Morgunblaðið - 30.08.2013, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013
✝ BorghildurSvanlaug Þor-
láksdóttir fæddist í
Veiðileysu,
Strandasýslu 28.
júní 1924. Hún lést
á deild 3B, Hrafn-
istu í Hafnarfirði,
23. ágúst 2013.
Foreldrar henn-
ar voru Ólöf
Sveinsdóttir, f. 20.
maí 1892, d. 6. apr-
íl 1952, og Þorlákur Guð-
brandsson, f. 16. apríl 1893, d.
15. feb. 1977. Systkini Borg-
hildar: Annes Svavar, f. 1917,
d. 2002, Guðlaug Una, f. 1919,
d. 1991, Guðbrandur Sveinn
Ingimar, f. 1921, d. 1992, Mar-
teinn Guðberg, f. 1923, d. 1984,
Þórir, f. 1926, d. 2007, Elínborg
Þórdís, f. 1929, Kristján, f.
1931, og Bjarni Marís, f. 1937.
Hinn 10. mars 1945 giftist
Borghildur Sveinbirni Ólafs-
syni frá Syðra-Velli, Gaulverja-
bæjarhreppi, f. 17. okt 1916, d.
30. maí 2012. Foreldrar hans
Erla, f. 1962, maki Grétar Páll
Stefánsson. Börn þeirra eru
Arnar, Daníel og Birna, barna-
börnin eru tvö.
Borghildur ólst upp í Veiði-
leysu, Strandasýslu. Hún tók
þátt í heimilis- og bústörfunum
á bænum ásamt því að vinna
ýmis störf í Djúpuvík á síld-
arárunum. Þau Svenni trúlof-
uðust í júní 1943 og Bogga
flutti suður til Hafnarfjarðar,
þar sem Svenni var í námi, í
mars 1944. Hún vann ýmis störf
í Hafnarfirði auk þess að sinna
stóru heimili og barnauppeldi.
Eftir að börnin voru komin á
legg starfaði hún lengst af á
Hótel Borg þar sem hún var yf-
irþerna. Hún tók þátt í ýmsum
félagsstörfum, m.a. leikfélagi
Hafnarfjarðar og Kvenfélagi
Fríkirkjunnar. Hún var mikil
hannyrðakona, saumaði öll föt
á börnin þegar þau voru lítil og
barnabörnin nutu góðs af
prjónaskapnum hennar. Þau
Bogga og Svenni byrjuðu bú-
skapinn á Suðurgötu 24, en
bjuggu lengst af á Álfaskeiði 30
áður en þau fluttu á Boðahlein
1 í Garðabæ.
Borghildur verður jarð-
sungin frá Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði í dag, 30. ágúst 2013, og
hefst athöfnin kl. 13.
voru Margrét
Steinsdóttir, f. 17.
maí 1890, d. 18.
des. 1970, og Ólaf-
ur Sveinn Sveins-
son, f. 15. jan.
1889, d. 17. júlí
1976. Bogga og
Svenni eignuðust
sex börn. 1) María,
f. 1944, maki Steen
Knud Jörgensen.
Börn með fyrri
maka: Sveinbjörn, Helgi og
Ágústa Hildur, barnabörnin
eru 11 og barnabarnabörnin
þrjú. 2) Trausti Sveinbjörnsson,
f. 1946, maki Ingveldur Ein-
arsdóttir, f. 1950, d. 2012. Synir
þeirra eru Björn, Bjarni Þór og
Ólafur Sveinn, barnabörnin eru
sjö. 3) Margrét Ólöf, f. 1947,
maki Þórir Steingrímsson, f.
1947. Dætur þeirra eru Borg-
hildur, Dagmar og Steinþóra,
barnabörnin eru sjö. 4) Ásta, f.
1955, sonur Ívar Atli. 5) Ólöf
Þóra, f. 1957. Dætur hennar
eru Sara og Ásta Eygló. 6)
Við kveðjum elskulega móður
okkar með söknuði og kærleik,
fyrir allar þær stundir sem við
áttum saman.
Mamma var afar ljúf og frá
henni streymdi hlýja sem við nut-
um í uppvexti okkar. Mamma var
afskaplega gestrisin og var heim-
ilið opið öllum þeim sem leituðu
til mömmu og pabba að norðan.
Heimilið var mjög smekklegt og
snyrtilegt þó að oft hafi verið
þröngt í búi. Mamma var mikil
hannyrðakona og hún saumaði og
prjónaði á okkur öll föt.
Foreldrar okkar voru einstak-
lega samrýnd hjón og þess má
geta að við munum ekki eftir að
hafa heyrt þau nefnd öðruvísi en
Bogga hans Svenna, Svenni
hennar Boggu, mamma og pabbi
eða amma og afi, alltaf saman,
eins og þau líka voru. Mamma
var stolt af sveitinni sinni og hélt
tryggð við fjörðinn alla ævi og við
minnumst allra ferðanna sem við
fórum á hverju sumri í Veiði-
leysu. Seinna þegar við minnt-
umst á Veiðileysu í heimsóknum
okkar til mömmu fengum við allt-
af yndislegt bros, sem fullvissaði
okkur um það hvers virði sveitin
var í huga hennar.
Seinna nutu börnin okkar
sömu umhyggju og ástúðar.
María, Trausti og Margrét.
Fyrir rúmu ári kvaddi ég föður
minn og í dag kveð ég móður
mína. Þó að það sé erfitt að
kveðja þá verð ég að vera þakklát
fyrir hvað ég fékk að hafa þau
lengi.
Ég trúi því að nú séu þau
mamma og pabbi sameinuð á ný.
Nú geta þau aftur haldist í hend-
ur og horft á hvort annað með
þeirri ást og virðingu sem þau
sýndu hvort öðru alla tíð svo un-
un var á að horfa. Þannig var fyr-
irmynd okkar systkinanna.
Það sem einkenndi heimilið
okkar var reglusemi og vinnu-
semi. Eftir því sem árin líða verð
ég alltaf þakklátari og þakklátari
fyrir að hafa notið þeirra forrétt-
inda að alast upp við slíkar að-
stæður. Ég segi stundum að það
sem vantaði í uppeldið var að
kenna okkur að rífast. Það var
aldrei rifist á heimilinu sem er
ótrúlegt í sex systkina hópi en
þannig voru þau bæði mamma og
pabbi. Málin voru bara rædd á
rólegan hátt enda var alltaf auð-
velt að tala við þau.
Ég sá það best á táningsárun-
um á vinkonum mínum sem voru
oft horfnar úr mínu herbergi og
komnar í eldhúsið til mömmu að
rabba við hana. Þá var verið að
hvolfa bolla, leggja spil og spá í
framtíðina. Þeim fannst þær geta
rætt við mömmu um allt, hvort
sem það voru strákamál eða önn-
ur málefni. Við minnumst þeirra
stunda með hlýju og gleði í huga.
Mamma var mikil búkona
enda uppalin í sveit. Á vorin var
farið í eggjaleit og á haustin í
berjamó. Þá var sultað, saftað og
ber fryst fyrir veturinn. Þau
höfðu það fyrir venju mamma og
pabbi að fá sér bláber í eftirmat á
hverjum sunnudegi. Svo var tek-
ið slátur, búin til kæfa og keyptir
skrokkar þannig að ekki dugðu
minna en tvær frystikistur undir
þetta allt saman.
Mamma var einnig mikil hann-
yrðakona. Lengi vel saumaði hún
og prjónaði öll föt á okkur systk-
inin. Ég held að ég hafi verið orð-
in 12 ára þegar ég eignaðist fyrst
buxur sem keyptar voru í búð.
Mamma var alltaf með eitt-
hvað á prjónunum og naut fjöl-
skyldan öll góðs af. Einnig saum-
aði hún út myndir, stóla og púða
og seinni árin handmálaði hún
dúka og svuntur.
Mamma og pabbi höfðu mjög
gaman af að ferðast. Fyrir utan
Veiðileysuferð á hverju ári þar
sem dvalið var í lengri eða
skemmri tíma fórum við fjöl-
skyldan í tjaldútilegu árlega með
vinum eða ættingjum. Síðan fóru
þau að fara til útlanda og var
Ítalía í miklu uppáhaldi hjá þeim.
Mamma vildi alltaf hafa mikið
líf og fjör í kringum sig. Best leið
henni með alla stórfjölskylduna
hjá sér. Þannig þjappaði hún
hópnum saman og njótum við
góðs af því í dag þegar við kveðj-
um mömmu, tengdamömmu,
ömmu, langömmu og langalang-
ömmu. Samheldnin í hópnum er
ómetanleg.
Það er margs að minnast og
margt að þakka fyrir.
Þú varst einstaklega ljúf kona,
mamma mín, og ég hef oft verið
öfunduð af að eiga þig sem móð-
ur.
Ég vil því, elsku mamma mín,
þakka þér fyrir allt og allt.
Þín dóttir,
Ólöf Þóra.
Nú er hún tengdamóðir mín,
Borghildur Svanlaug Þorláks-
dóttir, fallin frá, og er þar mikið
skarð komið í fjölskylduna. Hún
fæddist í Veiðileysu á Ströndum
og ólst þar upp, en rétt fyrir tví-
tugt kynntist hún manni, þ.e.
Sveinbirni Ólafssyni, sem seinna
varð svo eiginmaður hennar. Þar
var hún heppin, því hann var gull
af manni. Þau fluttust svo í Hafn-
arfjörð og bjuggu þar æ síðan.
Það er varla hægt að lýsa
kynnum sínum af svona stórkost-
legri konu, sem hún Bogga var.
Umhyggja hennar fyrir börnum
sínum, barnabörnum og barna-
barnabörnum var með ólíkind-
um. Og árangurinn var eftir því,
því samheldnari stórfjölskyldu er
vart hægt að finna. Það er allt
þeim heiðurshjónum Boggu og
Svenna að þakka.
Og svo eftir að börnin hennar
sex voru flogin úr hreiðrinu og
barnabörnin fóru að koma í heim-
inn, þá sýndi hún þeim sömu um-
hyggju eða jafnvel meiri, því tím-
inn var náttúrlega orðinn rýmri
hjá henni eftir að mesta brauð-
stritinu lauk.
Og ekki hafa tengdabörnin svo
farið varhluta af þessari um-
hyggju og hlýju, sem samt þó
furðulegt sé leiddist aldrei út í
það sem kallast mætti afskipta-
semi. Hvernig hægt er að komast
hjá því, það veit ég ekki en það
var hennar snilld. Vegna alls
þessa þótti öllum afkomendum
þeirra hjónanna og tengdabörn-
um svo óskaplega vænt um þau
og vildu allt fyrir þau gera sem í
þeirra valdi stóð. En allt tekur
enda, því er nú verr, og þau hjón-
in féllu frá með hálfs annars árs
millibili, hann 95 ára og Bogga
nærri níræð.
En ég get ekki annað en þakk-
að henni fyrir móttökurnar þegar
ég kvæntist henni Margréti dótt-
ur hennar og umhyggju hennar
alla tíð fyrir dætrum okkar
þremur og börnum þeirra. Og
svo líka fyrir þær stundir sem við
sátum saman á spjalli og grín-
uðumst aðeins. Ég tala nú ekki
um það þegar við Grétar Páll,
tengdasynir hennar, vorum þar.
En að lokum, Bogga, þakka
þér innilega fyrir allt og fyrir-
gefðu hvað þetta er aum kveðja
til þín.
Þinn tengdasonur,
Þórir Steingrímsson.
Yndislega amma mín, núna
ertu komin til hans afa sem ég
trúi að sé á góðum stað. Ég mun
alltaf sakna þess að koma inn í
hlýjuna til ykkar og vera með
ykkur. Þið höfðuð svo góða nær-
veru því þið hugsuðuð svo fallega
hvort um annað. Þú kenndir mér
svo margt eins og t.d. að prjóna
og sauma. Þú sjálf varst alltaf
með eitthvað í höndunum og ég
passa vel upp á kirkjuna sem þú
saumaðir og gafst mér með þeim
orðum að hún ætti ávallt að
minna mig á þig. Ég var oft í
pössun hjá ykkur og man eftir
því þegar þú baðst afa um að fara
inn í gestaherbergi og sofa þar og
leyfðir mér að sofa uppi í hjá þér.
Þú þuldir fyrir mig bænir og
sálma alveg þangað til ég sofnaði.
Fyrir það verð ég þakklát alla
ævi, þú styrktir mig í trúnni og
gafst mér svo miklu meira en orð
geta sagt. Þú varst svo ótrúlega
sterk kona og er ég svo stolt af
þér fyrir það.
Ó, Jesús bróðir besti
og barnavinur mesti,
æ breið þú blessun þína
á barnæskuna mína.
Mér gott barn gef að vera
og góðan ávöxt bera,
en forðast allt hið illa,
svo ei mér nái’ að spilla.
Það ætíð sé mín iðja
að elska þig og biðja,
þín lífsins orð að læra
og lofgjörð þér að færa.
(Páll Jónsson)
Hvíldu í friði, elsku besta
amma mín, þín dótturdóttir,
Birna.
Elsku amma Bogga, þakkir til
þín fyrir árin sem við fengum að
njóta með þér.
Það fyrsta sem kemur upp í
hugann er bros, hlátur, jákvæðni
og mikil hlýja. Amma Bogga var
einstök fyrirmynd allra sem til
hennar þekktu og jafnmikla lífs-
gleði er erfitt að finna en hún
ásamt afa eignaðist sex börn og
síðar fjölmörg barna- og barna-
barnabörn. Sú ást og væntum-
þykja sem þau afi sýndu hvort
öðru gerði fjölskyldu þeirra mjög
samheldna og er vandfundin önn-
ur eins samheldni og býr í þess-
ari fjölskyldu. Amma var mjög
trúuð, hvort sem var á kristna
trú eða lækningamátt ýmissa
jurta sem hún hafði óbilandi trú á
og var líklegast uppalið í þeim
systkinum frá Veiðileysu. Ef ein-
hver veikindi komu upp var
amma sú fyrsta til að biðja fyrir
viðkomandi, hvort sem það voru
hennar allra nánustu eða aðrir
nærri, þetta viðhorf kenndi hún
sínu fólki hversu mikilvægt væri.
Við trúum því að nú séu þau sam-
einuð á ný amma og afi og hún
hefur vonandi fundið faðm for-
eldra sinna og systkina sem og
mömmu (tengdadóttur sinnar).
Megi góður guð taka á móti
þér og hafðu þakkir fyrir allt það
góða sem þú lést af þér leiða.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Björn, Bjarni Þór, Ólafur
Sveinn og fjölskyldur.
Þegar maður var blautur og
kaldur á höndunum var notalegt
að setjast hjá ömmu og leyfa
henni að halda utan um litlar
hendur og hita þær. Það voru ófá
skipti sem þessar aðstæður komu
upp. Hún var ekki bara handheit,
heldur hafði hún stórt og hlýtt
hjarta, létta lund og aldrei sat
hún iðjulaus. Það eru ófáir vett-
lingar, sokkar og peysur sem
hafa ratað í jólapakka fjölskyld-
unnar, viðtakendum til mikillar
ánægju. Heimilið var griðastaður
margra ættingja og vina. Sjaldan
kom maður í heimsókn án þess að
fjöldi gesta sæti í kringum eld-
húsborðið. Ættingjar og vinir
sem droppuðu inn til að fá sér
kaffitár eða einhverjir sem ætl-
uðu bara að gista nokkrar nætur
vegna erinda sem þeir áttu til
Reykjavíkur. Allir voru velkomn-
ir og alltaf var boðið upp á kaffi
og meðlæti, jafnvel þótt lítið væri
til. Sérstaklega eru börnunum
minnisstæðar kleinurnar og
vöfflurnar hjá langömmu og
langafa og að alltaf mátti leika
sér í kringum þau, milli þess sem
hlaupið var í fangið á þeim til að
fá knús, áður en leiknum var
haldið áfram.
Heimilið þeirra Borghildar
ömmu (Boggu ömmu) og Svein-
björns afa varð miðpunktur fjöl-
skyldunnar. Þar hittust allir til að
ræða málin og ef ekkert tilefni
var til staðar, þá var bara kíkt í
kaffi eða mat. Fjölskyldan sam-
einaðist í kringum fjölmörg verk-
efni eins og að taka slátur á
haustin, taka upp kartöflur og
fara í berjamó, enda hefur mynd-
ast mikill vinskapur og sam-
heldni milli allra innan fjölskyld-
unnar, eitthvað sem maður er
þakklátur fyrir að hafa fengið að
upplifa og vera þátttakandi í.
Ekki man ég til þess að amma
reiddist eða talaði illa um náung-
ann. Hún vildi öllum vel og lagði
mikið á sig fyrir fjölskylduna.
Hún sagði aldrei nei við því að
passa barnabörnin eða lang-
ömmubörnin sín og alltaf var
pláss fyrir einn í viðbót.
Á stundu sem nú er þakklæti
efst í huga okkar. Eitt af því sem
fjölskyldan varð vitni að, var að
sjá hvernig vonlausar aðstæður
gátu snúist við. Fyrir nokkrum
árum fór amma í alvarlegt
hjartastopp og eftir að öll úrræði
höfðu verið reynd var ákveðið að
slökkva á þeim tækjum sem
héldu í henni lífinu. Þá samein-
aðist fjölskyldan í bæn. Ekki stóð
á bænasvarinu, því næstu daga
umbreyttist líf hennar og hún
náði ótrúlegum og góðum bata.
Við fjölskyldan erum því óend-
anlega þakklát Drottni fyrir
þessi viðbótarár sem við fengum
að ganga með henni og njóta
samvista við hana. Við fengum að
sjá og upplifa kraft bænarinnar
og kærleika Guðs.
Megi Guð blessa minningu
hennar.
Sveinbjörn, Linda, Guðlaug
María, Benjamín Ragnar,
Davíð Örn, Fjóla Dögg og
Salómon Blær.
Í dag kveðjum við ömmu okk-
ar, Boggu ömmu. Þegar við hugs-
um til baka þá munum við eftir
henni í eldhúsinu að baka, hún
bakaði heilu staflana af flatkök-
um, pönnukökum, kleinum og
alls konar bakkelsi sem okkur
fannst hið mesta lostæti. Þegar
hún sat fyrir framan sjónvarpið
prjónaði hún eða var með aðra
handavinnu til taks. Amma var
mjög gestrisin og lagði mikið upp
úr því að fá alla til sín, hún hélt
góðu sambandi við börnin sín,
barnabörnin og barnabarnabörn-
in. Það er stór hópur sem átti
mikið í ömmu og þannig vildi hún
líka hafa það. Það er ekki hægt
að minnast ömmu án þess að
minnast afa líka, en hann lést í
maí 2012. Afi hugsaði vel um
ömmu og var hennar stoð og
stytta í lífinu. Ein fallegasta
minning sem við eigum um ömmu
og afa er að hann hélt alltaf í
höndina á henni og sérstaklega
eftir að hún veiktist. Hann sat
ávallt við hlið hennar og héldust
þau í hendur eins og ástfangnir
unglingar. En það var augljóst að
ástin skein úr augum þeirra allt
fram á síðasta dag. Núna eru þau
sameinuð á ný og afi getur haldið
í höndina á ömmu aftur.
Lengst af bjuggu amma og afi
á Álfaskeiðinu en þaðan eru okk-
ar helstu minningar um þau. Þau
sátu sjaldnast auðum höndum,
voru alltaf að en gáfu sér alltaf
tíma fyrir okkur. Betri fyrir-
myndir er ekki hægt að hugsa
sér.
Amma og afi voru mjög sam-
heldin hjón og sýndu hvort öðru
mikla virðingu. Þegar við hugs-
um til baka er minningin um
ömmu og afa, ótrúlegt stolt, við
erum svo stoltar af því að hafa átt
þau fyrir ömmu og afa.
Þau voru mörg ferðalögin sem
farin voru með þeim og þá sér-
staklega þegar farið var norður á
Strandir í fjörðinn hennar ömmu,
Veiðileysufjörðinn. Fjörðurinn
skipar stóran sess í hjarta okkar.
Þangað förum við til að hlaða
batteríin. Við munum eftir ömmu
í eldhúsinu í Veiðileysu, að útbúa
eitthvað gott með kaffinu. Oftar
en ekki var veiddur silungur í
firðinum og var hann ansi oft í
matinn, kannski of oft að okkar
mati. Fjöruferðirnar með ömmu
að tína sprek og ýmislegt í eld-
inn, alltaf fundum við eitthvað
svakalega sniðugt í þessum fjöru-
ferðum, gönguferðirnar út á
Kamb og út að heilsulæk (allra
meina bót), ekki má gleyma
gönguferðunum sem farnar voru
til að tína fjallagrös. Við minn-
umst allra ferðanna í berjamó og
tjaldferðalaganna, sérstaklega
munum við ferðalögin með tjald-
vagninn þeirra í seinni tíð. Ferðin
í Skaftafell er þar ofarlega í
huga, göngutúr upp að jökli og
fyrstu harðsperrurnar.
Mikið söknum við þín og ykkar
beggja en við verðum ævinlega
stoltar og þakklátar að hafa átt
ykkur að. Með kæru þakklæti
kveðjum við þig í dag, elsku
amma, og hugsum til ykkar
beggja hönd í hönd.
Borghildur, Dagmar
og Steinþóra.
Sárt er að kveðja þig elsku
amma en það lætur okkur þó líða
betur að vita að þú sért komin í
fangið á þínum heittelskaða eig-
inmanni aftur. Við héldum að við
hefðum misst þig árið 2005 en
þökk sé kraftaverki fengum við
að hafa þig lengur í lífi okkar.
Þetta var óskiljanlegt en greini-
legt var að þú varst ekki tilbúin
að yfirgefa þennan heim strax.
Þú ert sterkasta kona sem við
vitum um. Kraftaverkið okkar
allra.
Við erum svo þakklátar fyrir
þann tíma sem við fengum með
þér. Öll jólin okkar saman, heim-
sóknirnar á Álfaskeiðið, Veiði-
leysuferðirnar, ferðirnar á Þing-
velli í berjamó og bara það að
vera hjá þér og horfa á þig
prjóna. Það var alltaf jafngott að
koma til þín og fá bros og faðm-
lag um leið og við löbbuðum inn.
Það er ykkur afa að þakka að allir
í fjölskyldunni eru svona nánir og
umhyggjusamir og sést það ein-
staklega vel á svona stundu.
Þú varst yndisleg, elsku
amma, og allt til dauðadags sá
maður hlýjuna í augunum þínum.
Takk fyrir allt sem þú gerðir fyr-
ir okkur. Mest af öllu: takk fyrir
að hafa alið upp bestu mömmu í
heiminum, því verðum við þér
ævinlega þakklátar.
Sofðu rótt, elsku amma okkar,
þín er sárt saknað.
Sara og Ásta Eygló.
Borghildur Svan-
laug Þorláksdóttir
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is
má finna upplýsingar um inn-
sendingarmáta og skilafrest.
Einnig má smella á Morgunblaðs-
lógóið efst í hægra horninu og
velja viðeigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birt-
ingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virk-
um dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, jafnvel þótt
grein hafi borist innan skilafrests.
Lengd | Hámarkslengd minning-
argreina er 3.000 slög. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda stutta
kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem aðstandendur
senda inn. Þar kemur fram hvar
og hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann
lést og loks hvaðan og hvenær út-
förin fer fram. Þar mega einnig
koma fram upplýsingar um for-
eldra, systkini, maka og börn, svo
og æviferil. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formálanum,
sem er feitletraður, en ekki í
minningargreinunum.
Minningargreinar