Morgunblaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 16
Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Í stórum skemmum við höfnina í Bíldudal er Kalkþörungaverksmiðjan til húsa, en hún er einn stærsti vinnu- staður bæjarins. Verið er að stækka húsnæðið og bæta við tækjabúnaði í því augnamiði að auka við fram- leiðslugetuna. „Við erum að stækka verksmiðj- una um u.þ.b. 100% og fá annan þurrkara í húsið. Sá sem nú er í gangi er 1,8 megavött, en þurrkarinn sem við erum að taka í notkun er 3,6 megavött. Við höfum ekki náð að full- nýta starfsleyfið með núverandi þurrkara,“ segir Guðmundur V. Magnússon verksmiðjustjóri. Í verksmiðjunni er kalkþörunga- set af hafsbotninum í Arnarfirði þurrkað, eftir að því hefur verið dælt- upp. Setinu er síðan dælt í lón, sem er við athafnasvæði verksmiðjunnar, því síðan mokað inn í hús og inn í þurrk- ara. Að þurrkun lokinni er það malað og úr verður kalkþörungamjöl, sem aðallega er nýtt sem áburður og steinefnafóður fyrir búpening og er flutt út um víða veröld. „Það má segja að þetta sé eins og fæðubótarefni eða vítamín fyrir dýrin,“ segir Guð- mundur. Kalkþörungasetið er líka notað í vatnshreinsun, en þá er það unnið á annan hátt. Mjölið fer víða um heim Verksmiðjan er í eigu Íslenska kalkþörungafélagsins ehf. sem var stofnað að frumkvæði Atvinnuþróun- arfélags Vestfjarða árið 2001. Félagið er að þremur fjórðu hlutum í eigu írska fyrirtækisins Celtic Sea Mine- rals Ltd. en Björgun ehf á ¼. Fljót- lega eftir stofnun var gert mat á námi kalkþörungasets í Arnarfirði og 2003 fékk félagið vinnsluleyfi eftir að um- hverfisáhrif höfðu verið metin já- kvæð. Leyfið gildir til ársins 2033. Verksmiðjan hóf starfsemi árið 2007 og hefur framleiðslugetan aukist nokkuð síðan þá. Starfsleyfið er nú 50.000 tonn á ári, en í fyrra voru unn- in 34.000 tonn. Með stækkuninni er búist við að starfsleyfið verði fullnýtt. Framleiðslan notar 7-8% af allri orku sem nýtt er á Vestfjörðum. Mjölið er flutt til Írlands en það- an fer það í dreifingu, meðal annars til Sádi-Arabíu, Ástralíu og víða um Atvinna Kalkþörungaverksmiðjan er einn stærsti vinnustaður bæjarins, en þar vinna um tuttugu manns og starfsmannavelta er fremur lítil. Stór verksmiðja á fáme  Þörungum dælt af hafsbotni og þeir verða að verðmætum Stækkun Guðmundur V. Magn- ússon verksmiðjustjóri segir vinnsluleyfi verksmiðjunnar ekki hafa verið fullnýtt fram að þessu.  Fossinn Dynjandi er fyrir botni Arnarfjarðar, hvar heit- ir Dynjandisvogur. Svæðið er friðlýst, enda þykir náttúran á þessum slóðum falleg og um margt einstök. Ofan af Dynjandisheiði sem liggur í jaðri hálendissvæðis Gláms rennur áin Dynjandi og þegar fram að firði kemur fellur hún fram í sex fossum. Efst er til- komumesti fossinn, Fjallfoss, 30 metra breiður efst og um 60 metra breiður neðst. Hann er um 100 metra hár. Neðar eru Hundafoss, Strokkur, Göngumannafoss, Hrísvaðsfoss og Sjóarfoss. Gengt er á bak við Göngu- mannafossinn. Á máli náttúrufræðinga og annarra sem vel til þekkja heitir náttúrusmíð eins og sú sem sjá má í Arnarfirðinum einu nafni slæðufoss. Segir á vefsetri Vesturbyggðar að fossaröðin minni marga á brúðarslör og hægt er að „ganga á bak við Göngumannafoss. Hvergi á landinu ber fyrir augu fegurra fossasvæði í einni sjónhending,“ eins og komist er að orði. sbs@mbl.is Dynjandi fellur í sex fossum Arnarfjörður Fallegir fossarnir fanga augað. Morgunblaðið/Sigurður Bogi  Á fjórða áratug síðustu aldar voru grænar baunir í dós framleiddar á Bíldudal í verksmiðju alþingis- mannsins Gísla Jónssonar. Baun- irnar urðu síðar yrkisefni Valgeirs Guðjónssonar og nú er bæjarhátíð Bílddælinga nefnd eftir þessari af- urð. Gísli var umsvifamikill í atvinnu- lífi á Bíldudal og í frétt Morgun- blaðsins 6. september 1938 segir að hann hafi leigt farþegaskipið Gull- foss til að flytja fjölda fólks frá Reykjavík til Bíldudals vegna opn- unar rækjuverksmiðju og niður- suðuverksmiðju. Í fréttinni er þetta sagt „stór viðburður í íslensku at- vinnulífi“. Einu sinni var Morgunblaðið greindi frá opnun verksmiðjunnar á Bíldudal. Bíldudals grænar baunir Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Eitt ógnvænlegasta húsið á sunn- anverðum Vestfjörðum hlýtur að vera Skrímslasetrið á Bíldudal, en þetta svæði, sér í lagi Arnarfjörður, er talið vera kjörlendi sjóskrímsla. „Hér á Skrímslasetrinu er hald- ið utan um sagnir og sögur af skrímslum af svæðinu, við erum með viðtöl við sjónarvotta, líkön af skrímslunum og vangaveltur um eðli þeirra og hvaðan þau koma,“ segir Ingimar Oddsson, skrímsla- stjóri setursins. Er vitað hvaðan þau koma eða hvert eðli þeirra er? „Nei, við látum gestum safnsins það eftir að draga sínar eigin ályktanir.“ Hvert er ægilegasta skrímslið sem vitað er um á þessum slóðum? „Ætli það stórfenglegasta sé ekki faxaskrímslið, það er með mikinn rauðan makka og starandi græn augu. Þetta skrímsli sást síðast fyrir um þremur árum úti á Arnarfirði,“ segir Ingimar. Skelfilega skrímsla- setrið í Bíldudal  Höfuðskrímslin fjögur liggja í leyni djúpt á botni Arnarfjarðar Faxaskrímslið Það er talið ægileg- ast allra íslenskra sjóskrímsla. VESTFIRÐIR DAGA HRINGFERÐ BÍLDUDALUR Grunnkort/Loftmyndir ehf. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2013 Íslenska kalkþörungfélagið ehf. Hafnarteigi 4 – 465 Bíldudal Sími 456 2730 Netfang: allir@iskalk.is Heimasíða: www.iskalk.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.