
hefur haldist óbreytt síðustu fimm
ár. Stefáni þykir skattlagningin
ósanngjörn og telur að tími sé kom-
inn til að stjórnvöld endurskoði
þessa stefnu. ,,Helmingurinn af
eldsneytisverðinu er skattar. Það er
frekar stór biti og ef skattarnir eru
farnir að vera því til trafala að fólk
ferðist um landið sitt þá er það
mjög slæmt mál. Þetta er einnig
slæmt fyrir ferðaþjónustuna og aðra
þjónustuaðila sem taka á móti fólki
og hafa ofan af fyrir því þegar það
kemur út á landsbyggðina,“ segir
hann.
Meðaleyðslan
þarf að minnka
Þegar skoðaðar eru tölur frá Um-
ferðarstofu og tekið er mið af átta
algengustu bílategundum hér á
landi árið 2010, eyddi hver bíll að
meðaltali 5,6 lítrum á hundraðið.
Meðalbíllinn af árgerðinni 2003
eyðir að meðaltali 7,3 lítrum en
eyðslugrennstu nýju bílarnir eyða
hins vegar undir fjórum lítrum á
hundraði. ,,Það þarf að ná með-
aleyðslu bílaflotans niður og það
gerist ekki nema við endurnýjum
bílaflotann. Bílaflotinn okkar er einn
sá elsti í Evrópu en það hefur orðið
mikil þróun í bílaiðnaði heimsins á
seinustu 15 árum. Eyðslan hefur
farið niður um helming og mengun
frá bílunum niður um 90%,“ segir
Stefán og telur að fleiri myndu fara
hringinn ef unnt yrði að skipta yfir í
nýrri og eyðslugrennri bíla.
ÁHRIF BENSÍNVERÐS Á FERÐAVENJUR LANDSMANNA
Hringurinn hækkar í verði
HIN KLASSÍSKA HRINGLEIÐ SEM FJÖLSKYLDUR LANDSINS ÓKU GJARNAN Á SUMRIN ER Í DAG EKKI JAFN FJÖLFARIN, AÐ
SÖGN RITSTJÓRA FÍB. HANN SEGIR OPINBER GJÖLD Á BENSÍNI VERA OF HÁ OG TELUR AÐ ÞÖRF SÉ Á BREYTINGUM.
FYRIR HVERN BENSÍNLÍTRA SEM SELDUR ER TIL NEYTENDA RENNUR UM HELMINGUR BEINT Í VASA RÍKISINS.
Páll Fannar Einarsson pfe@mbl.is
Hvað kostar að aka hringveginn?
Bensínbíll sem eyðir 10 l/100 km. Miðað er við meðalverð á bensíni í maí.
1.333 km
Heildar eldsneytiskostnaður við að keyra hringveginn (kr.)
Þar af opinber gjöld (kr.)
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
35.000
30.000
25.000
20.000
15.000
10.000
5.000
0
20102009 20122011 2013
10.635
21.609
14.034
27.742
15.355
31.856
16.209
34.247
15.758
32.159