Morgunblaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2013
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir
Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
aslaug@aslaugarna.com
„Ég gifti fjögur pör í þremur kirkjum á laug-
ardaginn, svo það er í nógu að snúast,“ segir
Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur. Á laugar-
daginn er 7. september 2013 sem inniheldur töl-
urnar 7-9-13, sem lengi hafa þótt sérstakar
happatölur. Talið er að dagurinn sé vinsælasti
brúðkaupsdagur ársins.
„Dagurinn verður mjög stór, ég þurfti að neita
pörum því fólk vill gifta sig á sama tíma og ég tel
mig eiginlega fullbókaðan með fjórar giftingar,“
segir Hjálmar sem bendir á að hver hjónavígsla
sé einstök. „Maður má ekki fá færibandatilfinn-
ingu.“ Hjálmar segir að burtséð frá trú eða hjátrú
vilji fólk hafa allt með sér á stóra daginn. „Eitt
parið hafði þó ekki áttað sig á þessari tengingu við
happatöluna, en öll pörin eiga það sameiginlegt að
telja sig vera mjög heppin að hafa fundið hvort
annað.“
Fannst þetta alltaf flott dagsetning
Selma Harðardóttir gengur að eiga unnusta
sinn, Andra Ingólfsson, á laugardaginn. „Þegar
ég var lítil fannst mér þetta alltaf ótrúlega flott
dagsetning,“ segir Selma, en hún áttaði sig á því
fyrir tæpum fimm árum að daginn bæri upp á
laugardag. „Þegar hann bað mín fyrir rúmu ári
kom engin önnur dagsetning til greina.“
Tölurnar heilagar eða heillatölur
Samkvæmt gömlum hugmyndum býr talan sjö
yfir óvenjulegum töframætti. Hún er tala full-
komnunar og hvíldar og er langalgengasta talan í
Biblíunni. Hún er talin heilög og um leið happa-
tala. Talan níu er almennt álitin heillatala og kem-
ur víða við sögu í þjóðtrú. Veigamikið atriði er að
meðgöngutími kvenna er níu mánuðir. Flestir
þekkja þá hjátrú að telja töluna þrettán óheilla-
tölu. Sú trú að þessi tala sé sérstök, annaðhvort
hættuleg eða heilög, er talin mjög gömul.
Morgunblaðið/Ómar
Brúðkaup Fjölmargir munu ganga
í það heilaga á laugardaginn nk.
„Dagurinn verður mjög stór“
Fjölmörg brúðkaup eru 7. september 2013, en 7-9-13 eru taldar happatölur
Læknaráð Landspítalans sendi í
gær frá sér ályktun þar sem ítrek-
aðar eru áhyggjur af mönnun al-
mennra lækna á lyflækningasviði
spítalans. Telur læknaráð spítalans
að það ástand sem nú hefur myndast
og kallar á bráðaaðgerðir í skipu-
lagningu á læknaþjónustu innan
sviðsins hafi verið fyrirséð þegar í
vor.
Svo mikil vöntun er á starfandi
læknum á lyflækningasviði spítalans
að læknaráð telur það munu hafa
veruleg áhrif á læknisþjónustu við
sjúklinga sem leita til spítalans. Þá
bendir læknaráð Landspítalans á að
ástandið muni einnig bitna á kennslu
læknanema og stefna þar með hlut-
verki spítalans sem háskólasjúkra-
húss í hættu.
Neyðaráætlun í gildi
Um síðustu mánaðamót var virkj-
uð aðgerðaáætlun á Landspítalanum
vegna manneklu á lyflækningasviði.
Gert er ráð fyrir stöðum 25 deild-
arlækna á sviðinu en þeir eru aðeins
um tugur nú og fer fækkandi.
Læknanemar hafa létt undir á deild-
inni í sumar en nú í haust snúa þeir
aftur á skólabekk og eykst þá vand-
inn á nýjan leik.
Læknaráð spítalans skorar að lok-
um á yfirstjórn hans að leysa sem
fyrst úr málunum í samvinnu við
lækna sviðsins. bmo@mbl.is
Læknaráð um LSH Óttast að hlut-
verki spítalans sem háskólasjúkra-
húss sé stefnt í hættu.
Læknaráð
lýsir yfir
áhyggjum
Um helmingur
staða mannaður
Kennsl hafa verið borin á lík manns
sem kom upp í veiðarfæri togara sem
var við veiðar við Suðurland í síðustu
viku. Líkið er af Gunnari Hersi Bene-
diktssyni, en hann féll fyrir borð af
fiskiskipinu Skinney frá Höfn í
Hornafirði 25. júlí síðastliðinn.
Gunnar Hersir var búsettur á Höfn
í Hornafirði og var 22 ára gamall þeg-
ar hann lést. Hann fæddist 1. sept-
ember 1990. Útför Gunnars fer fram
nk. föstudag.
Kennsl borin
á lík sjómanns
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
aslaug@mbl.is
Flugáætlun Icelandair fyrir árið 2014
verður sú stærsta í sögu félagsins og
um 18% umfangsmeiri en á þessu ári.
Flug verður hafið til þriggja nýrra
áfangastaða og ferðum fjölgað til ým-
issa borga í Norður-Ameríku og Evr-
ópu. Gert er ráð fyrir að farþegar
Icelandair verði rúmlega 2,6 milljónir
á árinu 2014, en eru á þessu ári um
2,3 milljónir. Þremur Boeing 757-
flugvélum verður bætt við flugflot-
ann. Þetta kemur fram í tilkynningu
félagsins.
Fjölga ferðamönnum
„Við sjáum áframhaldandi góð
tækifæri til vaxtar á næsta ári og ætl-
um að nýta þau,“ segir Birkir Hólm
Guðnason, framkvæmdastjóri Ice-
landair. „Við erum að ná árangri á al-
þjóðamarkaðinum milli Norður-Am-
eríku og Evrópu um þessar mundir
og áætlunin fyrir næsta ár er einkum
gerð til þess að styrkja enn stöðu
okkar á þeim markaði. Við gerum
einnig ráð fyrir að geta fjölgað ferða-
mönnum til Íslands, líkt og á þessu
ári, og þessi stóra áætlun Icelandair
gefur sömuleiðis Íslendingum ný og
spennandi tækifæri til ferðalaga og
viðskipta.“
Birkir segir loftferðasamninginn
við Kanada gefa fyrirtækinu fjöl-
mörg tækifæri, en samningurinn
milli Íslands og Kanada opnar aukin
tækifæri í flugi milli landanna og
tengiflugi til Evrópulanda.
Spennandi áfangastaðir
Nýir áfangastaðir flugfélagsins
eru Vancouver og Edmonton í Kan-
ada og Genf í Sviss. „Þetta eru spenn-
andi áfangastaðir sem við teljum falla
vel inn í leiðarkerfi okkar. Þessir
áfangastaðir hafa ákveðið samkeppn-
isforskot í flugi yfir Atlantshafið með
því að fara í gegnum Ísland.“
Þá segir í tilkynningu að Iceland-
air muni einnig fjölga ferðum næsta
sumar til flestra núverandi áfanga-
staða. Mikill innri vöxtur hefur ein-
kennt starfsemi Icelandair undanfar-
in ár og er áætlun sú sem nú er kynnt
fyrir árið 2014 um það bil tvöfalt um-
fangsmeiri en áætlun ársins 2009. Til
dæmis verða ferðir frá landinu um
9.000 en voru um 4.500 fyrir fimm ár-
um.
Icelandair
verður 18%
stærra 2014
Þrír nýir áfangastaðir Talið er að
farþegar verði rúmlega 2,6 milljónir
Icelandair Nýjar Boeing 737-MAX
eru í smíðum og fyrstu koma 2018.
Samtökin 78 stóðu í gær fyrir mót-
mælum við rússneska sendiráðið í
Reykjavík. Mótmælin voru gegn
umdeildri löggjöf í Rússlandi sem
bannar jákvætt umtal um samkyn-
hneigð og hvöttu samtökin til þess
að stöðvaðar yrðu ofsóknir gegn
hinsegin fólki í Rússlandi. Tilefni
mótmælanna var að valdamiklir
leiðtogar hitta forseta Rússlands á
fundi í næstu viku. Alþjóða-
mannréttindasamtökin boðuðu til
mótmælanna, sem fóru fram víða
um heim.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Samtökin 78 mótmæltu
Samfylkingarkonur Sigríður Ingi-
björg Ingadóttir og Jóhanna Sig-
urðardóttir meðal mótmælenda.
Baráttuhugur Páll Óskar mótmælti af krafti umdeildum lögum um samkyn-
hneigð í Rússlandi. Hátt í hundrað manns tóku þátt í mótmælunum.
Á mánudaginn var undirritaður verksamningur á
milli Skarðsvíkur ehf. og skipasmíðastöðvarinnar
Þorgeirs & Ellerts ehf. um endursmíði á skipinu
Magnúsi SH-205, sem brann í skipasmíðastöðinni í
lok júlí. Í verksamningnum felst meðal annars upp-
bygging eldhúss, matsalar og íbúðarrýmis í aft-
urskipi og mun verkið kosta 200 milljónir. Trygg-
ingamiðstöðin bókfærði tjón vegna brunans upp á
180 milljónir en að auki lendir stór hluti tjónsins á
endurtryggingafélagi TM.
„Við ákváðum að fyrst við erum að eyða þessum
tíma í endurbæturnar ætlum við bara að klára allar
þær endurbætur sem hefði þurft að gera á næstu
árum. Við látum því bæta við krana og akkerisspili.
Við fáum mjög góðan bát eftir þetta og munum
Endursmíða bátinn sem brann
Brann í skipasmíðastöð Verkið mun kosta 200
milljónir Skipið á að verða tilbúið 8. mars í vetur
Morgunblaðið/Rósa Braga
Slys Eldur kom upp í Magnúsi SH-205 í júlí í ár.
ekkert þurfa að fara með hann í slipp næstu árin
nema til þess að mála hann,“ segir Sigurður Valdi-
mar Sigurðsson, skipstjóri og útgerðarmaður.
Eftir brunann er það aðallega járnið sem er not-
hæft auk vélanna. „Vélarnar sluppu að mestu en
það er verið að fara yfir rafalana núna. Það þarf þó
að skipta um töluvert af járni á stjórnborðssíðu
skipsins og stálþil.“ Samkvæmt samningnum á
skipið að verða tilbúið 8. mars 2014.
„Við bíðum bara núna á meðan skipið er end-
ursmíðað og svo ætlum við að reyna að ná kvót-
anum okkar á þessu fiskveiðiári. Við byrjum bara
af krafti um leið og við fáum bátinn,“ segir Sig-
urður. Útgerðin gerir aðallega út á skötusel auk
þorsks og meðafla. bmo@mbl.is