Morgunblaðið - 30.08.2013, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
Þetta eru portrettmyndir aftónlistarfólki sem ég hefverið að vinna að undan-farið eitt og hálft ár. Ég
ákvað að hefja þessa seríu þegar ég
kom frá Danmörku þar sem ég var í
ljósmyndaskóla og vantaði einhver
verkefni. Ég ákváð þá að einbeita
mér að því að mynda tónlistarfólk.
Þetta eru allt saman svarthvítar
myndir með miklum kontrast. Ég
kýs þann stíl til að ljósmyndirnar öðl-
ist þennan klassíska stíl. Margir hafa
sagt að ljósmyndirnar séu mjög gam-
aldags,“ segir Daníel Starrason sem
opnar í dag ljósmyndasýningu í
menningarhúsinu Hofi.
Myndar á Græna hattinum
„Ég hef ákaflega gaman af því
að fara á tónleika og er mikill áhuga-
maður um tónlist. Ég talaði einhvern
tímann við Hauk Tryggvason á
Græna hattinum um að fá að kíkja í
nokkur skipti til að taka þar nokkrar
ljósmyndir sem hann fengi síðan að
eiga. Það hefur orðið allt að þrá-
hyggju hjá mér. Ég fer þangað nán-
ast hverja einustu helgi og tek alltaf
nokkrar ljósmyndir. Það sem er líka
svo magnað við þennan stað er að þar
er alltaf eitthvað að gerast. Ég er til
að mynda nokkuð viss um að það sé
ekki til sá staður í Reykjavík sem
státar af jafnvirku tónleikahaldi og
Græni hatturinn,“ segir Daníel.
„Það er töluvert tónlistarlíf fyrir
norðan. Okkar vantar þó svolítið
þessa akureyrsku popp- eða rokk-
stjörnu. Annars er tónlistarlífið voða
fjölbreytt, hér er starfrækt sinfóníu-
hljómsveit og ótal kórar. Það er engu
að síður langt síðan við höfum fengið
eitthvað frá Akureyri sem hefur sleg-
ið rækilega í gegn. Það var einmitt
mikil umfjöllun um daginn um þenn-
an samanburð við Dalvík og Húsavík
en þaðan koma til dæmis margir góð-
ir þungarokkarar. Bæjarfélögin í
kring eru að búa til stjörnurnar sem
hafa ekki orðið til á Akureyri um
nokkurt skeið,“ segir ljósmyndarinn.
Mikið listalíf á Akureyri
„Annars er skemmtilegt gras-
rótarstarf hérna og nokkrar hljóm-
sveitir sem hafa því miður ekki náð
að koma sér í útvarpið. Það er líka
mikil gróska hérna í öðru listalífi, ef
tekið er tillit til stærðar bæjarins, og
vel hlúð að grasrótinni. Galleríið
Populus Tremula er til að mynda
mjög öflugt og hefur fengið flotta
listamenn til sín í bland við yngri
listamenn. Þetta er mjög lítið gallerí
og rekið áfram á hugsjóninni einni
saman. Svo eru líka tónleikar þarna
af og til og nokkrar hljómsveitir sem
eru kenndar við galleríið,“ segir
hann.
„Þau sem standa að Hofinu hafa
jafnframt náð að vera með viðburði
sem höfða til allra. Dagskráin þar er
fjölbreytt en þeir taka þó aldrei neina
áhættu í vali sínu á viðburðum, það er
alltaf eitthvað sem selst alveg örugg-
lega. En þetta hefur bara gengið vel
hjá þeim að ég held og ég er mjög
ánægður með að vera kominn með
svona flottan stað í bæinn,“ segir
Daníel.
Ljósmyndabók í bígerð
„Ég lærði heilmikið þegar ég fór
fyrst í Medieskolerne í Viborg í Dan-
mörku en ég á núna tvö ár eftir í skól-
anum. Hann opnaði fyrir manni
stærri og öðruvísi heim en er hérna á
Íslandi. Þetta eru allt svo stór verk-
Treður slóðina í Hofi
Ljósmyndarinn Daníel
Starrason mun í dag
opna ljósmyndasýningu í
Hofi á Akureyri þar sem
tónlistarlífinu verður
gert hátt undir höfði.
Daníel segir gróskuna
mikla fyrir norðan.
Ljósmynd/Daníel Starrason
Fortíð Þessi ljósmynd af Helga Þórssyni ber með sér þokka liðinna tíma.
Í sumar sló Sirkus Íslands heldur bet-
ur í gegn á Volcano-sirkuslistahátíð-
inni í Vatnsmýrinni. Nú er svo komið
að skeggjuð kona, loftfimleikahetjur,
trúðar, einhjólaliðar, línudansari og
aðrir sirkusmeðlimir óska eftir fram-
tíðarheimili, stóru sirkustjaldi. Það
eina sem Sirkus Íslands vantar upp á
að verða alvörusirkus er sirkustjald.
Nú leita þau til okkar eftir hjálp til að
láta drauminn rætast. Nokkrir dagar
eru eftir af söfnun fyrir sirkustjaldinu
á netinu á slóðinni: karolinafund-
.com/project/view/139. Sirkusinn
vantar tjald til að ferðast með um allt
land og bjóða upp á sirkussýningar
og námskeið. Tjaldið er hluti af því að
bjóða íslensku hæfileikafólki upp á
alvörusirkusframtíð á Íslandi. Í Sirk-
us Íslands eru nú 25 meðlimir.
Þeir sem styrkja fá miða á sýningu
í tjaldinu næsta vetur, en ef takmark-
inu er ekki náð fá allir endurgreitt.
Vefsíðan www.karolinafund.com/project/view/139
Ljósmynd/Óskar Hallgrímsson
Einhjólasprell Þessir sýndu listir sínar í sumar á sýningunni Heima er best.
Sirkustjald skal það vera
Nú stendur Reykjavik Dance Festival
sem hæst en hátíðinni mun ljúka um
helgina. Meðal þess sem er í boði eru
allskonar dansverkstæði auk ýmissa
sniðugra viðburða. Meðal sýninga má
nefna Nothin’s for Something sem
fram fer í Kassanum í Þjóðleikhúsinu
í kvöld en um er að ræða verk þeirra
Heine Avdal og Yukiko Shinozaki.
Einnig má nefna sýninguna Contact
Gonzo sem sýnd verður á laugardag-
inn en um er að ræða japanskan hóp
sem sýnir meðal annars bardagalist.
Smiðshöggið verður svo rekið með
partíi í leikhúskjallaranum á laug-
ardagskvöldið þrátt fyrir að nokkrar
sýningar verði í boði á sunnudaginn.
Endilega …
… kíkið á dans-
sýningar
Morgunblaðið/Kristinn
Dans Harpa er nýtt undir viðburði.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Gott silfur gulli betra. Eru þetta
einkennisorð þess sem alltaf lýtur
í lægra haldi fyrir andstæð-
ingnum, eða tímalaus sannleikur
frá einhverjum fornum heimspek-
ingi? Ég skal ekki segja en sem
stuðningsmaður Stjörnunnar hall-
ast ég helst að því fyrrnefnda. Fé-
lagið hefur í flestum íþróttum
sankað að sér þessum eð-
almálmi af ákefð sem áður er
óþekkt í Garðabæ. Kaldhæðnin
í því að stuðningssveit félags-
ins heitir Silfurskeiðin hefur
ekki farið framhjá and-
stæðingum Stjörnunnar,
og til að toppa þetta allt
saman hefur silfurmáfur
gert sig heimakominn á
Stjörnuvelli. Má sjá
hann fljúga tign-
arlega yfir gervi-
grasinu á leik-
dögum eins og
til að benda
áhorfendum á
hlutskipti félagsins.
Önnur félög virðast hafa
fundið leið til þess að koma í veg
fyrir vonbrigðin sem geta fylgt
silfurmedalíu. Með því að lækka
væntingar og blanda sér í botnbar-
áttu geta stuðningsmenn félaga
setið uppi með stærðarinnar glott í
lok tímabils, vegna þess eins að
liðið þeirra bjargaði sér frá falli í
síðustu umferð. Það er gömul
speki og ný að ef þú lækkar
væntingar þínar, þá munu
frábærir hlutir henda þig. Ég
hafði hugsað mér að tileinka
mér þessa lífsspeki áður en
gleðifregnir bárust úr
Garðabænum. Stjörnu-
stúlkum tókst að landa
gullverðlaunum í
Pepsi-deild kvenna, og
það með glæsibrag!
Ekki aðeins hafa þær
ekki tapað stigi á öllu
mótinu, heldur hefur
markvörður liðsins aðeins
þurft að ganga skrefin
þungbæru og sækja tuðr-
una í eigið mark fjórum
sinnum í allt sumar. Liðs-
Heimur Björns Más
KYNNING Í
HYGEU SMÁRALIND
FÖSTUDAG OG
LAUGARDAG