Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Page 16
*Bók og mynddiskur Arndísar Höllu og Emils um Ísland njóta vinsælda í Þýskalandi »18Ferðalög og flakk
Mazar-e Sharif er stærsta borg Norður-Afganistans. Íbúafjöldinn
hér er óþekktur, enginn veit í raun hversu margir búa í borginni.
Þetta er stór iðnaðarborg, með þungri umferð og miklum ys og þys.
Hér eru sumrin heit og rykug en hitinn fer upp í 45 gráður þegar
mest er. Veturnir eru að sama skapi kaldir. Á vorin og haustin er
um mánuður þar sem hitinn helst um 20 gráður. Þá sýnir landið
sínar bestu hliðar, með grænum grundum og heiðskírt er til fjalla.
Á þessum tíma flykkjast íbúarnir upp í fjöllin í lautarferðir, þar sem
er tjaldað, teppi breidd út og lambakjöti (kebab) skellt á grillið. Líkt
og á Íslandi sjá karlmennirnir um að grilla. Fólkið nýtur þess að
vera úti í náttúrinni áður en hitabylgjan skellur á að nýju.
Kveðja, Sigrún Andrésdóttir Sigrún og samstarfskona hennar hjá þýsku Þróunarsamvinnustofnuninni
(www.giz.de), í lautarferð skrifstofunnar í afgönsku fjöllunum sl. vor.
Þjóðaríþrótt Norður-Afganistan,
Buzkashi, er ekki fyrir viðkvæma.
Grill í afgönskum fjöllum
Heimsins bestu melónur koma frá
svæðinu. Hér eru þær fluttar.
PÓSTKORT F
RÁ MAZAR-E
SHARIF
S
kánn hefur löngum laðað til sín fjölda Íslendinga. Ófáir hafa sótt til Lundar, Malmö
og Helsingjaborgar í gegnum tíðina, ýmist til náms, starfa eða annars, og sumir
ílenst.
Líkt og fyrrnefndar borgir er bærinn Ystad auðsóttur heim yfir sundið frá
Kaupmannahöfn, þótt hann liggi aðeins austar á þessum syðsta odda Svíþjóðar. Rétt ríf-
lega klukkustund tekur að komast þangað með lest frá Kastrup-flugvelli, hvort sem farið
er beint eða skipt í Malmö.
Þegar komið er til Ystad er fátt sem bendir til að þar sé að meðaltali framið
eitt morð viku- eða mánaðarlega, sé miðað við glæpatíðni svæðisins í sögum
Henning Mankells. Það er þó orðum aukið eins og gefur að skilja. Þessi fallegi
rólyndisbær býr yfir miklum sjarma, lítil torg er að finna hvarvetna, þar er líka
fornt munkaklaustur frá 13. öld, sem gaman er að skoða og fallegar götur með
gömlum litfögrum húsum, sem einkenna svæðið.
Til að bregðast við ört vaxandi eftirspurn eftir persónu Mankells á heimsvísu,
hófu ferðamálayfirvöld í Ystad fyrir nokkru að bjóða upp á ferðir um slóðir
Wallanders, sem mælst hafa vel fyrir. Í dag er einnig orðið hægt að nálgast
sérstakt smáforrit fyrir snjallsíma án endurgjalds (það ber einfaldlega heitið
„Wallander“), sem auðveldar fólki á eigin vegum að kynna sér slóðir rannsókn-
arlögreglumannsins. Að fræðast um sögusviðið er því hægur leikur nú til dags.
Meira en bara Wallander
Fleira er þó að sjá í Ystad og nálægum bæjarfélögum en bara slóðir glæpasagna. Svæðið
hefur löngum verið einn vinsælasti sumardvalarstaður Svía. Hvítar strendurnar laða fólk í
sumarhús og á tjaldsvæði ár hvert, enda umhverfið fagurt og veðursæld mikil. Gaman er
sem dæmi að aka um sveitirnar og koma við í bæjum á borð við Löderup, Skillinge, epla-
bænum Kivik og víðar. Í Kåseberga má finna Ale-steinanna kunnu en þeir eru nokkurs
konar „Stonehenge“ Svíþjóðar og verðskulda heimsókn. Skútubærinn Simrishamn, við á
austurströndina, býr yfir skemmtilegum miðbæjarkjarna út frá höfninni. Þaðan gengur
ferja, líkt og frá Ystad, reglulega til dönsku eyjarinnar Borgund-
arhólms. Á ferð um sveitirnar er oftar en ekki hægt að renna fram á
skemmtilegar skransölur eða „loppis“ og hugguleg kaffihús. Verðlauna-
kaffihúsið Olof Victors ber þar sérstaklega að nefna en það er skammt
frá miðaldakastalanum í Glemminge. Hafi fólk hins vegar hug á að láta
líða úr sér í heilsulind í huggulegu umhverfi er vert að minnast á Ystad
Saltsjöbad, en þar er einnig að finna fyrirtaks veitingastað.
Eitt er víst: það er ýmislegt fleira að finna í og við Ystad en einungis
það sem tengist Wallander.
SKÁNN SÓTTUR HEIM
Á slóðum
Wallanders
RANNSÓKNARLÖGREGLUMAÐURINN KURT WALLANDER ER Í MIKLUM
METUM HJÁ MÖRGUM. SÖGUSVIÐIÐ YSTAD ER NÆR EN MANN
GRUNAR OG GAMAN AÐ SÆKJA SVÆÐIÐ HEIM.
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is
Falleg torg, litrík hús og huggulegheit eru einkennandi fyrir Ystad.
Ale-steinarnir í Kåseberga minna um margt á Stonehenge.Úr verðlaunabakaríi Olof Victors, en þar er líka fínt kaffihús.
Þrjú andlit
Wallanders
f.v.: Krister
Henriksson,
Rolf Lass-
gård og
Kenneth
Branagh.
Götumynd frá Ystad. Fátt gefur til kynna jafn háa glæpatíðni og ætla mætti af sögum Mankells.