Morgunblaðið - 30.08.2013, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 30.08.2013, Blaðsíða 29
FRÉTTIR 29Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013 FRÉTTASKÝRING Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Rana, sem býr ásamt manni sínum í Damaskus, höfuðborg Sýrlands, hef- ur ákveðið að yfirgefa heimili sitt og flytja til foreldra sinna í miðborginni. Hjónin búa í Qudsaya, í norðurhluta borgarinnar, nærri fjallinu Qassioun, þar sem nokkrar herstöðvar eru stað- settar. „Að vera áfram heima væri of hættulegt. Ég fer til foreldra minna, ásamt manninum mínum, og verð þar um tíma, þar til allt er yfirstaðið,“ sagði hún í samtali við AFP í gær. Íbúar Damaskus búa sig nú undir það óumflýjanlega: að erlend ríki geri árásir á skotmörk í Sýrlandi, til að refsa stjórnvöldum fyrir notkun efna- vopna. Hin þrítuga Lana, sem starfar að mannúðarmálum, segir marga kollega sína hafa tekið sér leyfi frá störfum og hyggjast ferðast um Evr- ópu og Ayssar, kona hans og tvö börn, hafa pakkað í töskur og ætla að dvelja í Beirút í Líbanon, þar sem foreldrar hans hafa tekið hús á leigu. Íhlutun muni enda með sigri Í höfuðborginni má víða sjá lög- reglumenn á ferli, mörgum götum hefur verið lokað og opinberar bygg- ingar styrktar með sekkjum af sandi. Hermálayfirvöld undirbúa sig undir hvað sem koma skal. „Við, líkt og allir herir heims, und- irbúum okkur fyrir verstu mögulegu aðstæður. Við höfum gripið til að- gerða til að vernda landið fyrir árás og leggjum grundvöll að fullnægjandi viðbrögðum,“ sagði sýrlenskur emb- ættismaður við AFP. Undirbúningur fyrir yfirvofandi aðgerðir Vesturveldanna hefur staðið yfir í landinu síðustu sólarhringa og hafa hersveitir m.a. rýmt líkleg skot- mörk í Damaskus, Hama og Homs. Sýrlenska ríkissjónvarpið hafði eftir forsetanum, Bashar al-Assad, í gær að hvers kyns íhlutun myndi enda með sigri sýrlensku þjóðarinnar. Stjórnvöld þeirra ríkja sem ræða nú aðgerðir í Sýrlandi hafa einnig ver- ið að setja sig í stellingar, þótt engar ákvarðanir hafi enn verið teknar um til hvers konar aðgerða verður gripið né hvenær látið verður til skarar skríða. Samkvæmt bandarískum yf- irvöldum er fimmta herskip banda- ríska flotans á leið til Miðjarðarhafs- ins og Bretar hafa tilkynnt að þeir hafi sent herþotur til Kýpur. Þá eru tvö rússnesk herskip væntanleg á svæðið, líklega til að gæta hagsmuna sýrlensku stjórnarinnar. Tillaga Camerons felld Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði á miðvikudag að varla nokkur efaðist lengur um að efnavopn hefðu verið notuð með stórtækum hætti gegn sýrlensku þjóðinni og sagði stjórnarandstæðinga ekki hafa burði til að standa að slíkum árásum. Spurður að því hverju hernaðarað- gerðir myndu skila, sagði hann að stjórn Assads hefði þá fengið afger- andi skilaboð um að hún ætti ekki að endurtaka leikinn. Illa hefur gengið að ná alþjóðlegri samstöðu um aðgerðir en breska þingið felldi í gær tillögu forsætisráð- herrans, Davids Camerons, um hern- aðaríhlutun af hálfu Breta með 285 at- kvæðum gegn 272. Cameron sagði að ljóst væri að þingið vildi ekki að Bret- ar tækju þátt í hernaði í Sýrlandi. Ed Miliband, leiðtogi Verkamanna- flokksins, sagðist ekki útiloka hernað en að fara þyrfti vandlega yfir málið og m.a. gefa Sameinuðu þjóðunum tíma til að fara yfir niðurstöður vopnaeftirlitsins. Hann sagði að breska þingið ætti ekki að taka skyndiákvörðun til að mæta tíma- mörkum annarra og að minnugur inn- rásarinnar í Írak væri hann staðráð- inn í að draga lærdóm af sögunni. Breska leyniþjónustan segir afar líklegt að sýrlensk stjórnvöld hafi staðið að baki árásinni í síðustu viku og að þau hafi beitt efnavopnum í að minnsta kosti 14 önnur skipti. Undirbúa sig fyrir aðgerðir  Íbúar Damaskus flýja borgina af ótta við hernaðaraðgerðir Vesturveldanna  Sýrlenskar hersveitir rýma líkleg skotmörk  Obama segir stjórnvöld ábyrg  Tillaga um hernað felld á breska þinginu SÁDI ARABÍA ÍTALÍA ALBANÍA DJÍBÚTÍ ÍRANÍRAK TYRKLAND SAF KÝPUR GRIKKLAND JÓRDANÍSRAEL EGYPTALAND LÍBANON MIÐJARÐARHAF ARABÍUHAF RAUÐA- HAF KASPÍAHAF SVARTAHAF KÚVÆT KATAR BAHREIN SÝRLAND 500 km herskip BNA Sýrlenski stjórnarherinn USS Mahan USS Ramage USS Barry USS Gravely USS Truman á leið til Omanflóa Napólí Sikiley Sigonella Incirlik Izmir Suda Krít Heimild : Pentagon, IISS, NATO Gaziantep BNA 5. floti 7 Mirage 2000 6 Rafale 700 650 loftvarnastöðvar 1,000 F-16 Kahramanmaras Adana Akrotiri Herstöð NATO Patriot flugskeyti Herlið BNA 6. floti 4 4 2 freigátur 365 orrustuflugvélar Þúsundir rússneskra flugskeyta Erlendur herafli og herstöðvar við Miðjarðarhafið og í Mið- Austurlöndum og valinn hernaðarviðbúnaður Sýrlands Sýrland undirbýr sig fyrir viðbrögð Vesturveldanna Kafbátar staðsetningar óþekktar Öryggisráð SÞ Ríki með fastafulltrúa og neitunarvald BNA Rússland KínaBretland Frakkland Fylgjandi Á mótiHernaðaraðgerðir Ólík viðhorf » Stjórnvöld í Kanada hafa lýst yfir stuðningi við íhlutun Vest- urveldanna í Sýrlandi en hyggj- ast ekki taka þátt. » Forseti Rússlands, Vladimir Pútín, og Angela Merkel, kansl- ari Þýskalands, töluðu saman í síma í gær og voru sammála um nauðsyn þess að öryggisráðið tæki til skoðunar skýrslu vopna- eftirlitsmanna. » Meirihluti Þjóðverja, 58%, er á móti hernaðaríhlutun í Sýr- landi, samkvæmt þýska ríkissjónvarpinu. » Vatíkanið sendi út tilkynn- ingu í gær, eftir fund Frans páfa og Abdullah II Jórdaníukon- ungs, þar sem m.a. sagði að viðræður væru eina leiðin til að binda enda á átökin í landinu. » Donald Rumsfeld, fyrrver- andi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna og einn af arki- tektum hernaðaraðgerðanna í Írak og Afganistan, sagði á mið- vikudag að Hvíta húsið hefði enn ekki réttlætt árásir á Sýr- land. AFP Á móti íhlutun Mótmælendur í Bretlandi, Frakklandi, Tyrklandi og á Vest- urbakkanum mótmæltu í gær hernaðaríhlutun Vesturveldanna í Sýrlandi. Laugavegi 174 | Sími 590 5040 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16 Komdu og skoðaðu úrvalið! VW Passat Highline EcoFuel at Árgerð 2012, bensín, metan Ekinn 2.400 km, sjálfsk. Ásett verð: 4.450.000 kr,- VW Passat Comfort Árgerð 2005, bensín Ekinn 95.000 km, beinsk. Ásett verð: 1.850.000 kr,- TILBOÐ: 1.490.000,- vw Touareg 3,2 V6 Árgerð 2004, bensín Ekinn 133.000 km, sjálfsk. Ásett verð: 2.490.000 kr,- TILBOÐ: 1.890.000,-Hyundai IX35 GLS Árgerð 2011, bensín Ekinn 38.500 km, sjálfsk. Ásett verð: 4.190.000 kr,- FERÐAFÉLAGAR AF ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM HJÁ HEKLU NOTUÐUM BÍLUM MM Pajero 3,2 Gls Árgerð 2006, dísil Ekinn 133.400 km, sjálfsk. Ásett verð: 2.990.000 kr,-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.