Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Qupperneq 53
2.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Norski kórinn Ljomen
Blandakor heldur tónleika
í Langholtskirkju á laugardag
klukkan 16. Kórinn er hér í
tilefni 30 ára afmælis síns. Einnig
koma Kammerkór Mosfellsbæjar og
hópur úr Óperukórnum fram.
2
Fyrsta júní verður opnuð í
verslun og veitingastofu
Þjóðmenningarhússins sýn-
ing á vatnslitamyndum eftir
Derek K. Mundell. Sýninguna kall-
ar hann „Birtubrigði“. Í myndunum
leitast Derek við að túlka birtuna á
Íslandi en hann telur vatnsliti henta
einkar vel til að fanga hina tæru birtu.
4
„Uppímót“ nefnist sýning á
málverkum sem Guðbjörg
Sigmundsdóttir, Gugga,
opnaði í Listhúsi Ófeigs við
Skólavörðustíg 5, á föstudaginn var.
Sýningin var unnin sérstaklega inn í
rými listhússins.
5
Fjöllistamaðurinn Gylfi Æg-
isson opnar myndlistarsýn-
ingu á Sjávarbarnum á
Grandagarði á laugardag
klukkan 15. Sýningin er liður í Hátíð
hafsins. Gylfi sýnir ný og eldri mál-
verk, meðal annars akkeri og máluð
skipsstýri, sem margir halda upp á, og
myndir af bátum og fólki.
Þá mun Gylfi taka lagið.
3
Soffía Sæmundsdóttir
opnar sýninguna „Kleine Welt
II/documenti“ í sýningarsal Ís-
lenskrar grafíkur, Tryggvagötu
17, á laugardag klukkan 16. Hún sýnir
verk á pappír sem hún vann í
vinnustofudvöl í Þýskalandi.
MÆLT MEÐ
1
Þetta gengur alveg upp og verður gam-an. Það er stemning í hópnum og viðhöfum oft verið undir miklu álagi,“
segir Eyþór Ingi Jónsson, stjórnandi ey-
firska kórsins Hymnodiu. Kórinn fagnar tíu
ára afmæli með því að syngja á tíu tón-
leikum í tíu kirkjum á tíu klukkustundum í
dag, laugardaginn 1. júní. Tónleikaröðin
hefst í Laufáskirkju klukkan 13, klukku-
stundu síðar hefjast tónleikar í Svalbarðs-
kirkju og þannig koll af kolli. Tónleikar hefj-
ast á heila tímanum í kirkjum í þessari röð:
Kaupangskirkju klukkan 15, þá Munkaþver-
árkirkju, Minjasafnskirkjunni, Lögmanns-
hlíðarkirkju, Möðruvallaklausturskirkju,
Stærri-Árskógskirkju, Vallarkirkju og síð-
ustu tónleikarnir hefjast klukkan 22 í Ólafs-
fjarðarkirkju.
Hverjir tónleikar verða 25 mínútna langir
og syngur kórinn, sem skipaður er sautján
söngvurum, tvær efnisskrár til skiptis. Að-
göngumiði í einni kirkju gildir í allar sem
eftir eru og fólk getur því heyrt alla efnis-
skrána með því að mæta í tvær kirkjur eða
fleiri.
Eyþór Ingi segir að lokatónleikar dagsins
á Ólafsfirði geti orðið eitthvað lengri ef þrek
kórsins leyfir og stemningin er góð. Sungin
verða alþekkt kórlög í bland við lög frá ýms-
um löndum, ný og gömul.
„Við höfum reiknað út að ef við höldum
löglegum hraða er lengst tuttugu mínútur á
milli kirkna,“ segir hann. „En þá má ekkert
tefja.
Við höfum fengið margar klikaðar hug-
myndir í gegnum tíðina en þetta er allt
framkvæmanlegt og skemmtilegt. Við höfum
sjaldan farið troðnar brautir í tónleika- og
efnisvali.“ Hann segir þennan fjölbreytileika
viðhalda ferskleika í kórstarfinu. „Það er
stefna kórsins að vera alltaf að reyna eitt-
hvað nýtt.“ efi@mbl.is
HYMNODIA HELDUR UPP Á TÍU ÁRA AFMÆLI Á ÓVENJULEGAN HÁTT
Tíu tónleikar í tíu kirkjum í dag
„VIÐ HÖFUM SJALDAN FARIÐ
TROÐNAR BRAUTIR Í TÓNLEIKA-
OG EFNISVALI,“ SEGIR EYÞÓR INGI
JÓNSSON, STJÓRNANDI KÓRSINS.
„Við höfum reiknað út að ef við höldum löglegum hraða er lengst tuttugu mínútur á milli kirkna,“
segir stjórnandi kórsins Hymnodiu um tónleikaröðina í tíu eyfirskum kirkjum í dag.
Morgunblaðið/Skapti Hallgríms
urinn sé á bakvið gott abstraktmálverk.
„Ég veit ekki hvort það er galdur á bak við
gott abstraktmálverk en ef hann er til þá er
það strúktúr,“ segir Kristján. „Það skiptir öllu
máli hvar hver einasti depill í abstrakt-
málverki er settur á strigann. Einn villuráf-
andi punktur og málverkið hættir að vera
málverk. Þetta er ekki svo mikilvægt í nat-
úralískum verkum vegna þess að áhorfandinn
getur nýtt sér fyrirfram ákveðnar hugmyndir
um það hvernig hlutir eiga að vera, andlit,
skógur, hús, en í abstraktmálverkinu eru eng-
in slík hjálpartæki til staðar. Það verður að
vera það sjálft af eigin afli og óstutt af öðru
en sjálfu sér, strúktúr, allir deplar og línur á
sínum stað, litir og heildin, mynd sem enginn
hefur áður séð.“
Kristján Davíðsson vann nánast að list sinni
fram á síðasta dag. Í samtali við Morg-
unblaðið á 95 ára afmæli Kristjáns sagði Að-
alsteinn Ingólfsson listfræðingur það „líkast
til heimsmet“ að málari í þessu gæðaflokki
hafi enn verið að kominn á þennan aldur.
„Hann er ennþá að mála marktæk verk sem
eru rökrétt framhald af hans ferli,“ sagði list-
fræðingurinn. En ekki lengur; málarinn hefur
lagt frá sér pensilinn.
„Ég notaði aldrei málverkið til annars en því var mögulegt að gera,“ sagði Kristján.
Morgunblaðið/Kristinn
Fjölskyldan við opnun sýningar á verkum
Kristjáns í Listasafni Íslands árið 2007: Val-
gerður Ólafsdóttir, Kári Stefánsson, Kristján,
Svanhildur Björnsdóttir eiginkona hans og
Björn Davíð Kristjánsson.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Thor Vilhjálmsson og Kristján; samherjar úr
stríðinu um módernismann sem báðir eru
horfnir af sjónarsviðinu eftir langan feril.
Morgunblaðið/Sverrir
Listamaðurinn á viðamikilli og umtalaðri yfirlits-
sýningu sinni í Þjóðminjasafninu árið 1981.