Morgunblaðið - 30.08.2013, Blaðsíða 25
linga – en þá þyrfti að ráða inn til
viðbótar við núverandi starfsfólk
sjúkraþjálfara og lækni í hálfa ef
ekki heila stöðu. Ef stafsemin yrði í
sparnaðarskyni lögð til annarrar
stofnunar, eins og rætt hefur verið,
sé í raun og veru sjálfhætt.
Til mikils að vinna
„Þegar fólk kemur hingað í
meðferð, sem að jafnaði er tvær
vinnuvikur, er mikilvægt að gefa sér
tíma. Fara í annað umhverfi úti á
landi, taka það rólega og endurmeta
stöðu. Að taka vinnu eða nám með
sér hingað getur truflað meðferð,“
segir Hrefna Frímannsdóttir, deild-
arstjóri sjúkraþjálfunar. Kemur sú
lýsing hennar heim og saman við
það sem margir telja: að orsök sjúk-
dóma er oft óheppilegur lífsstíll sem
fólk hefur tileinkað sér.
„Þjálfunin er heildræn. Hún
byggist á æfingaáætlun sem útfærð
er fyrir hvern og einn sérstaklega
og miðar að þjálfun nýja vöðva til
átaka og fyrir betri líkamsstöðu og
-beitingu. Förum í styrkjandi æfing-
ar og þjálfun. Þetta er spennandi
starf og árangurinn er yfirleitt góð-
ur. Langvarandi verkir í baki geta
haft áhrif á einstaklinga félagslega,
andlega og fjárhagslega svo eitt-
hvað sé nefnt. Því er til mikils að
vinna að sjúklingar fái hjálpi sem
fyrst.“
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Samstarfsfólk Hrefna Frí-
mannsdóttir yfirsjúkraþjálf-
ari og Jósep Blöndal læknir,
sem hefur sérhæft sig í með-
ferð bakveikra.
25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013
Starfsemi kaþólsku kirkjunnar á Íslandi hefur lengi
sett svip á mannlíf í Stykkishólmi. Nunnur úr St.
Franciskusreglunni komu vestur árið 1936 og voru í
Hólminum fram undir aldamót. Fyrir þeirra tilstilli
var sjúkrahús reist í Hólminum, þær starfræktu
leikskóla, prentsmiðju og sinntu ýmsu trúarlegu
starfi.
Í dag eru þrjár nunnur úr reglu Maríusystra í
Stykkishólmi. Klaustur þeirra og kapella er í vest-
urhluta St. Franciskusspítala, sem er áberandi
kennileiti í bænum. Þar er iðkað bænalíf og sungin
kaþólsk messadag hvern. Heilög Barbara er vernd-
ardýrlingur systranna.
Þerna móðurlegs kærleika
„Príorína frá Róm kom í heimsókn til Íslands og
var beðin að útvega kaþólska systur hingað til
lands. Hún sendi kort til Maríusystra í Brasilíu og
ég tók boðinu,“ segir hin brasilíska Mae de Deus –
sem í lauslegri þýðingu upp á íslensku útleggst sem
María Guðsmóðir. Hún kom til Íslands fyrir átta ár-
um; var fyrstu sjö árin í klaustrinu í Hafnarfirði en
kom í Hólminn á sl. ári. „Kærleikurinn er okkar
stóra hlutverk. Hugga og styðja.“
Þetta segir María um líf nunnanna sem við inn-
töku í reglu og klaustur undirgangast heit um skír-
lífi, hlýðni og fátækt.
„Ég hef heitið því að ástunda skírlífi fyrir Guðs-
ríki. Er fátæk því til staðfestingar á því að Guð er
hin eina sanna auðlegð mannsins. Er hlýðin, jafnvel
allt til dauða á krossi, svo að ég geti fylgt enn betur
Orðinu sem varð hold í skírlífi hans. Og svo að ég
megi betur þjóna Kristi vígi ég mig Maríu mey með
heiti mínu, sem þernu hennar móðurlega kærleika.“
Fyrirbænir í 33 löndum
María er 36 ára að aldri. Hún gekk í kaþólsku
regluna í Brasilíu fyrir þrettán árum og svo lá leiðin
til Íslands. Í Hólminum er hún einskonar abbadís
systranna þriggja. Í þeirra ranni er í mörg horn að
líta. Þær eru til dæmis við kistulagningar hjá lút-
erskum sóknarpresti bæjarins. Á laugardögum er
kirkjuskóli fyrir yngstu börnin og einnig unglinga-
starf. Þá er komið við hjá fólki kaþólskrar trúar á
Snæfellsnesi, en þar býr til dæmis fjöldi Pólverja
sem meðal annars starfa við fiskvinnslu.
Einnig sinna nunnurnar fyrirbænum. Fólk um
víða veröld – sjúkt og sorgmætt – leitar gjarnan
huggunar og máttarorða hjá kaþólsku kirkjunni –
og er fyrirbænarefnum svo miðlað áfram til nunna í
Maríusystraklaustrum í alls 33 löndum.
„Íslendingarnir leita lítið til okkar um fyrirbænir,
en okkar væri ánægjan. Bænin gefur styrk og von,“
segir Guðsmóðirin.
Í skírlífi í Stykkishólmi fyrir Guðsríki
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Systur Porta Coeli frá Bandaríkjunum og hin brasilíska Mae de Deus eru í reglu Maríusystra í klaustrinu í
Stykkishólmi. Þær sinna þar ýmsum störfum og hugga sjúka og sorgmædda með góðum fyrirbænum.
Ég er fátæk í auðlegðinni
Elsta mannvirki í vegagerð hér á
landi, sem vitað er hverjir unnu, er
Berserkjagata sem er nálægt vega-
mótunum til Bjarnarhafnar. Gatan var
rudd af tveimur sænskum berserkj-
um, þeim Halla og Leikni sem Ver-
mundur hinn mjóvi í Bjarnarhöfn flutti
til landsins árið 962, að því er fram
kemur í Eyrbyggju. Vermundur fékk
berserkina hingað til lands en þeir
voru svo óstýrlátir að hann réð ekki
við þá og kom þeim því til Styrs bróð-
ur síns.
Styr átti fullt í fangi með bræðurna
ódælu, ekki síst eftir að Halli sótti
fast að giftast Ásdísi, dóttur Styrs.
Hann samþykkti ráðahaginn með einu
skilyrði: að bræðurnir ynnu nokkrar
þrautir og var ein þeirra að ryðja göt-
una. Er því var lokið drap hann bræð-
urna og enn má sjá leifar af dys þeirra
við götuna. annalilja@mbl.is
Ódælir bræður ruddu veg
Morgunblaðið/Einar Falur
Berserkjahraun Þar ruddu sænsku
og ódælu berserkirnir götuna.
Níu stiga hiti, rigning, sjö metra sek-
únduvindur og tíu kílómetra skyggni.
Þannig var veðrið í Stykkishólmi í gær-
morgun, skv. veðurlýsingunni sem var
lesin í útvarpinu um klukkan tíu. Það er
merkilegur póstur í bæjarlífinu í Hólm-
inum að þar hafa veðurathuganir verið
stundaðar allt frá árinu 1845, þegar
Árni Thorlacius byrjaði að færa til bók-
ar hvernig vindurinn blési. Það hefur
verið gert óslitið síðan og frá 2007 hef-
ur Wiloletta Maszota frá Varsjá í Pól-
landi haft þetta hlutverk með höndum. Veðurupplýsingar úr Hólminum þykja
haldgóðar með tilliti til langtímasögu en einnig er athugunarstöðin þannig í
sveit sett að í hinu stóra samhengi fæst þaðan, ef svo má segja, ágætt með-
altal um veðráttu á Íslandi. sbs@mbl.is
Meðaltal veðráttunnar
Veður Wiloletta er á vaktinni.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Næsti viðkomustaður 100
daga hringferðar Morgunblaðs-
ins er Búðardalur.
Á morgun
Starfandi er á vegum land-
læknis hópur sem Jósep Blön-
dal veitir forstöðu og yfirfara á
verkferla í sambandi við mál
baksjúklinga og þá meðferð
sem því fólki stendur til boða.
Þau efni sem í brennidepli verða
hjá hópnum eru menntun fag-
stétta sem sinna verkjum í baki
og hálsi, fjallað verður um úr-
ræði sem sjúklingum standa til
boða, nýtingu þeirra, árangur
og kostnað og svo auðvitað
fræðsla til almennings.
„Hér á St. Franciskusspítala í
Stykkishólmi höfum við, með
stuðningi systrasjóðs spítalans,
að undanförnu verið að skoða
kostnaðartölur í löndum með
sambærilega heilbrigðis- og fé-
lagsþjónustu í því augnamiði að
fá vísbendingar um kostnað
vegna háls- og bakvandamála
hér á landi. Sé miðað við tölur
frá Danmörku gæti kostnaður í
íslenskri velferðarþjónustu
vegna bak- og hálsvandamála
verið á annan tug milljarða
króna,“ segir Jósep Blöndal
læknir.
Veikindi sem
kosta millj-
arða króna
STARFSHÓPUR KANNAR
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík
Sími 567 4840
www.bilo.is | bilo@bilo.is
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík
Sími 580 8900 | bilalind.is
Vantar alltaf
fleiri bíla á skrá!
Fylgstu með okkur á facebook
Fylgstu með okkur á facebook
MIKIL SALA
SUBARU FORESTER
09/2008, ekinn 94 Þ.km,
sjálfskiptur.
Verð 2.990.000.
Raðnr.283499
FORDKuga Trend
Diesel. Árgerð 2011, ekinn 77
Þ.KM, lyklalaust aðgengi, 6 gírar.
Verð 3.890.000.
Rnr.400021
SUBARU FORESTER
06/2006, ekinn aðeins 87 Þ.km,
sjálfskiptur.
Verð 1.690.000.
Raðnr.135968
VOLVO XC90 D5
Dísel. Árgerð 2007, ekinn aðeins
67 Þ.KM, sjálfskiptur, leður.
Verð 6.450.000.
Rnr.103902