Morgunblaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 15
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Sumarið Veðurblíðunni var misskipt milli landshluta. Austfirðingar geta verið sáttir en samkvæmt mælingum á Egilsstöðum var þetta sjötta besta sumarið þar. Myndin er tekin í sundlauginni á Egilsstöðum í júlí síðastliðnum. Meðalhiti í Reykjavík sumarmánuð- ina júní, júlí og ágúst mældist 10,3 stig og er það 0,4 stigum ofan meðal- lags árin 1961 til 1990, en 1,2 stigum undir meðaltali síðustu 10 ára. Sam- kvæmt yfirliti frá Veðurstofunni er hitinn þessa mánuði í 61. til 62. sæti meðalhita í Reykjavík, eða í meðal- lagi, en upphaf mælinga er talið vera árið 1871. Á Akureyri er meðalhiti mánað- anna þriggja 11,1 stig og er það 1,2 stigum ofan við meðallagið 1961 til 1990 og 0,3 stigum ofan við meðallag síðustu 10 ára. Þetta er 19. hlýjasta sumarið á Akureyri frá upphafi sam- felldra mælinga 1881. Á Egilsstöðum var meðalhitinn í sumar 10,9 stig og er það 1,4 stigum ofan meðallagsins 1961 til 1990 og 0,8 stigum ofan meðallags síðustu 10 ára. Þetta er sjötta hlýjasta sumar á Egilsstöðum frá upphafi samfelldra mælinga þar 1954. Úrkoma í Reykjavík mánuðina júní til ágúst mældist 37% meiri en í meðalári. Hún var nánast jafnmikil í þessum mánuðum árið 2003 en það þarf að fara aftur til 1983 til að finna meiri úrkomu en nú. Á Akureyri mældist úrkoma mánaðanna þriggja um 61% af meðalúrkomu. Þurrara var á Akureyri í fyrra. Sólskinsstundir í Reykjavík mældust 421 í mánuðunum þremur. Það er 66 stundum undir meðallagi áranna 1961 til 1990, en 180 stundum minna en að meðaltali 2003 til 2012. Veðurstofan segir þetta sýna vel hversu óvenjuleg síðustu tíu ár voru í langtímasamhengi. Þarf að fara aft- ur til sumarsins 1989 til að finna færri sólskinsstundir en nú í mán- uðunum júní til ágúst. Á Akureyri mældust sólskins- stundirnar 461,5 í mánuðunum júlí til ágúst. Það er tíu stundum undir meðallaginu 1961 til 1990 en 54 stundum færri en meðaltal áranna 2003 til 2012. Sólskinsstundir sum- arsins 2003 voru færri á Akureyri en nú. bjb@mbl.is Sjötta besta sumarið eystra en slakt syðra  Hitinn í Reykjavík í sumar lendir í 61.-62. sæti frá 1871  Mesta úrkoma í 30 ár  Sumarið á Akureyri 19. hlýjasta FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2013 Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga hélt upp á 80 ára afmæli félagsins á laugardag í félagsheimillinu Skrúði á Fáskrúðsfirði. Kaupfélag Fá- skrúðsfirðinga var stofnað 6. ágúst 1933. Kaupfélagið veitti í tilefni afmæl- isins eina milljón króna til Fá- skrúðsfjarðarkirkju, eina milljón til Björgunarfélagsins Geisla og eina milljón til ungmennafélagsins Leiknis. Gísli Jóhann Jónatansson lét nú um mánaðamótin af störfum kaup- félagsstjóra. Voru honum og konu hans, Sigrúnu Guðlaugsdóttur, þökkuð störf sín í þágu félagsins, en hann var kaupfélagsstjóri í þrjá- tíu og átta ár. Morgunblaðið/Albert Kemp Stjórnendur Friðrik Mar Guðmundsson tekur við starfi kaupfélagsstjóra af Gísla Jóhanni Jónatanssyni. Þeir sjást hér með eiginkonum sínum, Öldu Oddsdóttur og Sigrúnu Guðlaugsdóttur. Afmælisveisla á Fáskrúðsfirði Bandaríski fræðimaðurinn Chris Mooney flytur fyrirlestur á Háskólatorgi 105 laugardag- inn 7. september kl. 12-13:30. Fyrirlesturinn nefnir hann „Sál- fræðin sem býr að baki stríðinu gegn umhverfisvísindum“. Fram kemur í tilkynningu að Mooney sé þekktur fyrir verk sín um vísindastríðin svokölluðu. Guðni Elísson, forseti Íslensku- og menningardeildar Háskóla Ís- lands, kynnir Mooney og stýrir um- ræðum. Fyrirlesturinn er öllum op- inn. Fyrirlestur í HÍ um vísindastríð Chris Mooney Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Graf- arholti og Úlfarsárdal samþykkti í vikunni einróma ályktun þess efnis að Reykjavíkurflugvöllur verði áfram í Vatnsmýrinni. Jafnframt skorar félagið á borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að fara að samþykktum lands- fundar í störfum sínum á vegum flokksins. Þá hvetur stjórnin alla til að skrifa undir áskorun á vefsíð- unni lending.is. Vilja flugvöllinn áfram í Vatnsmýri STUTT Veðurstofan segir fyrstu átta mánuði ársins hafa heilt yfir verið hlýja á landinu. Í Reykjavík var hitinn 0,9 stigum ofan með- allags áranna 1961 til 1990 en aftur á móti 0,2 stigum undir meðaltali síðustu 10 ára. Árið er í 27. til 28. sæti hlýindaára það sem af er árinu. Miðað er við mælingar frá 1871 til okkar daga. Á Akureyri er meðalhitinn það sem af er ári 5,1 stig og er það 1,1 stigi ofan meðaltalsins 1961 til 1990 og í meðallagi síð- ustu tíu ára. Árið er í 18. sæti hlýrra ára á Akureyri frá upp- hafi mælinga þar 1882. Árið í 27. til 28. sæti JANÚAR-ÁGÚST Brammer Ísland ehf | Steinhella 17a | 221 Hafnarfjörður | Sími: 522 6262 | www.brammer.is Heimsþekkt vörumerki frá öllum helstu framleiðendum í iðnaðarvörum og þetta er aðeins brot af þeim merkjum sem við bjóðum upp á Legur og drifbúnaður Verkfæri og öryggisvörurLoft- og vökvakerfi 13.-27. september• á Hótel Örk 15.-29. nóvember• á Hótel Örk 3.-17. janúar• á Hótel Örk 14.-28. febrúar• á Hótel Örk 12.-26. apríl• páskaferð til Ddansk, Póllandi (unglingahópur) 24. maí til 7. júní• , Gdansk, Póllandi 23. ágúst til 6. september• , Gdansk, Póllandi 15.-29. nóvember• á Hótel Örk DETOX 2013 OG 2014 Skráning hjá joninaben@nordichealth.is eða í síma 822 4844

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.