Morgunblaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 32
AF DANSHÁTÍÐ Margrét Áskelsdóttir margretaskels@gmail.com Á síðustu dögum ReykjavíkDance Festival voru erlend-ir listamenn í forgrunni. Það var áhugavert að sjá að í mörg- um verkunum var líkaminn ekki miðpunktur tjáningarinnar. Gerðar voru tilraunir með það að víkka formið dans og sumir gengu svo langt að fjarlægja líkamann alveg. Listsköpunin fór fram úr ríkjandi skilningi þar sem líkaminn var ekki í forgrunni, en danshöfundarnir notuðust við þá miðla og þau tæki sem þeim þótti heppilegast að nota til þess að koma hugmyndum sínum á framfæri.    Verkið Evaporated Landscapeeftir Mette Ingvartsen svipaði í raun meira til myndlistar eins og við þekkjum hana frekar en til danslistar. Verkið var dansandi innsetning, sett upp í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Áhorfendur sátu á pöllum sitt hvorum megin við sviðið þar sem ,,dansinn“ fór fram. Á sýn- ingunni var upplifun stórbrotins landslags og veðurbrigða dregin fram með fallegri sviðsmynd og tæknibrellum af ýmsu tagi. Hljóð- heimur verksins var einnig afar mikilvægur. Danshöfundurinn gekk svo langt með fjarlægingu lík- amans að hann kom ekki einu sinni inn á sviðið til þess að hneigja sig eftir að sýningunni lauk og áhorf- endur sýndu hrifningu með miklu lófaklappi.    Flytjendur verksins Nothing’sfor Something léku sama leik, en þó á gjörólíkan hátt. Það má segja að verkið hafi ekki haft neinn raunverulegan endi. Það endaði á dáleiðandi stemningu þar sem borgarhljóð voru spiluð inn í fljúg- andi gasblöðrum sem sveimuðu um salinn. Eftir dágóða stund gáfust nokkrir áhorfenda upp á biðinni og stóðu upp, þá hófst vandræðalegt klapp og á endanum gengu allir út úr salnum. Verkið var áhugavert fyrir margra hluta sakir og voru í því margir vel unnir kaflar. Það Danslistin kallar á nýjan skilning Morgunblaðið/Styrmir Kári Líkamlegt Þegar líða tók á Nothing’s for Something fór dansandi líkaminn að verða meira áberandi en sviðs- myndin var mótdansarinn, segir í pistli um eina af sýningum danshátíðarinnar Reykjavík Dance Festival. hófst á klassískum ballett, döns- uðum af leikhústjöldum sem haldið var uppi af gasblöðrum. Þegar líða tók á verkið fór dansandi líkaminn að verða meira áberandi en sviðs- myndin var mótdansarinn.    Danslistarmaðurinn DiederikPeeters fór með einleikinn Red Herring sem haldið var uppi af hljóðum. Í verkinu var mikill leikur en lítill dans. Þrátt fyrir að talað orð héldi uppi þræði verksins minnti uppsetningin einna helst á gamla þögla bíómynd. Þegar gjörð- ir dansarans og hljóðsetningin komu saman mynduðust töfrarnir. Það var mikill húmor í verkinu sem var einstaklega vel unnið í alla staði.    Reykjavík Dance Festival 2013kallaði á nýjan skilning á list- inni og nýjan hugsunarhátt. Dans- inn er farinn að gæla kröftuglega við fleiri greinar en leiklistina sem var áður nánasti ættinginn. Mörk listgreinanna eru í uppnámi. Hugs- unin um listamanninn sem fagmann á tilteknu sviði er mögulega úrelt. » Gerðar voru tilraunir með það að víkka formið dans og sumir gengu svo langt að fjarlægja líkamann alveg. Spaugilegt Diederik Peeters fór með einleikinn Red Herring sem haldið var uppi af hljóðum. Gasblöðrur Nothing’s for Something var mikið sjónarspil, eins og sjá má en í því léku gasblöðrur stórt hlutverk. 32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2013 Fransk-íslenska sinfóníuhljóm- sveitin heldur fyrstu tónleika sína í Hörpu 16. september nk. en hún er að hálfu skipuð Íslend- ingum og að hálfu Frökkum. Á efnisskrá tón- leikanna verða verk eftir Roussel, Þorkel Sigur- björnsson og Tsjaíkovskíj og hljóm- sveitarstjóri verður Amine Koui- der, friðartónlistarmaður UNESCO. Tónleikarnir eru tileink- aðir könnuðinum Charcot og áhöfn hans sem fórust með Pourquoi pas? fyrir 77 árum. Flautuleikarinn Martial Nardeau verður einleikari á tónleikunum. Fransk-íslenskir sinfóníutónleikar Þorkell Sigurbjörnsson Skandinavíska vísnatríóið Nordisk knockout heldur þrenna tónleika hér á landi í vikunni og verða þeir fyrstu í Norræna húsinu í kvöld kl. 20.30. Á morgun leikur tríóið í Landnámssetrinu í Borgarnesi, einnig kl. 20.30 og á sunnudaginn, 8. september, á Græna hattinum á Akureyri og hefjast tónleikarnir þar kl. 21. Tríóið skipa þrír trúba- dorar, þeir Lucas Stark frá Svíþjóð, Nicolai Engström frá Danmörku og Leo Leonhardsen frá Noregi. Þeir syngja á norsku, dönsku og sænsku. Eftir tónleikana á Íslandi halda fé- lagarnir til Færeyja og leika þar. Nordisk knockout í Norræna húsinu Spaugsamir Félagarnir í Nordisk knockout munu eflaust slá í gegn. Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO stendur fyrir Lestr- arhátíð í Reykjavík í annað sinn í október og verður hátíðin árviss við- burður í þeim mánuði. Markmið há- tíðarinnar er að hvetja til lesturs, auka umræðu um bókmenntir og tungumál og vekja athygli á gildi orðlistar í menningaruppeldi og dag- legu lífi. Hátíðin í ár verður tileinkuð borgarljóðum undir heitinu Ljóð í leiðinni. Lögð verður áhersla á borg- ina í ljóðum og ljóð í borginni og verða hverfi borgarinnar, nánasta umhverfi okkar og ferðalagið um borgina í brennidepli, eins og segir í tilkynningu frá skipuleggjendum. Arion banki styrkir hátíðina í ár og í gær undirrituðu Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri Menning- ar- og ferðamálasviðs Reykjavík- urborgar og Elísabet Grétarsdóttir, forstöðumaður markaðsdeildar bankans, samstarfssamning þess efnis. Með þessu samstarfi verður hægt að bjóða upp á fleiri viðburði fyrir almenning og gera hátíðina sýnilegri þannig að sem flestir fái að njóta ljóðsins á leið sinni um borg- ina. Af einstökum viðburðum má nefna að forlagið Meðgönguljóð gef- ur út ljóðabókina Ljóð í leiðinni í samvinnu við Bókmenntaborgina með ljóðum um borgina eftir á þriðja tug skálda sem mörg hver eru lands- kunn. Bókin kemur út 1. október, við setningu hátíðarinnar og á henni munu nemendur úr Langholtsskóla- frumflytja ljóð og tónverk sem þau vinna með Arnljóti Sigurðssyni, textahöfundi og meðlimi í hljóm- sveitinni Ojba rasta. Í lok mánaðar- ins munu Bókmenntaborgin og Fé- lag tónskálda og textahöfunda svo halda tónleika í Hörpu þar sem orð- listin verður í öndvegi, svo fáeinir viðburðir séu nefndir. Frekari upplýsingar má finna á bokmenntaborgin.is. Samstarf Svanhildur Konráðs- dóttir og Elísabet Grétarsdóttir við undirritun samningsins í gær. Lestrarhátíð tileink- uð borgarljóðum  Arion banki styrkir hátíðina í ár

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.