Morgunblaðið - 30.08.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.08.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 2013 Furðulegt er að sjá og heyra við-horf borgarfulltrúa og ann- arra pólitískra forystumanna Besta flokksins og Samfylkingarinnar þegar þeir ræða um Reykjavík, ekki síst um umferð- armál í borginni.    Kjörnir fulltrúarmeirihluta borgarstjórnar héldu sig að vísu fjarri þegar borgar- búar flykktust á fund til að ræða nýjasta furðuverk borgarstjórnar, fuglahúsin og flöggin á miðri Hofsvallagötunni.    Formaður umhverfis- og skipu-lagsráðs, Páll Hjaltason, hafði þó þetta fram að færa: „Það er þannig að Reykjavík er bílaborg. Hún er ekki hjólaborg og varla fyrir gangandi heldur.“    Hvað á hann við? Nú er það svoað meðfram götum í Reykja- vík eru gangstéttir og raunar beggja vegna í flestum tilvikum. Í hvaða skilningi er Reykjavík þá „varla fyrir gangandi“?    Reykvíkingar, líkt og aðrirlandsmenn, hafa valið sér einkabílinn sem sitt helsta sam- göngutæki, en borgin er engu að síður greiðfær þeim sem kjósa að ferðast á annan hátt, einkum gangandi.    Hvernig stendur á því að kredd-urnar gegn helsta ferðamáta almennings hafa náð slíkum und- irtökum í borgarstjórn Reykjavíkur að pólitískir fulltrúar eru slegnir algerri blindu á málefni borgar- innar?    Hvers vegna stíga kjörnirfulltrúar ekki fram til varnar almenningi? Páll Hjaltason Engar gangstéttir í Reykjavík? STAKSTEINAR Veður víða um heim 29.8., kl. 18.00 Reykjavík 10 rigning Bolungarvík 5 rigning Akureyri 14 skúrir Nuuk 3 skýjað Þórshöfn 12 alskýjað Ósló 17 skýjað Kaupmannahöfn 18 skýjað Stokkhólmur 18 léttskýjað Helsinki 18 heiðskírt Lúxemborg 22 heiðskírt Brussel 22 heiðskírt Dublin 19 skýjað Glasgow 17 skýjað London 23 heiðskírt París 22 heiðskírt Amsterdam 22 heiðskírt Hamborg 22 heiðskírt Berlín 22 heiðskírt Vín 21 skýjað Moskva 17 skýjað Algarve 23 léttskýjað Madríd 23 þrumuveður Barcelona 27 léttskýjað Mallorca 27 léttskýjað Róm 27 léttskýjað Aþena 30 léttskýjað Winnipeg 22 skúrir Montreal 21 léttskýjað New York 22 alskýjað Chicago 27 léttskýjað Orlando 31 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 30. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:06 20:52 ÍSAFJÖRÐUR 6:03 21:05 SIGLUFJÖRÐUR 5:45 20:48 DJÚPIVOGUR 5:33 20:23 Martha Andreasen, fyrrverandi aðalendurskoðandi fram- kvæmdastjórnar Evrópusambandsins, flytur fyrirlestur í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, í stofu N-132 kl. 17–18 föstudaginn 30. ágúst. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. Þegar Andreasen gagnrýndi spillinguna og óreiðuna í rekstri og bókhaldi Evrópusambandsins, var henni sagt upp. Reikningar Evrópusambandsins hafa ekki fengist endurskoðaðir árum sam- an. Andreasen situr nú á Evrópuþinginu fyrir breska Íhaldsflokkinn og hefur gagnrýnt Evrópu- sambandið í bókum og ritgerðum. Björn Bjarnason, fyrrv. dómsmálaráðherra, stjórnar fundinum. Að honum standa Íslenskt þjóð- ráð, Rannsóknarsetur um nýsköpun og hagvöxt (RNH), Evrópuvaktin, Ísafold, Heimssýn og Nei við ESB. Fundurinn er liður í samstarfsverkefni RNH og AECR um „Evrópu, Ísland og framtíð kapítalismans“. Að fundinum loknum verður móttaka á staðnum. Hvert stefnir ESB? HVERT STEFNIR EVRÓPUSAMBANDIÐ? Ólína ekki verið ráðin Ranghermt var í frétt Morgunblaðs- ins í gær að Ólína Þorvarðardóttir, fv. þingmaður Samfylkingarinnar, hefði verið ráðin forseti hug- og fé- lagsvísindasviðs Háskólans á Ak- ureyri. Hið rétta er að ráðningar- ferlinu er ekki lokið, heldur hlaut Ólína flest atkvæði í umsagnarferli sviðsins. Samkvæmt reglum skólans er það rektor sem ræður forseta fræðasviðs, að fenginni umsögn við- komandi sviðs og að höfðu samráði við háskólaráð. Reiknað er með að ákvörðun um ráðningu liggi fyrir um miðjan september. Beðist er velvirðingar á rang- herminu. LEIÐRÉTT Ákveðið hefur verið að heimila krókabátum makrílveiðar til 20. september, samkvæmt upplýs- ingum úr sjávarútvegsráðuneyt- inu. Viðmiðunarafli til færaveiða var 3.200 tonn á vertíðinni og er stutt í að það hámark náist. Samkvæmt upplýsingum á vef Fiskistofu var í gær búið að landa tæplega 3.100 tonnum. Alls hafa 85 bátar nýtt leyfi sín til þessara veiða á grunnslóð í sum- ar. Veiðarnar fóru rólega af stað, en hafa glæðst eftir því sem liðið hefur á. Mjög gott skot gerði í Steingrímsfirði snemma í mán- uðinum, síðan var aðalveiðisvæð- ið út af Vogum og í grennd við Keflavík, en síðustu daga hafa margir bátanna verið við Snæ- fellsnes. aij@mbl.is Krókabátar fá að veiða makríl til 20. september Morgunblaðið/Þorkell Smábátar Veiða má makríl á króka áfram til 20. september næstkomandi. Harður tveggja bíla árekstur varð á gatnamótum Víkurvegar og Þúsald- ar í Grafarholti í gærkvöldi. Þrír voru fluttir með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Að sögn Slökkviliðs höfuðborgar- svæðisins (SHS) var fólkið ekki al- varlega slasað. Tilkynning um slysið barst klukk- an 20.56. Að sögn SHS var í fyrstu talið að ökumaður annarrar bifreið- arinnar væri fastur í bílnum. Það þurfti hins vegar ekki að beita klipp- um til þess að ná honum út. Miklar tafir urðu á umferð á með- an lögregla og sjúkralið athöfnuðu sig á vettvangi, en aðgerðum lauk um kl. 21.20. Tildrög slyssins voru í gærkvöldi óljós og ekki lágu fyrir nánari upp- lýsingar þegar Morgunblaðið fór í prentun. Þrír á slysadeild eft- ir harðan áreksturKarlmaður í annarlegu ástandigerði tilraun til að ræna apótek íSpönginni í Grafarvogi í gærkvöldi. Maðurinn ógnaði starfsfólki með hnífi og heimtaði lyf. Árni Þór Sig- mundsson, aðstoðaryfirlögreglu- þjónn lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu, sagði í samtali við mbl.is að lögreglumenn hefðu verið fljótir á staðinn og náð að yfirbuga mann- inn. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, var ekki viðræðuhæfur og fékk að gista í fangaklefa. Skýrsla verður tekin af honum í dag. Tilraun til að ræna apótek í Grafarvogi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.