Morgunblaðið - 04.09.2013, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2013
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Markmiðið er að halda í gömlu
myndina við Ingólfstorg. Þótt torg-
ið sé ekki gamalt sem slíkt hefur
það unnið sér ákveðinn sess,“ segir
Magnús Skúlason, formaður Húsa-
friðunarnefndar, sem samþykkti til-
lögur Minjastofnunar Íslands um
friðlýsingu eldri timburhúsa við
Ingólfstorg, auk salar gamla Sjálf-
stæðishússins þar sem skemmti-
staðurinn Nasa var áður til húsa.
Ef forsætisráðherra samþykkir
þessar tillögur um friðlýsingu
húsanna eru allar viðbyggingar við
þessi tilteknu hús háðar samþykki
bæði Minjastofnunar og Húsafrið-
unarnefndar. Áður en tillögurnar
verða bornar undir forsætisráð-
herra hafa eigendur húsanna sem
fyrirhugað er að friðlýsa andmæla-
rétt. Tillagan tekur til ytra borðs
húsanna. Ef þær verða samþykktar
hafa þær áhrif á deiliskipulag svæð-
isins.
Eldri byggð timburhúsanna sem
um ræðir er á lóðunum við Hafn-
arstræti 4 (Veltusund 1), Austur-
stræti 3, Austurstræti 4, Veltusund
3-3B, Vallarstræti 4 og Aðalstræti
7. Þessi hús eru þó öll aldursfriðuð
þar sem þau hafa náð 100 ára aldri.
Heillegasta þyrping timbur-
húsa í elsta hlutanum
Í rökstuðningi með tillögunum
segir m.a.: „Um er að ræða eina
heillegustu þyrpingu reisulegra
timburhúsa í elsta hluta Reykjavík-
ur […] Þá er göturými Vallarstræt-
is, milli Thorvaldsensstrætis og
Veltusunds, eina dæmið sem til er
um þrönga hliðargötu í Kvosinni.“
Þessi tillaga var samþykkt með
fjórum atkvæðum gegn einu. Sig-
urður Einarsson lagði fram bókun
þar sem segir meðal annars að
frekari friðlýsing sé óþörf, jafn-
framt gefi tillagan „tilefni til að ótt-
ast frekari íhlutun stofnunarinnar
[Minjastofnunnar Íslands] í útlit og
frágang nýbygginga en eðlilegt get-
ur talist fyrir þróun byggingarlist-
arinnar“.
Tillagan um friðlýsingu innviða
og rýmisskipunar í sal Sjálfstæð-
ishússins var samþykkt í Húsafrið-
unarnefnd með þremur atkvæðum
þeirra Magnúsar Skúlasonar,
Hönnu Rósu Sveinsdóttur og
Snorra Freys Hilmarssonar. Sig-
urður Einarsson og Sigríður Björk
Jónsdóttir greiddu atkvæði gegn
tillögunni og lögðu fram bókanir.
Friðun við Ingólfstorg
Minjastofnun vill friðlýsa eina heillegustu þyrpingu reisu-
legra timburhúsa í elsta borgarhlutanum Tekur til sjö húsa
Friðun húsa við Ingólfstorg
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Aðalstræti 7
Vallarstræti 4
Thorvalddsensstræti 2
Hafnarstræti 4
(Veltusund 1)
Austurstræti 3
Austurstræti 4
Veltusund 3-3B
Austurvöllur
Friðlýsing húsa
» Friðlýsa má hús og mann-
virki eða hluta þeirra, sem hafa
menningarsögulegt, vís-
indalegt eða listrænt gildi.
» Hún getur náð til nánasta
umhverfis hins friðlýsta húss
eða mannvirkis.
» Einnig má friðlýsa sam-
stæður húsa sem hafa sama
gildi og að framan greinir og
gilda þá reglur friðlýsingar um
hvert einstakt þeirra.
Morgunblaðið/Heiddi
Ingólfstorg „Um er að ræða eina heillegustu þyrpingu reisulegra timburhúsa í elsta hluta Reykjavíkur,“ stendur
m.a. í rökstuðningi með tillögunni sem var samþykkt í Húsafriðunarnefnd með fjórum atkvæðum gegn einu.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Mér líst almennt mjög vel á þessar
hugmyndir og við erum reiðubúin til
samstarfs um heilsuhótelið. Við
sjáum því ekkert til fyrirstöðu að að-
stoða menn við svona uppbyggingu.
Við höfum ekkert fjármagn til að
leggja í þetta en getum lagt til þekk-
ingu og sérhæft starfsfólk,“ segir
Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heil-
brigðisstofnunar Þingeyinga, um
áform félagsins Sjóbaða ehf. um
uppbyggingu sjóbaðsstaðar og
heilsuhótels við Húsavík. Eins og
fram kom í Morgunblaðinu eru við-
ræður fyrirhugaðar milli Norður-
þings og Sjóbaða um lóð undir starf-
semina.
Gert er ráð fyrir að heilsuhótel
rísi við sjóböðin, með allt að 70 til
100 herbergjum. Heitur sjór rennur
upp úr borholum á Höfðanum svo-
nefnda og talið að hann hafi mikinn
lækningamátt, m.a. fyrir fólk með
húðsjúkdóma.
Jón Helgi segir heilbrigðisstofn-
unina áður hafa komið að hug-
myndum um heilsuhótel í Mývatns-
sveit, en ekkert hefur orðið af því.
„En við erum jákvæð fyrir því að
okkar starfsfólk fái að koma að
svona uppbyggingu, við eigum enga
digra sjóði að leita í.“
Hann segir áform Sjóbaða vel
geta gengið eftir, rekstur sambæri-
legra staða hér á landi hafi gengið
vel. Vísar hann þar einkum til Bláa
lónsins og Jarðbaðanna við Mývatn.
Reiðubúin í sam-
starf um hótelið
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga
styður áform um sjóböð og heilsuhótel
Tölvumynd/Basalt arkitektar
Sjóböð Móttaka á sjóbaðsstaðnum gæti litið svona út, með útsýni yfir
Skjálfandaflóa. Heilbrigðisstofnunin er til í samstarf um heilsuhótelið.
Undirbúningur er hafinn að vinnu-
nefnd vísindamanna með það að
markmiði að kortleggja dreifingu
síldar á öllum lífsstigum í Norð-
austur-Atlantshafinu. Stefnt er að
formlegri stofnun vinnunefnd-
arinnar á næsta fundi í október.
Þetta er meðal þess sem ákveðið
var í tveggja daga strandríkjavið-
ræðum Íslands, Noregs, Rússlands,
Færeyja og Evrópusambandsins,
um norsk-íslenska síld í London.
Reglubundinn fundur strandríkj-
anna er samkvæmt venju haldinn í
október, en Ísland boðaði sérstak-
lega til þessa fundar vegna óska
frá Færeyjum og Evrópusamband-
inu vegna þeirrar stöðu sem uppi
er um skiptingu stofnsins.
Færeyingar hækkuðu einhliða
kvóta sinn, sem þeir hafa sam-
kvæmt samningi frá 2007, úr rúm-
um 5% í 17%, og í kjölfar þess hef-
ur Evrópusambandið beitt Fær-
eyjar viðskiptaþvingunum sem
íslensk stjórnvöld hafa mótmælt
harðlega.
Fyrir fundinn var búist við að
Færeyingar myndu leggja fram til-
lögur að nýrri skiptingu aflaheim-
ilda. Engar slíkar tillögur voru
lagðar fram og því ljóst að staðan í
deilunni er óbreytt, að því er segir
í frétt frá sjávarútvegsráðuneytinu.
Hópur vísindamanna
kortleggur dreifingu síldar
hvert er
þitt hlutverk?
- snjallar lausnir
Wise býður fjölbreyttar
viðskiptalausnir fyrir fólk
með mismunandi hlutverk.
Gold Enterprise Resource Planning
Silver Independent Software Vendor (ISV)
TM
Borgartún 26, Reykjavík » Hafnarstræti 102, Akureyri
sími: 545 3200 » wise@wise.is » www.wise.is