Morgunblaðið - 04.09.2013, Side 17
„Gatan mín hérna á Bíldudal er
Langahlíð. Þar bjó amma mín og
þangað var alltaf gott að koma,“
segir Björn Magnús Magnússon,
sjómaður á Bíldudal.
Samkvæmt götukorti af Bíldu-
dal eru þar níu götur og er
Langahlíð ofarlega í bænum.
Björn hefur verið búsettur á
Bíldudal mestan hluta ævi sinn-
ar. „Sjálfur bjó ég nokkuð lengi
við Lönguhlíð, reyndar held ég
að ég hafi búið við flestallar göt-
urnar í bænum, sem eru svo sem
ekki mjög margar.“
Hann sleit barnsskónum á
Tjarnarbraut, síðan bjó hann við
Lönguhlíð um skeið og þar næst í
gamla Kaupfélagshúsinu á Bíldu-
dal, en faðir Björns var kaup-
félagsstjóri í bænum og fylgdi
starfinu íbúð á efstu hæð hússins.
annalilja@mbl.is
Gatan mín Langahlíð
Morgunblaðið/Kristinn
Gatan hennar ömmu Björn Magnús ber hlýjan hug til Lönguhlíðar.
Hefur búið við
flestallar göturnar
Morgunblaðið/Kristinn
Uppáhaldsgatan Langahlíð er
ein af níu götum á Bíldudal.
Morgunblaðið/Kristinn
Evrópu. Guðmundur segir þessa
vinnslu á kalkþörungum ekki al-
genga, hann viti þó til þess að hún fari
fram á Bretagneskaga í Frakklandi.
Ýmis jákvæð áhrif
Spurður um áhrif stækkunar-
innar segir Guðmundur óvíst með
fjölgun starfsmanna en bendir á að
fyrirtækið hafi margskonar jákvæð
áhrif. Til dæmis komi erlend flutn-
ingaskip til hafnar í Bíldudal og greiði
þar hafnargjöld. Þá sé útsvarið greitt
í bænum og afleidd störf eru nokkur.
Í verksmiðjunni vinna 20 manns,
fyrst og fremst við framleiðsluna, en
einnig við gæðastjórnun og önnur
störf. Guðmundur segir að viss áskor-
un felist í því að vera með starfsemi af
þessu tagi á svo fámennum stað. „Það
getur verið bæði gott og slæmt. Það
góða er t.d. að á svona litlum stöðum
heldur fólk fastar í störfin sín og því
er lítil starfsmannavelta.“
nnum stað er áskorun
Hráefnið Þurrkaðir kalkþörungar.
Þeim er dælt upp af botni Arnar-
fjarðar, síðan eru þeir þurrkaðir og
loks malaðir og notaðir m.a. í dýra-
fóður.
Hann segir ýmsar sagnir af
skrímslum á þessum slóðum. Til
dæmis hafi skrímsli veiðst í vörpu
erlends togara í upphafi síðustu ald-
ar. Skera þurfti vörpuna frá til að
losa skrímslið sem spúði einhvers
konar sýru á skipverjana sem í
framhaldinu þurftu að leita sér
lækninga á Bíldudal.
Vilja fá skrímslamyndir
„Það hafa náðst myndir af
skrímslasporum og ef einhverjir
eiga myndir af skrímslum viljum við
endilega fá þær hingað til okkar.“
Að sögn Ingimars hafa öll fjög-
ur höfuðskrímsli Íslands aðsetur í
Arnarfirði; fjörulallinn, faxa-
skrímslið, skeljaskrímslið og haf-
maðurinn. Spurður um hvað geri
það að verkum að skrímslin hafi sest
þar að segir Ingimar að það sé eitt
af hlutverkum Skrímslasetursins að
komast að því. „Þetta rannsökum
við með skrímslaferðum okkar þar
sem við reynum að finna út af
hverju þau eru þarna en ekki ein-
hvers staðar annars staðar. Kannski
er það vegna þess að þau fá hér
meiri frið, að hér sé minni ágengni
en á mörgum öðrum stöðum. Og
kannski er það eitthvað í tengslum
við náttúruna.“
Ingimar segir að auk höfuð-
skrímslanna fjögurra sé eitthvað
um óþekkt skrímsli. „Það hafa kom-
ið upp sögur um hin ýmsu skrímsli
en enginn veit af hvaða toga þau
eru.“
Skrímslasetrið var stofnað árið
2006 og er opið frá byrjun maí og
fram í september.
Ljósmynd/Skrímslasetrið
Skrímslasetrið Þar má fræðast um
höfuðskrímslin fjögur í Arnarfirði.
Þingeyri er næsti viðkomu-
staður 100 daga hringferðar
Morgunblaðsins.
Á morgun
RÍKUR AF STEINEFNUM
Hvað er
kalkþör-
ungur?
Kalkþörungur (Lithothamnion)
vex hægt í kalkþörungabreið-
um. Á meðan hann er lifandi er
hann rauðbleikur á litinn, en
með tímanum situr eftir hvít
stoðgrind þörungsins sem er rík
af kalki og öðrum steinefnum.
Það eru þau efni sem sóst er
eftir.
Dæluskip Björgunar dæla
þörungunum upp úr Arnarfirði,
við Langanes og í Reykjafirði og
flytja til Bíldudals.
Ljósmynd/Íslenska kalkþörungafélagið
Skannaðu kóðann
til að skoða mynd-
skeið með frétt.
Verslunar-
staður frá
fornu fari
Bíldudalur er hluti sveitarfélagsins Vesturbyggðar og er utar-
lega við Bíldudalsvog, sem gengur inn úr Arnarfirði. Þar búa
170 manns. Fiskveiðar og -vinnsla hafa verið stór þáttur
í atvinnulífinu, einnig er bærinn gamall verslunarstaður
og hafa merkir athafnamenn sett mark sitt á staðinn,
m.a. Pétur J. Thorsteinsson, „faðir Bíldudals“.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 2013
Við erum stolt fyrirtæki
á Bíldudal
Veitingastofan
Vegamót