Morgunblaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.09.2013, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2013 Erlent Kristján Jónsson kjon@mbl.is Gert er ráð fyrir að á fundi G-20 ríkjahópsins í vikunni verði lagt hart að Vladímír Pútín Rússlandsforseta að samþykkja að leysa verði deilurn- ar í Sýrlandi með því að Bashar al- Assad forseti láti af völdum, að sögn Guardian. Rússar hafa árum saman séð Sýrlandsher fyrir vopnum. Bæði Bandaríkjamenn og Frakkar hafa nú birt skýrslur þar sem fullyrt er að her Assads hafi staðið fyrir efna- vopnaárásinni mannskæðu í úthverfi Damaskus fyrir skömmu. Átökin í Sýrlandi hafa kostað um 100 þúsund manns lífið. Fulltrú- ar UNHCR, Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna sögðu í gær að tvær milljónir Sýrlendinga hefðu nú flúið land vegna átakanna og eru Sýrlendingar nú fjölmennastir allra þjóða í röðum flóttafólks í heiminum. Áætlanir Vesturveldanna um loft- árásir hafa enn ýtt undir flótta- mannastrauminn síðustu daga. Minnst 700.000 Sýrlendingar hafa farið til grannlandsins Líbanons og er áætlað að liðlega 15% íbúa þar séu nú sýrlenskir, að sögn BBC. „Það liðu tvö ár áður en flótta- mennirnir fylltu milljón en það tók sex mánuði að bæta við annarri millj- ón,“ sagði Antonio Guterres, yfir- maður UNHCR. Um 97% flótta- fólksins fara til grannlanda, auk Líbanons eru það aðallega Tyrkland og Jórdanía og álagið á innviði þess- ara ríkja er orðið geysimikið. AFP Nei! Pakistanar mótmæltu í gær loftárásum á heri Assads. Þrýst á Pútín forseta  Rússar sjá her Assads fyrir vopnum af öllu tagi  Tvær milljónir Sýrlendinga hafa að sögn SÞ flúið land Kristján Jónsson kjon@mbl.is Þingkosningar verða í Ástralíu á laugardaginn og benda skoð- anakannanir til þess að Verka- mannaflokkur Kevins Rudds forsætisráðherra missi völdin. Ástralar hafa ár- um saman hagn- ast geysimikið á að selja Kínverj- um járnmálm og önnur hráefni til iðnaðar en nú hefur dregið úr hagvexti í Kína. Margir hafa því áhyggjur af efnahagnum og vilja skipta um mann við stýrið. Könnun á mánudag sýndi í fyrsta sinn meiri persónulegan stuðning við íhalds- manninn Tony Abbott, forsætisráð- herraefni hægriflokkanna, en Rudd. Öflugustu fjölmiðlar landsins, sem eru í eigu Ruperts Murdochs, studdu Rudd 2007 þegar flokkur hans náði meirihluta en styðja nú Abbott. Farsakennd valdabarátta í Verkamannaflokknum síðustu árin og hentistefna Rudds í ýmsum mál- um hefur dregið úr vinsældunum. Hann beitti sér ákaft fyrir bar- áttu gegn losun gróðurhúsloftteg- unda í andrúmsloftið en sneri síðan við blaðinu. Sömu sögu var að segja í innflytjendamálum, upprunalega mælti Rudd með afar mildri stefnu í þeim efnum en samdi nýlega við eyríkið Nauru um að eyjarskeggjar tækju við ólöglegum innflytjendum. Í gær sagðist Rudd síðan styðja hjónabönd samkynhneigðra, andstætt fyrri yfirlýsingum sínum. Flokki Rudds spáð ósigri  Ástralar óttast að góðærið sé á enda Rík þjóð » Efnahagur Ástralíu er með miklum blóma, erlendar skuldir ríkisins aðeins um 33% af landsframleiðslu. Halli á fjárlögum er einnig lítill. » Málefni ólöglegra innflytj- enda, einkum frá átakasvæð- um í Asíu, hafa valdið hörðum deilum. Kevin Rudd Króatar í borginni Vukovar rífa niður skilti með kíríl- isku letri er Serbar nota en skiltin voru sett upp á mánudag. Þau voru sett upp vegna fyrirmæla Evrópu- sambandsins um að opinber skilti skuli vera fjölþjóðleg á öllum svæðum þar sem meira en þriðjungur íbúanna tilheyri þjóðernisminnihluta. Serbneskir uppreisn- armenn í Króatíu felldu þúsundir manna og ollu miklu tjóni í Vukovar upp úr 1990. AFP Þjóðernisdeilur í Vukovar idex.is - sími 412 1700 framl.- sölu- og þjónustuaðili Schüco á Íslandi - merkt framleiðsla • Íslensk framleiðsla, framleitt af Idex álgluggum ehf. • Hágæða álprófílkerfi frá Schüco • Schüco tryggir lausnir og gæði • Þekking og þjónusta • Áralöng reynsla Fjölbreytilegt útlit hentar mismunandi tegundum bygginga ÁLGLUGGAR - þegar gæðin skipta máli www.schueco.is Betri heilsa borgar sig! Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is Jóga Farið verður rólega af stað en tímarnir geta verið mjög kröftugir. Hér reynum við á alla þætti líkamans, aukum liðleikann á allan hátt, hryggurinn verður liðugri, opnum öll liðamótin betur og betur og náum betri og meiri teygju og liðleika. Vekjum upp líkamsvitundina og uppskerum betri líkamsstöðu, aukinn styrkur og úthald og síðast en ekki síst öðlumst við betra jafnvægi til að takast á við daglegt amstur. Skráning í síma 560 1010 eða á mottaka@heilsuborg.is Byrjendanámskeið í Jóga Þriðjud. og fimmtud. kl. 12:00-13:00 Hefst 10. september Kennari Gyða Dís Verð kr. 13.900,-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.