Morgunblaðið - 30.08.2013, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013
Björn Már Ólafsson
bmo@mbl.is
Í drögum að nýju aðalskipulagi
Reykjavíkurborgar hefur borginni
verið skipt upp í þrjú svæði eftir
kröfum um fjölda bílastæða eins
og sjá má á myndinni að ofan.
Í umfjöllun Morgunblaðsins í
gær um íbúðirnar sem rísa við
Vesturbugt við gamla Slippsvæðið
í Reykjavík kom fram að gert er
ráð fyrir 0,8 bílastæðum á hverja
íbúð, og verða þau öll neðanjarðar.
Íbúðirnar við Vesturbugt eru á
svæði 1 en þar skal samkvæmt að-
alskipulagi miða við eitt bílastæði
að hámarki á íbúð við endurnýjun
byggðar/nýbyggingu.
Á svæði 2 skal miða við eitt bíla-
stæði á hverja 120 fermetra íbúð-
arhúsnæðis. Á svæði 3 skal miða
við 2 bílastæði á lóð fyrir íbúðar-
hús fyrir íbúðir stærri en 80 fer-
metrar, en eitt bílastæði á lóð fyrir
íbúðarhús fyrir íbúðir 80 fermetra
eða minni.
Stefna borgarinnar
Hildur Gunnlaugsdóttir, arki-
tekt og umhverfisfræðingur hjá
skipulagssviði Reykjavíkurborgar,
segir það stefnu borgarinnar að
minnka umsvif einkabílsins og
styðja frekar undir aðra ferða-
máta.
„Það eru stór atvinnusvæði í
miðborginni þar sem margir eru í
til dæmis verslunar- og þjónustu-
störfum, þannig að okkur finnst
eðlilegra að það séu færri bíla-
stæði við íbúðir á þessu svæði,“
segir hún.
Hildur segir ástæðuna fyrir því
að þetta hlutfall á milli íbúða og
stæða hafi verið fengið einnig
tengjast verðinu á íbúðunum.
„Þetta snýst líka um að breyta
byggðinni og byggðarmynstrinu.
Það er dýrara að kaupa íbúð með
bílakjallara svo við vildum gera
fólki kleift að geta keypt íbúð á
svæðinu án þess að þurfa að borga
líka fyrir bílastæði í bílakjallara.“
Skylda að hafa hjólageymslur
Í drögum að aðalskipulagi er
það einnig stefna borgarinnar að
stæði eða hjólageymsla skuli vera
fyrir lágmark eitt reiðhjól á hverja
íbúð á öllum svæðunum þremur.
3
21
2
0 1 20,5 Km
Bílastæðasvæði
Svæði 1
Svæði 2
Svæði 3
Heimild: Reykjavíkurborg
Bílastæðin færri
Gert ráð fyrir 0,8 bílastæðum á íbúð í miðborg Reykjavíkur
í drögum að nýju aðalskipulagi Borgin vill fækka stæðum
Bílastæðastefna
» Í drögum að nýju aðal-
skipulagi kemur fram að vinna
eigi markvissa áætlun um
gjaldskyldu bílastæða í
borgarlandinu
» Í miðborgarkjarnanum verði
bílastæða að jafnaði ekki kraf-
ist af húsbyggjendum en þeim
gert skylt að greiða bílastæða-
gjöld vegna byggingar almenn-
ingsbílastæða
Morgunblaðið/Rósa Braga
Bílastæðamál „Við vildum gera fólki kleift að geta keypt íbúð á svæðinu án
þess að þurfa að borga líka fyrir bílastæði í bílakjallara.“
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Við vorum búin að koma fénu niður
af fjalli um sexleytið. Þetta gekk
ágætlega. Kindurnar voru ekkert
sérstaklega heimfúsar, þær fóru
mjög hátt í fjöllin. Menn voru að fara
upp í 1.000 metra hæð eftir þeim,“
segir Þórarinn Ingi Pétursson, for-
maður Landssamtaka sauðfjár-
bænda og bóndi á Grýtubakka I, um
smölun í Grýtubakkahreppi í gær.
Spurður hvort veðrið hafi
þróast á þann veg sem spáð var
sagði Þórarinn Ingi að enn ætti eftir
að koma í ljós hvort veður yrði jafn
slæmt um helgina og spáð var.
„Það kom aldrei neitt annað til
greina hjá okkur en að ná niður
fénu. Mér heyrist að það hafi verið
gert ansi víða,“ sagði Þórarinn Ingi
og tók fram að hann hefði lítið getað
rætt við aðra bændur vegna mikilla
anna við smölunina síðustu daga.
Eiga um 2.000 kindur á fjalli
„Við erum sæl með að vera
komin með féð heim á tún. Við ætl-
um að rétta í fyrramálið. Við eigum
sjálf rúmlega um 2.000 kindur á
fjalli. Við náðum flestum niður. Hér
eru fjórir bæir sem eiga fé á þessu
svæði, þ.e. Grýtubakkabæirnir, I og
II, Fagribær og Höfði. Alls eru á
milli 4.000 og 5.000 fjár á svæðinu.“
Spurður hvenær smölunin hófst
segir Þórarinn Ingi að bændurnir
hafi farið út eftir á þriðjudaginn var.
„Venjulega tekur það okkur þrjá
daga að smala þetta svæði en við
smöluðum það núna á tveim dögum.
Menn sváfu rétt yfir blánóttina.
Gærdagurinn [miðvikudagurinn] var
þannig að það var farið á fætur fjög-
ur um morguninn og við vorum
komnir í hús klukkan hálf tíu um
kvöldið,“ sagði Þórarinn Ingi.
Smölunin hófst því 27. ágúst og
segir Þórarinn Ingi að í venjulegu
ári hefjist hún um 4. september og
ljúki í kringum 7. september.
Hann segir gróft á litið um
300.000 fjár á Norðurlandi öllu.
Þórhildur Þorsteinsdóttir,
bóndi á Brekku í Borgarfirði, sagði
smölun hafa hafist í gær á Holta-
vörðuheiði í Snjófjöllum og á efsta
hluta heiðinnar. Bændur hafi verið í
sambandi við Veðurstofuna og svo
tekið þá ákvörðun um miðjan dag að
hætta smölun, enda væri minnkandi
líkur á snjókomu á afréttinum.
Smöluðu á milli
4.000 og 5.000
fjár af fjalli
Annir bænda í Grýtubakkahreppi
Smölun á Holtavörðuheiði var hætt
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Göngur Bændur og búalið að
störfum í S-Þingeyjarsýslu.
Veðurstofa Íslands sendi frá sér viðvörun vegna hugsanlegrar vatnavár.
„Spáð er mikilli rigningu á Vestur-, Suðvestur-, Suður- og Suðausturlandi
seint á fimmtudag og fram yfir hádegi á föstudag. Búast má við mestri
úrkomu í kringum fjöll og jökla á þessum svæðum og þar gæti
sólarhringsúrkoma farið vel yfir 100 mm. Varað er við vexti í ám á Snæ-
fellsnesi, á Hvítársvæðinu (bæði vestur- og suður af Langjökli), kringum
Eyjafjalla- og Mýrdalsjökul og við sunnanverðan Vatnajökul. Vöð yfir ár á
þessum svæðum geta orðið varhugaverð.“ Seint í gærkvöldi spáði Veður-
stofan suðlægri átt, 3-10 m/s og rigningu sunnan og vestan til en þurrt
að kalla á Austurlandi. Vaxandi norðvestan- og vestanátt er spáð í dag,
15-23 m/s seinnipartinn norðvestan til og talsverðri eða jafnvel mikilli
rigningu. Snjókoma verði ofan 200-300 metra hæðar yfir sjó. 13-20 suð-
vestan til og rigning, en slydda eða snjókoma til fjalla.
Veðurstofan varar við vatnavá
VIÐVÖRUN VEÐURSTOFUNNAR
Leikskólanum 101 í Reykjavík hef-
ur verið lokað. Eigandi skólans,
Hulda Linda Stefánsdóttir, til-
kynnti þetta í yfirlýsingu sem hún
sendi fjölmiðlum síðdegis í gær. Til
stóð að opna leikskólann í gær, en
af því varð ekki. Skólinn er sem
kunnugt er til rannsóknar hjá lög-
reglu vegna meints harðræðis
starfsmanna á ungbörnum í skól-
anum í sumar.
„Ég hef tekið þá ákvörðun að
hætta rekstri Leikskólans 101. Ég
vonaðist til þess að opna hann aftur
og óskaði eftir aðstoð og úrræðum
frá Barnavernd Reykjavíkur og
Reykjavíkurborg til þess að það
gæti orðið með trúverðugum hætti
en beiðni minni var hafnað. Á ég því
engra annarra kosta völ en að loka
skólanum fyrir fullt og allt,“ segir
Hulda í yfirlýsingunni, þetta hafi
verið afar þungbær ákvörðun.
„Tekið skal fram að þær ásakanir
sem fram hafa komið í minn garð
eru ekki á rökum reistar. Ég vil
jafnframt koma því á framfæri að
ég harma mjög þá framkomu í garð
barnanna sem gögn í málinu virðast
sýna og álagið sem foreldrar
barnanna hafa verið undir síðustu
daga. Ég mun halda áfram fullri
samvinnu við þá sem rannsaka mál-
efni leikskólans,“ segir Hulda enn-
fremur í yfirlýsingunni.
Málefni leikskólans voru rædd á
fundi borgarráðs í gær en fjármál
skólans og greiðsla leikskólagjalda
hafa einnig komið upp í umræðunni.
„Afar þungbær ákvörð-
un“ að loka leikskólanum
Eigandi leikskólans 101 segist ekki hafa haft annan kost
Leikskóli Dyr Leikskólans 101 hafa
verið lokaðar frá því í síðustu viku.
Morgunblaðið/Rósa Braga