Morgunblaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Skyndiinnkaup gleðja þig í dag. Allir hlutir kosta sitt en það er forgangsröðin sem skiptir máli. Þér finnst nauðsynlegt að vera við stjórn í vissu máli, þar hefur þú rétt fyrir þér. 20. apríl - 20. maí  Naut Horfir fólk framhjá góðvild þinni? Því miður er stundum ekki nóg að vera góður. Ekki flýta þér um of í umferðinni. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Horfðu í spegilinn til að átta þig á því hvað það fyrsta er sem fólk hugsar þeg- ar það sér þig. Verk sem tengjast ljós- myndun, skemmtana- og kvikmyndaiðn- aðinum ganga sérstaklega vel. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú einbeitir þér að því að ná stjórn á smávægilegum hlutum í lífi þínu og nærð frábærum árangri. Vandaðu handtök þín. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þarfir þínar eru uppfylltar en fólkið í kringum þig virðist þjást af krónískri óham- ingju. Ef tveir eða fleiri óska sér þess sama, eru meiri líkur á að óskin rætist. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Gættu þess að skapa ekki stærri vandamál með framkomu þinni en þau sem þú ætlar að leysa. Sumt er okkur ætlað að eiga um sinn en annað bara um stund- arsakir. 23. sept. - 22. okt.  Vog Veltu framtíðaráætlunum þínum fyrir þér. Nú ertu að verða sú eftirtektarverða manneskja sem þú vildir verða. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Farðu varlega þegar ókunnugir eiga í hlut og láttu reyna á persónuna áður en þú hleypir henni að þér. Vertu opin/n fyr- ir nýjum leiðum og lausnum í vinnunni. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Á næstu vikum munt þú eiga auðveldara með en ella að gefa af þér í samræðum. Mundu svo að hver er sinnar gæfu smiður. 22. des. - 19. janúar Steingeit Hugsaðu þig tvisvar um áður en þú grípur til aðgerða, sérstaklega sem kosta einhver fjárútlát. Gakktu frá vissum málum og stefndu ótrauð/ur fram á við. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Hafðu góðar gætur á pening- unum þínum næstu tvær vikurnar og fylgstu með því sem þú eyðir í gjafir og þess háttar. Horfðu á kostina og leitastu við að höfða til þess góða í fólki. 19. feb. - 20. mars Fiskar Lokaðu þig ekki af frá umheiminum þótt þú sért ekki upp á þitt besta. Hafðu það hugfast að fólk hefur mismunandi skoð- anir. Margir Íslendingar verða blá-berjabláir í berjamó um þess- ar mundir. Vésteinn Valgarðsson er einn þeirra: Brostin hnén og blautir skórnir, bakið og fær nóg. Miklar þarf að færa fórnir fyrir berjamó. Valdimar Gunnarsson stendur á tímamótum: Feginn strýk ég frjálsan haus og fagna þessum degi. Nú er ég orðinn iðjulaus eftirlaunaþegi. Davíð Hjálmar Haraldsson sendir honum kveðju: Reyndu samt að hafa hóf og hemja gleðiópin og læra undir pungapróf á pottana og sópinn. Hjálmar Freysteinsson kastar fram í tilefni af liðsauka í rík- isstjórn: Veslinga sem varla skrimta víst það gleðja kann: Bráðlega við fáum fimmta Framsóknarráðherrann. Ólafur Stefánsson sér aðra hlið á málinu: Strákurinn kemur sterkur inn styður sig við korðann, prúður er hann pilturinn prestssonur að norðan. Þá Davíð Hjálmar: Henni ekki halda nokkur bönd. Húrra! Nú fer þetta fyrst að ganga! Ríkisstjórnin – hún er eins og hönd sem hafði áður níu fingur – langa. Loks leggur Ármann Þor- grímsson orð í belg: Þjóðin gæti brosað breitt og böli myndi létta ef þeir gerðu ekki neitt annað verra en þetta. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af ráðherra, bláberjum og eftirlaunaþega Í klípu HANDHAFI VERÐLAUNA SEM VERSTI YFIRMAÐUR ÁRSINS. eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG ÞARF AÐ KOMAST Á FLUGVÖLLINN Á ÞREMUR MÍNÚTUM. ÉG KEYRI.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ...að telja kossa í staðinn fyrir kindur. ÉG VAR FASTUR. ÉG GAT EKKI ANDAÐ. LOKSINS TÓKST MÉR AÐ SLÍTA MIG LAUSAN. ÞAÐ ÆTTI AÐ VERA VIÐVÖRUN Á ÞESSUM TANN- ÞRÆÐI. EF ÉG FÆRIST Í ORRUSTU... ... HVAÐ VÆRI ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ GERÐIR SEM NÆSTRÁÐANDI MINN? SELDI SVERÐIÐ ÞITT OG SKJÖLDINN? ÞETTA SVÆÐI FYRST! Blaðamaðurinn er yfirleitt í hlut-verki áhorfandans. Hann hefur ekki áhrif á atburðarásina heldur fylgist með henni og leitast við að koma framvindu mála til skila og upplýsa lesendur sína um mála- vöxtu. Blaðamaðurinn kann að hafa sínar skoðanir á því sem hann fjallar um, en þegar hann skrifar fréttir varðar lesandann ekkert um þær. x x x Víkverja brá þegar hann ók eftirHofsvallagötunni á mánudags- morgun og við honum blasti maður klæddur í regnstakk sem var í óða önn að fjarlægja málningu af göt- unni með vatnsdælu. Hinar nýju, lit- skrúðugu merkingar á Hofsvallagöt- unni hafa ásamt stöngum, sem ýmist eru festar á veifur eða fuglahús vald- ið nokkru uppnámi í Vesturbænum. Í liðinni viku var haldinn borg- arafundur og var þar ákveðið að fá borgarana til samráðs um fram- haldið. x x x Víkverji átti þó ekki von á að nið-urstaða fengist svo fljótt í málið, en ályktaði strax að borgaryfirvöld hefðu lagt á undanhald og hefðu ákveðið að fjarlægja herlegheitin á Hofsvallagötunni. Hann beið ekki boðanna og hringdi í fréttastjóra á vakt á Morgunblaðinu. Ljósmyndari fór á vettvang og blaðamaður hringdi í borgaryfirvöld. Þar varð uppi fótur og fit vegna þess að engin ákvörðun hafði verið tekin um að fjarlægja málninguna af götunni. Kom í ljós að starfsmenn hverfa- stöðvar í Reykjavík þrifu máln- inguna af fyrir mistök. Þeir hefðu átt að hreinsa gróður af gangstéttum og götum, en misskilið verkefni sitt. x x x Víkverji játar að hann er ekki íklappliði stuðningsmanna fram- kvæmdanna á Hofsvallagötu og hon- um var brugðið þegar hann áttaði sig á að hefði hann sleppt frétta- skotinu hefðu hinir ötulu borg- arstarfsmenn ef til vill náð að fjar- lægja alla málninguna. Í þetta skiptið virðist blaðamaðurinn alla- vega ekki bara hafa verið áhorfandi, heldur beinlínis haft áhrif á atburða- rásina. víkverji@mbl.is Víkverji Eins og hirðir mun hann halda hjörð sinni til haga, taka unglömbin í faðm sér og bera þau í fangi sínu en leiða mæðurnar. (Jesaja 40:11) Smiðjuvegi 2 (við hliðina á Bónus) • Kópavogi • sími 544 2121 Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-16 • www.rumgott.is Rúmgott er eini aðilinn á Íslandi sem býður upp á legugreiningu. ÍS LE N SK GÆ I60 ÁR ÞÉR ER BOÐIÐ Í FRÍA LEGUGREININGU 20-50% afsl. af öllum heilsurúmum Aukablað alla þriðjudaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.