Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Síða 59

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Síða 59
2.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59 LÁRÉTT 3. Sjá rusta fá enga kind sem er full af ryki. (10) 7. Eiturlyf íþróttafélaga er plöntuættkvísl. (8) 9. Þeir sem hreyfa sig lítið vilja ekki að Z fari. (12) 12. Ösla vatnavexti í keppni. (8) 13. Dett við konu með hluta af fæti hjá fjalli. (9) 14. Þjálfa gang í lífshlaupi að sögn. (8) 15. Hraunið yfir en þýðist líka. (4) 16. Fimmtíu snúa aftur að guði út af fimri. (5) 17. Sáttir við Beru flækjast til skarps. (10) 19. Ást ein hefur gjarna þann gráðugasta. (10) 22. Samlandi jam-ávaxtarins er nöldrandi. (8) 25. Í enskumælandi löndum er loka á baðhúsum karlmanna. (5) 26. Þunnt efni á úðabrúsum ná á saumakodda. (9) 28. Hvít við erlenda sól leiðir í ljós svik. (6) 30. 18 hefur eina stefnu. (7) 31. Skartaðir ná einhvern veginn í þann sem er miskunnsamasti. (12) 34. Að mala viðsnúning ofan í tíst er það sem er ekki bundið af tíma. (9) 35. Deild innan HÍ sem þarf að bæta. (9) 36. Stríðni hvarf við hreyfingu í afdrepinu. (9) 37. Staðir Ólafs eru þeir sem ekki er illa talað um. (9) LÓÐRÉTT 1. Stök athöfn við að setja agn á öngul byggir á fasthygli. (10) 2. Stúlka álpast og fjasar mikið. (8) 4. Sofðu Vera einhvern veginn í stormi. (9) 5. Óviðjafnanlegt en samt ekki gott fyrir stærðfræðibók. (9) 6. Glóðir við tún eru ekki alveg heilar hjá brjáluðum. (9) 8. Eðalmálmur hlífir mikilsverðum. (9) 10. Það að flakka um er ekki gott fyrir plöntur. (8) 11. Erfið töp og pat geta búið sérkennilega farartækið. (11) 18. Hvatning til líkneskja leiðir til hléa. (10) 19. Hefur gjöfin fengið ölduna? (7) 20. Treglega keyrsluhæf enda dul. (7) 21. Féllst með frægri tölvu eftir að standast. (7) 23. Paulo stal austantjalds án girndar. (9) 24. Belti hellti yfir dulinn. (5) 25. Þreytt á baug og braut. (9) 27. Víti sóp aftur þrátt fyrir að vera jákvæð. (7) 29. Ennþá brjáluð manneskja hefur viðurvist. (7) 30. Eru meiðsli hluti fatnaðar? (5) 32. Er í sambandi við mann út af bæn. (5) 33. Fæddar og faldar. (5) Skákþing Íslands 2013 eða „Icelandic open“ ber upp á 100 ára afmæli keppni um Íslandsmeistaratitilinn í skák. Af því tilefni ákvað stjórn SÍ að taka upp keppnisfyrirkomulagið frá síðasta Reykjavíkurskákmóti. Verða tefldar tíu umferðir eftir svissneska kerfinu og keppt er um Íslandsmeist- aratitil karla og kvenna í einum og sama flokki. Yfir 70 skákmenn og -konur höfðu skráð sig til leiks þegar mótið hófst á föstudagskvöldið. Turninn í Borgartúni er keppnisstað- urinn – 20. hæð! Frá 1913 hefur keppnin um Íslandsmeistaratitilinn langoftast farið fram í lokuðum flokki þótt nokkur dæmi finnist um útslátt- arfyrirkomulag, t.d. á þinginu árin 2000 og 2005. Því er haldið fram á heimasíðu mótsins að ekki hafi verið keppt um titilinn í opnum flokki áður en vert er að minna á að á Skákþingi Íslands 1952 urðu efstir Friðrik Ólafsson og Lárus Johnsen með 6½ v. af níu mögulegum í flokki 16 kepp- enda. Þeir háðu svo frægt einvígi sem Friðrik vann 3½:2½ og varð Ís- landsmeistari í fyrsta sinn. Keppni í landsliðsflokki í fyrra heppnaðist vel en þá gafst frábært tækifæri til að rýna í baráttu okkar bestu virku skákmanna. Umskiptin koma á óvart; vandinn við opnu mótin er yf- irleitt sá að í röðunarkerfinu er inn- byggð ákveðin mismunun, lokuðu mótin eru „alvarlegri“ mót sem krefj- ast meiri undirbúnings og að móts- haldarinn skuli bjóða upp á tvær um- ferðir sama keppnisdag er án fordæma. Daði Örn alþjóðlegur meistari í bréfskák Daði Örn Jónsson var nýlega sæmd- ur titlinum „alþjóðlegur meistari í bréfskák“. Daði, sem er hámennt- aður tölvufræðingur, hefur haldið fjölmörg erindi um gagnsemi tölvu- forrita, hefur komið sér upp „víð- óma“ kerfi forrita, er þaulkunnugur notkunarmöguleikunum og veit manna best hversu djúp skáklistin er frá sjónarhóli tölvufræðinnar. En honum er einnig ljóst að forritin hafa sínar takmarkanir þrátt fyrir óheyri- lega reiknigetu. Frábær sóknarskák sem hann tefldi á dögunum er gott dæmi þar um: EM einstaklinga 2012-2013 Daði Örn Jónsson – Volker Leu- pold Frönsk vörn 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. e5 Rfd7 5. f4 c5 6. Rf3 Rc6 7. Be3 Be7 8. Dd2 0-0 9. dxc5 Rxc5 10. 0-0-0 Dc7 11. Kb1 a6 12. h4 b6 13. Bd3 Rb4?!14. Bxh7+! Daði lét þess getið að biskupsfórn- in hefði ekki verið hátt skrifuð hjá forritunum. Það „vantaði“ 17. leikinn. 14. … Kxh7 15. Rg5+ Kg8 16. De2 g6 17. Hh3!! Vinningsleikurinn sem Daði fann eftir mikla yfirlegu. 17. … Bd7 18. h5 Ra4 19. hxg6 Dxc3! 20. Hh8+! Kg7 21. Hh7+ Kg8 22. Bd4! Þrumuleikur, svartur nær drottn- ingaruppskiptum en dugar það? 22. … Dxc2+ 23. Dxc2 Rxc2 24. f5!! Magnaður vinningsleikur og sá eini í stöðunni, 24. … Bxg5 er svarað með 25. f6 sem hótar 26. Hg7+og 26. Hh1+. 24. … exf5 25. e6! Rxd4 26. gxf7+ Hxf7 27. exf7+ Kf8 28. Hh8+ Kg7 29. Hxa8 Re6 30. Hg8+ Kf6 31. Rxe6 Kxf7 32. Hg7+ Kf6 33. Hxe7 Kxe7 34. Rc7 Með skiptamun yfir í endatafli er eftirleikurinn auðveldur. Kd6 35. Rxd5 Ke5 36. Re7 Bb5 37. He1+ Kf6 38. Kc2 Rc5 39. Rd5+ Kg5 40. Rxb6 Rd3 41. Hd1 Rf4 42. Hd8 Re6 43. Hg8+ Kf6 44. g3 Bc6 45. Kc3 Be4 46. b4 Kf7 47. Hc8 Ke7 48. a4 Bg2 49. b5 axb5 50. axb5 f4 51. gxf4 Rxf4 52. Rc4 Re6 53. b6 Kd7 54. Hg8 Be4 55. Ra5 Rd8 56. Hg7+ – og svartur gafst upp. Helgi Ólafsson helol@simnet.is SKÁK Skákþing Íslands í Turninum Verðlaun eru veitt fyrir krossgátu vikunnar. Senda skal þátttökuseðil í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Hádeg- ismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 2. júní rennur út á hádegi 7. júní. Vinnings- hafi krossgátunnar 24. maí er Áslaug Faaberg, Mark- arflöt 29, Garðabæ. Hún hlýtur í verðlaun bókina Hinir réttlátu eftir Sólveigu Pálsdóttur. Forlagið gefur bókina út. KROSSGÁTUVERÐLAUN Nafn Heimilisfang Póstfang

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.