Morgunblaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2013 Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Natsuo Sato, prófessor við Pólrann- sóknastofnun Japans, heldur fyrir- lestur um rannsóknir japanskra og íslenskra vísindamanna á norður- ljósunum síðastliðin þrjátíu ár í há- tíðarsal Háskóla Íslands klukkan fjögur í dag. Gunnlaugur Björns- son, stjarneðlisfræðingur við Há- skóla Íslands, segir ýmislegt áhuga- vert hafa komið í ljós sem Sato mun fjalla um í fyrirlestri sínum. „Eitt af því sem hefur komið á óvart er að tengslin sem menn töldu vera milli norðurljósa hér á landi og á suðurenda sömu segul- sviðslínu við suðurskautið virðast ekki vera fyrir hendi nema í undantekningartilvikum,“ segir Gunnlaugur en rannsóknarstöðvar á Íslandi og suðurskautinu eru hvorar á sínum enda sömu seg- ulsviðslínu. Einstakt tækifæri til rannsókna Mælingar á gagnstæðum segul- ljósum veita einstakt tækifæri til rannsókna á því hvar og hvernig hinar ósýnilegu segulsviðslínur tengja jarðarhvelin, hvaða áhrif sól- vindurinn hefur á segulhvolf jarðar og á eðli hröðunarferla norðurljósa. „Undanfarin 30 ár hafa athuganir á norðurljósum verið framkvæmdar á þremur stöðum á Íslandi í sam- starfi japönsku pólrannsóknastofn- unarinnar og Raunvísindastofnunar Háskólans. Rannsóknarstöð Japana í Syowa á Suðurskautslandinu og stöðvarnar á Íslandi þykja kjörnar til rannsókna á gagnstæðum segul- ljósum,“ segir Gunnlaugur en í er- indi Satos verður einnig fjallað um þrjátíu ára sögu norðurljósarann- sókna Japana á Íslandi. Að auki verður rætt um fyrirbæri eins og norðurljósaslit, norðurljósaperlur og blikótt norðurljós. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Norðurljós Margt áhugavert hefur komið fram um norðurljósin. Rannsóknir Íslendinga og Japana hafa farið fram hér á landi og á suðurskautinu þar sem Pólrannsóknastofnun Japans hefur komið upp rannsóknarstöð. Nýjar uppgötvanir úr norðurljósarannsóknum Slitastjórn gamla Landsbankans hef- ur krafist riftunar á 300 milljóna króna greiðslu bankans í september árið 2008 til Sigurjóns Þ. Árnasonar, fyrrverandi bankastjóra. Fyrirtaka í málinu fór fram í gærmorgun fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur en málið er eitt af sex málum sem slitastjórnin hefur höfðað gegn Sigurjóni. Sigurður G. Guðjónsson, hæsta- réttarlögmaður og lögmaður Sigur- jóns í málinu, segir að Sigurjón hafi skilað stærstum hluta greiðslunnar og um leið gert samkomulag við bankann um uppgjör vegna launa- greiðslna sem Sigurjón taldi sig eiga á hendur þrotabúi bankans. „Sigurjón skilaði stærstum hluta greiðslunnar aftur til bankans en taldi að honum bæri að fá laun í uppsagnarfresti og óskaði eftir því við slitastjórnina að hún gerði þá upp launasamninginn við hann og greiddi þá skatt og lífeyrisgjöld af þeim. Nú vill slitastjórnin líta svo á að hún geti rift greiðslunni sem Sigjurjón var bú- inn að greiða en ekki launagreiðsl- unum,“ segir Sigurður en það þýðir að Sigurjón þarf að greiða skatta og lífeyrisgreiðslur vegna umsaminna launagreiðslna til baka til bankans. Páll Benediktsson, upplýsinga- fulltrúi gamla Landsbankans, vill ekki tjá sig um málið að svo stöddu. „Við höfum sett það sem reglu hjá okkur að tjá okkur ekki um mál með- an þau eru til úrlausnar hjá dóm- stólum,“ segir Páll. Ekki er ljóst hve- nær niðurstaða fæst í málið. Mál Sigur- jóns fyrir héraðsdóm  Riftunar á 300 millj. greiðslu krafist Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins og formaður at- vinnuveganefndar Alþingis, vill hefja rannsóknir á hnúfubak. „Það er tímabært að hefja rannsóknir á hnúfubaknum en það þarf allt að hafa sinn farveg,“ segir Jón og bendir á mikilvægi þess að fylgja ströngustu skilyrðum við rann- sóknir á stofninum. „Þeir stofnar sem við nýtum í dag fóru í gegnum mjög strangt vísindalegt ferli sem hefur verið staðfest af vísindanefnd Alþjóðahvalveiðiráðsins og hnúfu- bakurinn þarf að fara í gegnum sambærilegt ferli.“ Fram hefur komið að stofn hnúfubaks sé í sögulegri stærð við Ísland og segir Jón það m.a. ástæðu fyrir því að hefja rann- sóknir á stofninum. Helga Sigurrós Valgeirsdóttir, aðstoðarmaður Sigurðar Inga Jó- hannssonar, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, segir að málið hafi ekki komið inn á borð ráð- herrans. Jón telur tímabært að ráðuneytið og Hafrannsóknastofnun taki málið til skoðunar en gerir ekki ráð fyrir að það komi inn á borð atvinnu- veganefndar strax. Morgunblaðið/Ómar Hvalveiðar Fjölgun hnúfubaks hefur verið töluverð á undanförnum áratug- um og er stofninn núna í sögulegri stærð í kringum landið. Vill hefja rann- sóknir á hnúfubak  Ráðuneyti og Hafró skoði málið Voltaren 11,6 mg/g, hlaup. Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Síðustu 3 mánuðir meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir eða augu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á almennum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ Fæst án lyfseðils Veldur síður lyfjaáhrifum um allan líkamann eins og þegar töflur eru teknar inn Verkjastillandi bólgueyðandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.