Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Page 49
„Ég hef oft skíðað í svona smjöri þar sem ég hef getað
skíðað frá ef eitthvað fer af stað, eins og gerðist fyrr í
ferðinni og hefur gerst oft á minni skíðaævi,“ segir
hann.
„En þetta var eitthvert draugaflóð sem læddist rólega
og hljóðlega aftan að mér og vildi ná mér niður. Eftir
þennan skell varð mér hugsað til skáldsögunnar Ég man
þig eftir Yrsu Sigurðardóttur sem Búbbi kapteinn á
skútunni Auroru rétti mér og sagði mér að lesa þegar
hann sá að ég kom um borð með Reykjavíkurnætur eft-
ir Arnald Indriðason í farteskinu.“
– Þetta hefur verið ónotaleg tilfinning?
„Nei, veistu það að ég fékk hana aldrei. Það var þá
frekar að ég varð svekktur af því að þetta flóð
skemmdi sporið mitt – og svo kannski líka „orðsporið
mitt“. Þetta var eins og að detta í brauðdeigi og það
kom ekki þessi massi sem flóðin pakka oft utanum fólk
sem lendir í þeim. Margir hafa lent í svipuðu, en fæstir
fengið það eins vel myndað og þetta tiltekna atvik.“
Hann segist ekki hafa verið nálægt því að grafast
undir, en á síðustu metrunum, eftir að hafa runnið um
50 til 60 metra, þá hafði hann snúist á hvolf í flóðinu.
„Þar sem ég hélt mér fast í stafina, þá gat ég stýrt
mér svolítið. Og ég er ekki frá því að bakpokinn hafi
hjálpað mér.“
Halldór fór strax úr öðru skíðinu en hélst lengur í
hinu. „Ég var að prófa 2014 árgerðina af Völkl fjalla-
skíðum með Marker Duke bindingum, sem Fjallakofinn
er að byrja að flytja inn í haust. Óhætt er að segja að
þetta hafi reynt vel á þau og ég fór úr báðum skíð-
unum, en seinna skíðinu alveg undir lokin. Ég veit að
Guð er alltaf með mér hvert sem ég fer, og á meðan
að við ferðumst saman þá lifi ég, þrátt fyrir ýmsan
glannaskap í gegnum árin.“
Ef ekki er fyllstu varkárni gætt er hættan töluverð á
að lenda í snjóflóði ef fólk stundar fjallaskíði, að sögn
Halldórs. „Þú verður að nálgast fjallið sem þú ætlar að
skíða með virðingu og nærgætni og þá áttu góða ferð
og gott spor.“ Og það er margt sem heillar. „Samveran
með góðum vinum, áskorunin við að sigra fjallið og
skíða það, og þú ert ekki að binda þig við tíma og
tæki, þ.e. hvar sem er snjór þar getur þú farið.“
Hann segir Jökulfirðina og Tröllaskagann standa upp
úr hjá sér. „Þyrluskíðun á Tröllaskaganum með Arctic
Heli Skiing er í heimsklassa, en samt er ég með stærra
bros og meiri orku á batteríinu eftir vikulanga skútu-
og skíðaferð inn í Jökulfirðina þar sem þú slítur allt
samband við síma og net og Búbbi kapteinn hjá Borea
Adventures stýrir þessu skútuferðalagi betur en hægt er
að stýra þjóðarskútunni.“
Fjallaskíðin njóta ört vaxandi vinsælda á Íslandi, að
sögn Halldórs. „Og til þess að vera með þarf maður
bæði að vera virkur iðkandi og líka að sækja í nýjungar
til að koma með inn á markaðinn eins og við erum allt-
af að gera í Fjallakofanum,“ segir hann með áherslu –
og staldrar ekki lengi við. „Núna er ég staddur með
skemmtilegum hópi „eldri borgara“ í gönguferð á Ítalíu
og við vorum að gantast með að við hefðum átt að taka
skíðin með okkur því hér var allt hvítt yfir að líta þeg-
ar við komum!“
13
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
REYKJAVÍK • Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • mánud.–föstud. 10–18 • laugard. 10–16
AKUREYRI • Tryggvabraut 1-3 • Sími 460 3630 • mánud.–föstud. 8–18 • laugard. 10–16 • ellingsen.is
ÚRVAL AF
GRILL-
AUKA-
HLUTUM
79.900 KR.
CHAR-BROIL GASGRILL
Grillflötur 450x470 mm, 2 brennarar.
Léttgreiðslur 13.317 KR. í 6 mán.
129.900 KR.
CHAR-BROIL GASGRILL
Grillflötur 670x470 mm, 3 brennarar.
Léttgreiðslur 21.650 KR. í 6 mán.
49.900 KR.
CHAR-BROIL GASGRILL
Grillflötur 440 mm, 1 brennari.
Léttgreiðslur 8.317 KR. í 6 mán.
2.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49