Morgunblaðið - 30.08.2013, Blaðsíða 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013
V i n n i n g a s k r á
18. útdráttur 29. ágúst 2013
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
7 6 0 7 4
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
5 1 5 4 2 1 8 7 3 3 4 2 4 5 3 9 8 6 6
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
1784 9083 27102 46702 56992 62597
8371 20522 31020 55396 57991 63967
8386 22208 33857 55600 60951 68987
8400 23094 37591 56175 62504 71006
V i n n i n g u r
Kr. 20.000 Kr. 40.000 (tvöfaldur)
7 4 0 8 9 9 4 1 8 6 8 3 2 9 7 6 5 4 0 7 9 7 4 8 5 1 5 5 8 1 9 7 7 3 7 3 7
9 3 5 1 0 4 0 7 1 9 7 2 5 3 0 5 4 8 4 1 2 11 4 9 0 6 7 5 8 5 9 5 7 5 8 0 5
1 4 3 4 1 0 5 6 4 1 9 7 6 6 3 1 3 3 9 4 25 7 2 4 9 8 4 9 6 0 4 0 4 7 7 1 8 8
1 7 6 2 1 0 8 5 8 2 0 5 4 4 3 1 5 6 9 4 41 6 3 5 2 6 3 5 6 0 7 6 8 7 7 5 5 1
2 3 4 9 11 3 0 6 2 2 5 9 9 3 1 8 5 3 4 4 3 7 0 5 2 9 6 3 6 11 2 6 7 7 7 3 4
3 3 0 2 1 3 3 9 3 2 3 6 1 0 3 1 9 8 1 4 53 9 0 5 3 3 1 0 6 1 3 3 3 7 7 9 9 5
3 9 9 3 1 3 4 0 0 2 5 0 0 3 3 2 0 4 8 4 60 0 6 5 3 8 5 2 6 3 3 8 1 7 8 1 7 0
4 4 6 0 1 4 9 6 3 2 5 5 4 2 3 2 5 5 0 4 64 9 9 5 4 2 5 1 6 5 0 11 7 8 2 0 7
4 9 2 0 1 6 2 5 8 2 6 7 0 9 3 2 9 2 9 4 67 1 8 5 5 6 4 7 6 9 2 2 4 7 8 8 7 7
5 1 6 8 1 6 7 4 5 2 7 6 0 9 3 6 2 5 1 4 6 9 2 0 5 6 4 1 0 6 9 5 2 3
6 1 5 0 1 6 9 0 7 2 8 1 0 3 3 6 5 0 4 4 7 8 5 1 5 6 5 1 0 7 0 5 6 9
6 4 5 4 1 6 9 9 7 2 8 8 8 7 4 0 4 8 5 4 7 9 9 9 5 7 3 3 3 7 0 6 2 9
8 8 6 7 1 8 2 5 8 2 9 1 9 1 4 0 5 2 1 4 8 2 0 0 5 7 3 9 4 7 3 3 5 3
V i n n i n g u r
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
25 7 11 5 9 4 2 0 3 9 3 3 0 2 1 2 4 1 4 3 6 5 4 3 7 5 6 4 6 0 5 7 2 9 4 1
8 5 1 11 7 7 6 2 0 8 9 7 3 0 3 1 8 4 1 7 9 2 5 4 4 9 7 6 4 8 11 7 3 5 0 9
1 3 7 0 11 8 7 5 2 0 9 2 5 3 2 5 2 6 4 1 9 3 7 5 5 2 3 8 6 5 3 11 7 3 5 8 7
1 6 7 2 1 2 3 8 9 2 1 5 5 4 3 2 8 8 1 4 2 3 3 2 5 5 2 4 4 6 5 9 7 4 7 4 1 4 2
2 1 3 5 1 2 8 2 8 2 1 9 2 6 3 3 7 4 6 4 3 2 7 6 5 6 1 7 4 6 6 0 5 9 7 4 6 3 1
2 3 6 2 1 2 9 3 8 2 2 3 0 6 3 4 2 0 9 4 3 2 8 0 5 6 9 8 9 6 6 1 4 4 7 4 6 9 2
2 6 4 3 1 3 6 7 1 2 2 4 0 1 3 4 5 5 0 4 4 2 6 9 5 7 4 7 4 6 6 2 7 3 7 4 8 4 0
2 7 7 3 1 3 8 8 3 2 2 6 7 3 3 4 7 0 4 4 4 3 9 4 5 7 6 8 9 6 6 5 5 2 7 4 9 8 5
3 0 0 3 1 4 6 6 4 2 2 7 5 5 3 4 7 3 2 4 5 8 3 4 5 7 9 0 0 6 6 6 7 4 7 5 5 6 7
4 3 7 4 1 4 9 0 6 2 2 8 0 3 3 4 9 5 8 4 6 0 0 4 5 8 3 8 3 6 6 7 8 7 7 6 1 5 1
4 4 4 2 1 5 3 7 1 2 3 2 7 5 3 5 0 8 5 4 6 1 8 6 5 9 1 5 7 6 7 5 5 4 7 6 4 0 1
4 4 9 5 1 5 9 9 4 2 3 5 0 4 3 5 5 9 7 4 6 3 2 4 5 9 2 0 0 6 7 7 2 7 7 6 6 3 9
4 7 8 3 1 6 2 6 5 2 4 2 8 8 3 6 0 0 6 4 6 5 4 8 5 9 4 1 6 6 7 9 3 1 7 6 9 6 2
5 0 3 7 1 6 5 0 4 2 4 5 4 3 3 6 1 6 5 4 6 7 2 3 5 9 4 8 7 6 8 7 7 5 7 7 1 9 9
5 3 5 0 1 6 5 4 4 2 4 7 6 0 3 6 6 9 4 4 7 1 6 7 6 0 3 2 1 6 8 7 9 5 7 7 6 0 6
6 0 4 2 1 6 7 3 4 2 4 7 8 8 3 6 7 7 3 4 7 2 2 1 6 0 5 1 5 6 8 8 2 9 7 7 6 4 5
6 11 3 1 7 0 9 1 2 5 2 7 0 3 7 4 3 8 4 7 5 3 1 6 0 5 7 0 6 9 0 2 0 7 8 2 6 1
6 5 0 9 1 7 3 3 6 2 5 5 3 3 3 7 5 2 5 4 7 5 8 5 6 0 8 1 9 7 0 0 1 9 7 8 3 0 0
6 7 8 4 1 7 4 7 3 2 5 7 5 0 3 7 5 2 9 4 7 9 7 3 6 111 6 7 0 2 9 7 7 8 4 7 3
7 3 1 9 1 7 6 3 2 2 5 7 8 8 3 7 7 0 0 4 8 5 8 3 6 1 7 1 5 7 0 4 2 3 7 8 5 8 8
7 3 9 4 1 7 6 4 5 2 6 3 7 9 3 8 11 6 4 9 2 0 4 6 2 2 1 2 7 0 4 9 6 7 8 6 0 9
7 4 2 3 1 7 6 4 7 2 6 4 0 1 3 8 1 2 8 4 9 8 6 5 6 2 3 0 7 7 0 6 6 3 7 8 7 6 5
7 6 8 9 1 7 8 8 1 2 6 7 0 3 3 8 1 4 8 5 0 0 9 3 6 2 9 3 5 7 1 0 7 6 7 8 9 6 2
8 0 6 1 1 7 9 7 1 2 6 8 7 7 3 8 3 9 9 5 0 5 3 8 6 3 0 9 8 7 1 0 9 6 7 8 9 7 4
8 3 6 1 1 8 0 2 7 2 7 4 1 8 3 8 5 0 3 5 0 7 8 7 6 3 3 2 1 7 11 6 8 7 9 2 4 4
9 1 8 7 1 8 7 5 1 2 8 0 7 9 3 9 0 3 4 5 0 9 8 4 6 3 4 0 7 7 1 6 5 9 7 9 4 3 3
9 2 9 0 1 8 7 8 3 2 9 11 5 3 9 5 4 1 5 1 0 2 0 6 3 6 3 3 7 1 7 6 2
9 3 2 6 1 8 9 2 1 2 9 4 7 9 3 9 9 7 1 5 1 0 4 7 6 3 7 7 4 7 1 8 4 7
9 8 4 5 1 9 2 8 2 2 9 6 2 0 4 0 1 5 7 5 11 8 8 6 4 1 3 2 7 2 2 3 4
9 8 5 9 1 9 3 9 0 2 9 8 1 2 4 0 2 2 9 5 1 5 8 3 6 4 2 0 6 7 2 3 11
1 0 6 1 4 1 9 5 6 0 2 9 9 8 1 4 0 8 1 0 5 2 4 0 1 6 4 2 4 4 7 2 6 2 0
1 0 9 8 9 1 9 8 4 5 3 0 0 8 3 4 0 8 8 5 5 4 2 6 2 6 4 4 4 4 7 2 7 4 5
Næstu útdrættir fara fram 5. sept, 12. sept, 19. sept & 26. sept 2013
Heimasíða á Interneti: www.das.is
✝ Guðrún AldaHelgadóttir
fæddist í Borg-
arholti Stokkseyr-
arhreppi 22. ágúst
1930. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands 19.
ágúst 2013.
Foreldrar henn-
ar voru Helgi
Guðmundsson, f.
13. september
1902, d. 25. september 1932,
og Steinvör Jónsdóttir, f. 18.
janúar 1903, d. 27. apríl 1991.
Systkini hennar voru: 1) Sig-
urjón, f. 1925, d. 1993. 2)
Bjarni, f. 1926, d. 2007. 3)
Gunnar, f. 1927. 4) Áslaug, f.
1929, d. 2010. 5) Helga, f.
1931, d. 1987.
Alda eignaðist einn son,
Helga Ingvason,
með Ingva
Georgssyni, f.
1929, d. 1996. Eig-
inkona Helga var
Ragnheiður Mark-
úsdóttir, f. 1954,
d. 2001. Börn
þeirra eru: 1)
Kjartan Þór, f.
1971. 2) Gunnar
Örn, f. 1972. 3)
Ómar Vignir, f.
1980, í sambúð með Eddu Linn
Rise, þau eiga þrjú börn. 4)
Guðrún Alda, f. 1984, í sam-
búð með Lúðvík Kjartani
Kristjánssyni, þau eiga eitt
barn. Unnusta Helga er Ingi-
björg H.W. Guðmundsdóttir.
Útför Öldu fer fram frá
Eyrarbakkakirkju í dag, 30.
ágúst 2013, kl. 14.
Elsku Alda amma mín.
Skrítið hvernig lífið tekur
krappar beygjur.
Þú varst allt í einu farin frá
okkur.
Og ég náði ekki að heimsækja
né kveðja þig. Mér þykir mjög
fyrir því. Kannski hafa örlögin
bara skrifað þetta þannig.
En mig langaði að reyna að
kveðja þig að einhverjum hluta
til hér. Ég vona af öllu mínu
hjarta hversu mikið ég elska þig
og mun alltaf gera. Þú munt vera
í mínum bænum.
Það verður ansi tómlegt að
koma við á bakkanum því þú ert
ekki lengur þar. Ég veit að þér
líður vel þar sem þú ert núna.
Farin að spila við mömmu og
Möggu ömmu eða að hlusta á
ljúfa tóna.
Ég veit við erum báðar mjög
skapstórar og þrjóskar. Og átt-
um til að kýta, um allt og ekkert,
daginn og veginn. En það endaði
alltaf vel og í okkar skessuhlátri.
Við tengdumst mest í seinni tíð
og eru það minningar sem eru
mér ómetanlegar. Þetta eru án
efa uppáhaldsbænirnar mínar.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Æ, Guð, minn faðir, fyrirgef
það framið illt í dag ég hef,
að geti’ eg sofnað sáttur enn
við sjálfan þig og alla menn.
(Matthías Jochumsson.)
Ég elska þig enn og aftur.
Kossar og knús.
Þín alnafna,
Guðrún Alda Helgadóttir
(Gugga).
Góð vinkona, Alda Helga, er
dáin. Gott er að minnast góðu
stundanna við eldhúsborðið hjá
mér þegar við fengum okkur
kaffi og hlógum saman að öllu
bullinu í okkur.
Ég kveð með þakklæti fyrir
alla vináttuna.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Ég votta fjölskylduni mína
dýpstu samúð.
Eygerður Þórisdóttir.
Elsku Alda mín. Í dag ertu
lögð til hinstu hvílu sátt við
guð og menn og víst ábyggi-
lega búin að skila þínu dags-
verki og rúmlega það. Jæja
kæra vina, við Helgi eigum
eftir að sakna þess að hafa þig
hjá okkur á jólunum. En ég
held að þú hafir verið hvíldinni
fegin Alda mín. Komið er að
leiðarlokum og kveð ég þig
með söknuði og virðingu. Ég
óska þér alls góðs í landi ljóss
og friðar. Aðstandendum og
öðrum ástvinum votta ég mína
dýpstu samúð.
Drottinn blessi minningu
þína.
Fegurðin er frá þér barst,
fullvel þótti sanna,
að yndið okkar allra varst,
engill meðal manna.
Hlutverk þitt í heimi hér,
þú hafðir leyst af hendi.
Af þeim sökum eftir þér,
Guð englahópa sendi.
Sú besta gjöf er gafst þú mér,
var gleðisólin bjarta,
sem skína skal til heiðurs þér,
skært í mínu hjarta.
(B.H.)
Hörpu þinnar ljúfa lag
lengi finn í muna.
Því ég minnist þín í dag,
þökk fyrir kynninguna.
(Á.K.)
Þín
Ingibjörg (Inga).
Guðrún Alda
Helgadóttir
Árið 1975 voru miklar fram-
kvæmdir á jarðhitasvæðinu við
Kröflu í Mývatnssveit. Borað var
eftir gufu og samhliða var unnið
að byggingu stöðvarhúss fyrir
raforkuver. Ekki var talið líklegt
að þar færi að gjósa á næstunni.
Menn urðu því nokkuð undrandi
þegar skjálftavirkni á Kröflu-
svæðinu jókst skyndilega í mars
1975 og hélst virknin fram eftir
árinu. Brugðist var við með því
Hjörtur
Tryggvason
✝ HjörturTryggvason
fæddist á Lauga-
bóli í Reykjadal,
Suður-Þingeyj-
arsýslu 30. mars
1932. Hann lést á
Heilbrígðisstofnun
Þingeyinga á Húsa-
vík 14. ágúst 2013.
Hjörtur var jarð-
settur 21. ágúst
2013 í kyrrþey.
að setja upp fleiri
jarðskjálftamæla og
mæla upp nákvæmt
landmælinganet svo
fylgjast mætti með
hæðabreytingum og
láréttum hreyfing-
um.
Hinn 20. desem-
ber 1975 varð lítið
eldgos við Leir-
hnjúk skammt
norðvestur af stöðv-
arhúsinu og mikil skjálftahrina
varð í sprungureininni sem ligg-
ur frá eldstöðinni og norður í
Öxarfjörð. Í mars 1976 var land-
mælinganetið endurmælt og þá
kom í ljós að land við eldstöðina
og undir stöðvarhúsinu hafði sig-
ið um heila tvo metra. Kvika
hafði streymt úr möttli jarðar
upp í kvikuhólf á 3-5 km dýpi
undir Leirhnjúki. Þegar þrýst-
ingur í kvikuhólfinu náði
ákveðnu hámarki gliðnaði jarð-
skorpan og kvikan rann inn í
sprungurnar og upp á yfirborð.
Nokkru síðar tók land að rísa á
ný og sama atburðarásin end-
urtók sig hvað eftir annað.
Þegar hér var komið sögu var
greinilegt að meiri háttar land-
rekshrina var að ganga yfir á
Norðausturlandi og þarna gafst í
fyrsta skipti tækifæri til að
fylgjast með og kanna nákvæm-
lega eðli slíkra umbrota. Þessi
umbrot gátu einnig haft veruleg
áhrif á boranir eftir gufu og á
byggingu virkjunarinnar. Orku-
stofnun og fleiri stofnanir sam-
ræmdu krafta sína í þessum
rannsóknum en einnig kom fjöldi
erlendra vísindamanna til liðs
við okkur. Mikil vinna var að
safna öllum gögnum á skipuleg-
an hátt og halda utan um alla
þætti.
Það varð úr að Orkustofnun
réð sérstakan rannsóknarmann
sem hafði aðsetur í Kröflu til að
sinna þessu eftirliti og aðstoða
fræðimenn sem komu á svæðið
til rannsókna. Svo heppilega
vildi til að Hjörtur Tryggvason
tók þetta starf að sér og ég átti
því láni að fagna að vinna með
Hirti í heil 7 ár frá ársbyrjun
1977 til ársloka 1983. Hjörtur
sinnti þessu starfi einstaklega
vel. Hann var ekki einungis
mælingamaður sem safnaði
gögnum og skilaði beint til ann-
arra. Hann hafði frumkvæði að
því að bæta mæliaðferðir og
smíðaði og setti upp nýja mæla.
Hann las daglega af hallamæli í
stöðvarhúsinu og mat út frá hall-
anum hæðarbreytingar og þar
með þrýsting í kvikuhólfinu frá
degi til dags. Hann hélt utan um
nær öll gögn sem safnað var fyr-
ir starfsmenn þeirra stofnana
sem stóðu að þessum rannsókn-
um. Hann var einnig ómetanleg
stoð og hjálparhella þeirra er-
lendu vísindamanna sem komu
til rannsókna við Kröflu. Hjörtur
lagði mikla vinnu í þetta starf og
sýndi mikla natni og útsjónar-
semi. Hann var sérstakt ljúf-
menni og hjálpsamur við alla er
til hans leituðu. Án Hjartar
hefðu þau mikilvægu gögn sem
söfnuðust um eðli landreksins og
eldgos við Kröflu ekki verið eins
verðmæt og vönduð og reyndin
varð. Ég þakka jarðvísinda-
manninum Hirti fyrir ánægju-
legt og árangursríkt samstarf.
Axel Björnsson.
✝
Þökkum innilega öllum þeim sem sýnt hafa
fjölskyldunni samúð og stuðning við andlát
og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
ELÍNAR SIGURBJARGAR
ÁRNADÓTTUR,
Hlíf II, Ísafirði.
Sérstakar þakkir eru færðar systrum í Oddfellowstúkunni
Þóreyju á Ísafirði.
Halldór Guðbjarnason,
Eydís Guðbjarnadóttir, Trausti Þórðarson,
Ásthildur Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna
upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birtingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför
er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein
hafi borist innan skilafrests.
Lengd | Hámarkslengd minningargreina er 3.000 slög. Lengri greinar
eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu
kveðju, 5-15 línur.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín undir greinunum.
Minningargreinar
Þó nokkuð sé
liðið frá andláti
Eyþórs G. Stefánssonar, sam-
starfsmanns okkar í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti,
langar okkur að minnast hans
með nokkrum orðum. Eyþór
lést 8. júlí 2013 og var jarðaður
í kyrrþey.
Eyþór var vel menntaður
Eyþór Stefánsson
✝ Eyþór G. Stef-ánsson fæddist
í Kaupmannahöfn
11. júní 1950. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suð-
urnesja 8. júlí 2013.
Útför Eyþórs fór
fram í kyrrþey.
myndlistarmaður.
Eftir nám við
Myndlistaskólann í
Reykjavík heldur
hann til Noregs
þar sem hann lauk
MA námi frá Kun-
stakademíunni í
Osló. Á undan list-
náminu hafði hann
útskrifast frá
Verslunarskóla Ís-
lands.
Eyþór vakti verðskuldaða at-
hygli fyrir frábærar myndagát-
ur sem birtust daglega í Dag-
blaðinu um margra ára skeið.
Þá er hann eini Íslendingurinn
sem hefur unnið til hinna virtu
alþjóðlegu Aydin Dogan-verð-
launa og þau hlaut hann tvisv-
ar, árin 2001 og 2002, en verð-
launin eru veitt fyrir
skopmyndir með pólitísku ívafi.
Eyþór hóf kennslu á list-
námsbraut FB árið 1990 og
kenndi því við skólann í 23 ár.
Hann var vinsæll kennari, hafði
hlýja og góða nærveru og var
sérstaklega vel liðinn af nem-
endum og starfsfólki skólans.
Eyþór var hvers manns hug-
ljúfi og svo hæfileikaríkur að
sjaldgæft má telja. Hann var
frábær gítarleikari, teiknari og
listamaður, auk þess að vera af-
bragðs kennari.
Fyrir nokkrum árum veiktist
Eyþór alvarlega og missti
máttinn í hægri hendi. Eftir
sjúkdómslegu í nokkra mánuði
kom hann aftur til kennslu og
notaði þá vinstri höndina til að
teikna. Hann hafði þá náð ótrú-
legri hæfni í að teikna með
vinstri hendi. Þessi lífsreynsla,
að missa máttinn í hægri hendi
og þjálfa sig upp í að nota þá
vinstri lýsir Eyþóri betur en
nokkur orð fá tjáð. Því miður
veiktist Eyþór aftur síðasta
vetur og náði ekki heilsu á ný.
Starfsfólk og nemendur FB
sakna Eyþórs. Okkur finnst
heldur tómlegt í upphafi haust-
annar að hafa hann ekki lengur
í hópnum. Þó að Eyþór hafi
ekki verið gamall þegar hann
lést skilur hann eftir djúp spor
hjá mörgum nemenda sinna og
samstarfsfólki í skólanum. Góð-
ur drengur er fallinn frá langt
fyrir aldur fram.
Við vottum fjöldskyldu Ey-
þórs okkar dýpstu samúð.
Blessuð sé minning Eyþórs G.
Stefánssonar.
Fyrir hönd starfsfólks FB,
Guðrún Hrefna Guðmunds-
dóttir, Stefán Benedikts-
son og Magnús Ingvason.