Morgunblaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 27
ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2013 og hefur verið forstöðumaður hjá IGS frá árinu 2000. Klemenz hefur verið unglingaþjálf- ari í knattspyrnu, stundakennari í FS og Keili og hefur haldið fjölda fyrir- lestra um næringar- og mat- vælafræði. Hann sat í nokkur ár í stjórn Matvæla- og næringarfræði- félags Íslands og var formaður sund- deildar Keflavíkur um skeið. Hjólar hringinn fyrir blóðlækn- ingadeild Landspítalans Klemenz lék knattspyrnu í efstu og næstefstu deild í rúman áratug með Víði í Garði. Undanfarin ár hefur hann stundað hlaup og þríþraut og þar á meðal hlaupið 10 maraþon. Í sumar tók hann þátt í Laugavegs- hlaupinu, og hann hefur tvisvar farið í hálfan járnkarl. En hvað er Klemenz að gera þessa stundina? „Hinn 27. ágúst sl. lagði ég af stað á reiðhjóli hringinn í kringum landið, rúmlega 1.400 kílómetra, og ákvað ég að nota tækifærið og styrkja gott málefni í leiðinni. Áheit og styrkir renna til blóðlækningadeildar Land- spítalans. Með í för eru móðir mín og konan mín, mér til aðstoðar. Ferðin endar 4. september á afmælisdaginn. Þá ætla ég, ásamt fleirum, að hlaupa „Klemmann“ sem er 24 km hringur, Keflavík-Sandgerði-Garður-Keflavík. Þetta hlaup er kennt við mig en ég byrjaði á að fara þennan hring á gamlársdagsmorgun fyrir 17 árum. Undanfarin ár hafa margir bæst í hópinn. Á afmælisdaginn verður í boði að hlaupa, hjóla eða ganga þenn- an hring eða hluta af honum og styrkja gott málefni í leiðinni, en þátt- takan mun kosta 1.500 krónur. Þeir sem hafa áhuga á að styrkja málefnið geta farið inn á Facebook- síðuna Hjóla – hlaup 2013, en þar eru allar upplýsingar og hægt að fylgjast með hvernig hefur gengið. Félagar mínir í íþróttafélaginu 3N, sem er þríþrautarfélag Njarðvíkur, ætla að taka að sér að skipuleggja „Klemmann“ , en þeir og margir aðrir hafa aðstoðað mig varðandi hring- ferðina og eiga þeir þakkir skildar.“ Fjölskylda Eiginkona Klemenzar er Katrín Sigurðardóttir, f. 20.4. 1963, fram- haldskólakennari. Hún er dóttir Elínar Ólu Einarsdóttur, f. 18.8. 1932, matráðs í Íslandsbanka í Keflavík, og Sigurðar Stefáns Reykdal Markús- sonar, f. 11.3. 1933, d. 11.4. 2008, en hann rak flutningaþjónustu í Kefla- vík. Dætur Klemenzar og Katrínar eru Elín Óla Klemenzdóttir, f. 28.6. 1991, læknanemi; Soffía Klemenzdóttir, f. 18.1. 1993, nemi í sjúkraþjálfun, og Þóra Kristín Klemenzdóttir, f. 25.9. 1998, grunnskólanemi Systkini Klemenzar eru Ólafur Gunnar Sæmundsson, f. 10.9. 1961, næringarfræðingur og háskólakenn- ari, búsettur á Seltjarnarnesi; Hlíðar Sæmundsson, f. 12.10. 1964, starfs- maður hjá Byko, búsettur í Garði; Guðjónína Sæmundsdóttir, f. 9.9. 1970, forstöðumaður Símenntunar á Suðurnesjum, búsett í Reykjanesbæ. Foreldrar Klemenzar: Sæmundur Kristinn Klemensson, f. 29.7. 1941, d. 28.10. 2010, sjómaður og starfsmaður IGS, sem bjó lengi í Garðinum og síð- ar í Reykjanesbæ, og k.h., Soffía Guð- jónína Ólafsdóttir, f. 30.11. 1943, þjónustustjóri Íslandsbanka, nú bú- sett í Reykjanesbæ. Úr frændgarði Klemenzar Sæmundssonar Klemenz Sæmundsson Soffía Guðmundsdóttir húsfr. á Neskaupstað Jón Helgi Bjarnason sjóm. og verkam. á Nesk.stað Ólafía Guðrún Helgadóttir húsfr. í Garði Ólafur Gunnar Sigurðsson verkstj. hjá Gerðahr. bús. í Garði Soffía G. Ólafsdóttir fv. þjónusutstj .Íslandsb. í R.nesbæ Guðjónína Sæmundsdóttir húsfr. í Ásgarði Sigurður Kristjánsson verkam. í Ásgarði í Garði Þuríður Ingibjörg Klemensd húsfr. á Hlöðversnesi Kristmann Runólfsson kenn. á Hlöðversn. á Vatnsl.st. Guðrún Kristmannsdóttir húsfr. í Vogum Klemens Sæmundsson pípulagningarm. í Vogum Sæmundur Kr. Klemensson starfsm. hjá IGS, bús. í Reykjanesbæ Aðalbjörg G.Ingimundard. húsfr. á Minni-Vogum Sæmundur Kr. Klemensson óðalsb. á Minni-Vogum Afmælisbarnið Klemenz á hjólinu. Þórður Sveinbjörnsson háyfir-dómari fæddist á Ytra-Hólmií Akraneshreppi 4.9. 1786, sonur Sveinbjörns Þórðarsonar, bónda þar og síðar lögréttumanns á Hvítárvöllum, og f.k.h., Halldóru Jónsdóttur húsfreyju. Fyrri eiginkona Þórðar var Guð- rún Oddsdóttir, prests á Reynivöll- um Þorvarðarsonar, ekkja Stefáns Stephensen amtmanns. Börn þeirra Þórðar dóu ung. Seinni kona Þórðar var Kirstín Katrín, dóttir Lauritz Michael Knudsen, kaupmanns í Reykjavík og ættföður Knudsenættar. Sonur Kirstínar frá því áður var Lárus dómstjóri sem Þórður gekk í föðurstað. Börn Þórðar og Kirstínar sem upp komust voru Theodór læknir; Guðrún Láretta; Halldóra Margrét, sem giftist Þórði Gudjo- hnsen á Húsavík og voru þau systra- börn, en meðal afkomenda þeirra eru rafmagnsstjórarnir Aðalsteinn Guðjohnsen og Jakob Guðjohnsen; Sveinbjörn tónskáld er samdi þjóð- sönginn; Árnabjarni er fór til Vest- urheims, og Aurora Didrika Ingi- björg er giftist Kristjáni Trampe. Þórður útskrifaðist úr heimaskóla hjá Geir Vídalín biskupi á Lamba- stöðum á Seltjarnarnesi 1802. Hann stundaði síðan landbúnaðarstörf hjá Bjarna Arngrímssyni á Melum og hjá föður sínum og var skrifari hjá Stefáni Stephensen, amtmanni á Hvítárvöllum. Þórður var ekki skráður í Hafn- arskóla fyrr en 1817 og lauk því lög- fræðiprófi óvenju seint, 1821, en stundaði auk þess nám í nátt- úrusögu. Þórður var sýslumaður Árnes- sýslu 1822-35, varð yfirdómari við Landsyfirréttinn 1834 og var háyfir- dómari frá 1836 og til æviloka. Þórður var í hópi merkustu emb- ættismanna á fyrri helmingi 19. ald- ar. Hann var hvatamaður að stofnun Hús- og bústjórnarfélags Suður- amtsins, var konungskjörinn þing- maður um árabil og sat þjóðfundinn 1851. Hann skráði sjálfsævisögu sem kom út í Reykjavík 1916. Þórður lést 20.2. 1856. Merkir Íslendingar Þórður Sveinbjörnsson 80 ára Guðmundur Rúnar Guðmundsson Haukur Sigurbjörn Magnússon Hörður Adolphsson Ingibjörg Guðmundsdóttir Jón Blöndal Sigríður Árnadóttir Sigurlína Helgadóttir 75 ára Gunnar Rúnar Pétursson Jón Auðunn Viggósson Kolbrún Ásta Jóhannsdóttir Sigmar Sigurðsson 70 ára Einar Hafliðason Ólöf Cooper 60 ára Elsebeth Elena Elíasdóttir Guðjón Guðlaugsson Guðmundur S. Karlsson Helga Ingibergsdóttir Jens Kristján Höskuldsson Ottó Tómas Ólafsson Roman Wasiewicz Sigríður Berta Grétarsdóttir Valbjörn Pálsson Valborg S. Harðardóttir 50 ára Ástríður Ólafía Jónsdóttir Elzbieta Szczepanska Hafdís Einarsdóttir Helga Róbertsdóttir Linda Hlín Sigbjörnsdóttir Marinó Pálmason Ólafur Elfar Sigurðsson Pétur Jónsson Dam Ragnheiður Haraldsdóttir Ragnheiður Sigríður Gestsdóttir Sigríður Halldórsdóttir Siv Annika Rosén Vigdís Guðrún Sigvaldadóttir 40 ára Guðmundur Guðmundsson Gunnar Stephen Meinich-Bache Hákon Sverrisson Hinrik Pálsson Ingi Þór Ingólfsson Jaroslaw Pawel Kuczynski Jóhanna Sigríður Logadóttir Kristín Ingvarsdóttir Margrét Hrönn Hallmundsdóttir Rósar Snorrason Sigríður Þóra Ágústsdóttir 30 ára Andri Harðarson Andrius Kidykas Sigurgeir M. Sigurgeirsson Sæþór Ásgeirsson Uthaiwan Prompradit Til hamingju með daginn 30 ára Halldóra fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hún var í Öskjuhlíð- arskóla, stundaði nám við Borgarholtsskóla og starfar núna við Ársafn í Árbæjarhverfi. Bræður: Arnar Jónsson, f. 1987, verkfræðingur í Reykjavík; Haukur Jóns- son, f. 1994, nemi við VÍ. Foreldrar: Jón Þrándur Steinsson, f. 1958, læknir, og Ingibjörg Lára Skúla- dóttir, f. 1959, húsfreyja. Halldóra Jónsdóttir 30 ára Davíð ólst upp á Akureyri. Hann lauk BSc.- prófi í tölvunarfræði frá HA og stundar nú MSc.- nám í tölvunarfræði við HR. Systir: Helga Margrét Guðjónsdóttir, f. 1986, há- skólanemi. Foreldrar: Guðjón Stein- dórsson, f. 1949, atvinnu- og ferðamálafulltrúi á Akranesi, og Ásta Hrönn Björgvinsdóttir, f. 1957, húsfreyja á Akureyri. Davíð Steinar Guðjónsson 30 ára Eva Björk ólst upp á Hraunhólum í Gnúp- verjahreppi, býr nú á Sel- fossi, lauk stúdentsprófi og prófi í tækniteiknum og er tækniteiknari. Maki: Karl Brynjar Lar- sen, f. 1984, húsasmiður. Synir: Hrafn Óli, f. 2011, og Jakob Örn, f. 2013. Foreldrar: Kristjana Gestsdóttir, f. 1950, skrif- stofustjóri, og Birgir Örn Birgisson, f. 1959, múr- arameistari. Eva Björk Birgisdóttir Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einnmánuð. Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón falleg minning á fingur www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind PI PA R\ TB W A • SÍ A • 12 16 6 6 Giftingarhringar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.