Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Blaðsíða 10
Í myndum
Unnum heimsmeistara með jafntefli
Nýkrýndir heimsmeistarar Frakka komu á Laugardalsvöllinn 1998 og ís-
lenska þjóðin trylltist þegar Ríkharður Daðason reis upp við vítateigs-
jaðarinn og skoraði framhjá Fabian Barthez sem stóð í marki Frakka.
„… er þjóðsöngvar landanna voru leiknir stóðu þeir í röð flissandi, urðu
sér og þjóð sinni til skammar. Íslensku leikmennirnir hafa eflaust hugsað:
Sá hlær best sem síðast hlær,“ skrifaði Sigmundur Ó. Steinarsson meðal
annars í umfjöllun um leikinn. Líkt og í Bern í síðustu viku fagnaði ís-
lenska þjóðin jafnteflinu - í raun voru heimsmeistararnir lagðir að velli.
Sigur á Rúmenum
Brjálæðið í Bern, fyrri hluti, fór fram 1986 þegar íslenska handbolta-
landsliðið vann frækinn sigur á fjórföldum heimsmeisturum Rúmena,
25:23. Varnartröllið Steinar Birgisson stal boltanum undir lokin, Einar
Þorvarðarson varði vítakast og Guðmundur Guðmundsson gulltryggði
sigurinn með marki sjö sekúndum fyrir leikslok. „Glæsilegasti sigur ís-
lensks handknattleiksliðs,“ sagði í umfjöllun Morgunblaðsins um leik-
inn. Fagn Guðmundar lifir enn í minningum landsmanna.
AFP
Hvaðan kom
hann, hvert er
hann að fara,
hvað er hann?
Adolf Ingi Erlingsson,
íþróttafréttamaður á
RÚV, sýndi fumlausa
frammistöðu þegar
hann lýsti leik Íslands
og Póllands á EM í
handbolta árið 2010.
Á ögurstundu var dæmd
leiktöf á íslenska liðið í
stöðunni 28-26 og
skammt eftir. Það pólska
brunaði fram í hraðaupp-
hlaup en Alexander Pet-
ersson sýndi einn eftir-
minnilegasta varnarleik sem
sést hefur. Henti sér á bolt-
ann eins og köttur og náði að
blaka hann úr höndum pólska
sóknarmannsins. „Hvaðan
kom hann, hvert er hann að
fara, hvað er hann?“ spurði
agndofa Adolf í útsendingunni.
Sátu Íslendingar sem stein-
runnir heima í stofu og tóku
undir hvert orð Adolfs.
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.9. 2013