Morgunblaðið - 30.08.2013, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 30.08.2013, Blaðsíða 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013 Ég væri til í plötuspilara í afmælisgjöf þar sem minn er bil-aður,“ segir Gunnar Agnarsson, nemi í málmiðn við Iðnskól-ann í Hafnarfirði, um hvers hann óskar sér helst á afmæl- isdaginn. Gunnar segist vera í náminu aðallega til yndisauka, en hann er stúdent frá Flensborgarskólanum og starfar samhliða námi við utanhúsálklæðningu hjá byggingarverktaka. „Ég á nokkuð stórt plötusafn og hef reynt að sanka að mér plötum héðan og þaðan auk þess sem að ég fékk mikið af gömlum plötum frá foreldrum mínum. Ég á til dæmis tvöfalt sett af öllum Dire Straits-plötunum. Það er mjög gaman að því,“ segir Gunnar sem er fær gítarleikari þó að hann segist því miður vera að breytast meira og meira í einungis gítareiganda frekar en gítarleikara. Gunnar segist ætla að taka afmælisdaginn rólega. „Ég fer í vinn- una og hugsa að ég hætti um þrjúleytið. Þá fer ég heim og viðra Simba sem er labrador-hundurinn minn og eftir það geri ég kross- arann kláran og tek einhvern góðan enduro-hring,“ segir Gunnar og bætir við að hann muni að öllum líkindum taka góðan vin með sér í hjólatúrinn og borða góða máltíð eftir á. „Þrátt fyrir að plönin séu ekki mikil á morgun vona ég að ég komist á gæs um helgina, það væri algjör draumur. Þá mun ég líklegast halda upp á afmælið á gæsinni,“ segir Gunnar að lokum. agf@mbl.is Gunnar Agnarsson er 22 ára í dag Ljósmynd/Hinrik Þór Ágústsson Afmælisbarn Gunnar segir að ferðagasgrill sé besta afmælisgjöfin hans á seinni árum, en grillið notar hann mikið í útilegum. Vantar plötuspilara fyrir Dire Straits Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Sigrún Sól og Nadía Brá voru með sölubás á krakkadegi Orm- steitis á Egils- stöðum og seldu þar leikföng sem þær voru hættar að nota. Þær söfn- uðu 5.700 kr. sem þær færðu Rauða krossinum. Söfnun Selfoss Valdimar Elí fæddist 7. sept- ember kl. 9.51. Hann vó 4.020 g og 54 cm langur. Foreldrar hans eru Ásta Ósk Sigurðardóttir og Viðar Valdi- marsson. Z-Brautir og gluggatjöld Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is Úrval - gæði - þjónusta Allt fyrir gluggana á einum stað Mælum, sérsmíðum og setjum upp L ilja fæddist í Reykja- vík 30.8. 1973, ólst upp í Kópavogi, Hafn- arfirði og Reykjavík, og síðan á Hvolsvelli frá tíu ára aldri. Hún hóf skóla- göngu í Ísaksskóla, fimm ára, var í Víðistaðaskóla, Kársnesskóla, Ölduselsskóla, grunnskólanum á Hvolsvelli og gagnfræðaskólanum þar. Hjá ömmu Siggu í Kópavogi „Þar sem enginn framhaldsskóli var á Hvolsvelli flutti ég til ömmu Siggu í Kópavoginn og bjó hjá Lilja Bjarklind Kjartansdóttir, verkefnastj. hjá Landlækni – 40 ára Í göngutúr Lilja og synirnir, Kristófer Óli og Ólafur Jóhann, hvíla sig á gömlum klassískum strætóbekk. Ferðast um eigið land og tekur ljósmyndir Ferðarómantík Lilja Bjarklind og eiginmaðurinn, Sigurður Ólafsson. Reykjavík Apríl Glóa fæddist 15. des- ember kl. 20.40. Hún vó 3.050 g og var 48 cm löng. Foreldrar hennar eru Ásthildur Þorsteinsdóttir og Friðrik Þór Friðriksson. Nýir borgarar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.