Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.9. 2013
Ferðalög og flakk
E
f til vill er það styrkleiki bók-
arinnar Fagurt er frelsið hversu
ólíkir höfundarnir eru. Arndís
Halla er lífleg manneskja vön
sviðsframkomu á meðan Emil Þór
er maðurinn á bak við myndavélina. Þau
flétta saman listrænni reynslu sinni í bók,
sem fylgir DVD diskur með myndasýningu
og tónlist. Einnig fylgir tólf laga tónlistar-
diskur með tónlist Arndísar Höllu. Hún kom
fyrst út árið 2010 í Þýskalandi og hefur notið
mikilla vinsælda þar í landi. Samvinnan varð
að vináttu sem hefur leitt þau á nýjar brautir
með Íslandskynningar og mögulega aðra bók.
Hugmyndin að bókinni
Í spjalli yfir rjúkandi tebolla segir Emil Þór
skemmtilega sögu sem varð upphafið að sam-
vinnu þeirra. ,,Eitt skiptið þegar ég vann í
tölvunni verkefni fyrir Kárahnjúka, hlustaði
ég á söng Arndísar Höllu. Ég hafði heyrt við-
tal við hana í útvarpinu og keypt diskinn í
kjölfarið. Einhvern veginn byrjuðu myndir að
streyma fyrir framan mig og ég hugsaði með
mér að þetta þyrfti ég að skoða betur. Það
tók mig smátíma að sannfærast um að ég
væri á réttri braut. Ég þekki pabba hennar,
hringdi í hann og hann útvegaði mér síma-
númerið hennar. Svo hringdi ég í Arndísi og
þannig byrjaði þetta.“
Þetta var árið 2008. Emil Þór sendi henni
,,prufu slideshow“ að hugmyndinni en Arndís
Halla var svolítið á báðum áttum fyrst. „Mér
fannst sniðugt að blanda saman myndum og
músík, þá verða hughrifin svo mikil, og hann
sagði mér hvernig tónlistin mín og myndirnar
hans hefðu allt í einu runnið saman. Og mér
fannst prufan virkilega flott,“ segir hún.
Upp frá þessu fóru þau að vinna að bókinni
eða þangað til gosið í Eyjafjallajökli hófst og
truflaði aðeins vinnuna. ,,Þrátt fyrir það
hjálpaði það okkur ábyggilega á bókamess-
unni í Frankfurt. Það var góð auglýsing fyrir
Ísland, mikið fjör og mikil læti og landið
komið rækilega á heimskortið,“ segir Emil
Þór.
Hann hefur gefið út vinsælar ljós-
myndabækur, Iceland Original, byrjaði að
mynda úr lofti árið 1983 og hefur stundað það
í 30 ár. Mikið af því af virkjunarbyggingum
og stíflugerðum. Meðfram þessu rak hann
Ljósmyndastofu Reykjavíkur. Emil Þór hefur
einnig unnið sem blaðaljósmyndari og sá al-
veg um að mynda Kárahnjúkasvæðið úr lofti
þegar framkvæmdir stóðu þar yfir.
Samvinnan
Vinnuferlið í kringum bókina tók tvö ár. Emil
Þór og Arndís Halla sátu mikið við tölvuna og
ræddu hlutina á milli sín í þaula og aldrei
kom neitt upp á. Emil Þór kann skýringu á
því: ,,Þegar Arndís Halla sagði: „Heyrðu Em-
il, við höfum þetta svona,“ þá sagði ég bara:
„Já.““ Eftir þessi ummæli hlæja þau innilega.
Markmiðið var að vekja sem mest hughrif
hjá lesendum og því eru ljóð sett inn á milli
myndanna. „Verkið er á tilfinningalegum nót-
um,“ segir Arndís Halla einbeitt á svip.
Hún lærði óperusöng í Listaháskólanum í
Berlín. Fyrstu árin eftir nám vann hún við
óperusöng í Berlín og víða um heim. Hún er
þekktust fyrir að vera díva hinnar heims-
þekktu sýningar Apassionata. Það er þýsk
fjölskyldusýning sem byggist upp á hestum
hvaðanæva að úr heiminum, ekki beint hesta-
sýning heldur leiksýning þar sem hestarnir
taka beinan þátt. Hún samdi líka tónlist og
texta fyrir sýninguna en hætti eftir að hafa
ferðast með henni í níu ár. Hana langaði til
að prófa eitthvað nýtt.
Aftast í bókinni má finna landakort með
nákvæmum leiðbeiningum um staðsetningu
myndanna og útskýringar. Það var sett aftast
til þess að myndirnar fengju að standa einar
og sér. Það var gert vísvitandi til að trufla
ekki heildarupplifunina, svo að fólk fengi
myndirnar beint í æð. Þau vildu hafa verkið
þannig að hver og einn gæti upplifað á sinn
hátt náttúruna og tónlistina.
Sjö þemu DVD-disksins
Eins og fyrr segir eru náttúrumyndir, tónlist
og ljóð í bókinni. Henni fylgir ekki aðeins
DVD diskur með myndasýningu og tónlist í
bland, heldur líka tónlistardiskur frá Arndísi
Höllu, á DVD. Disknum er skipt í sjö þemu.
„Þetta er eins og ferðalag – sjö mismunandi
sjónarhorn á landið,“ segir Arndís Halla.
Hver kafli er sjálfstæður og um þrjár mín-
útur að lengd og eru þemun: Landið, vatns-
heimar, hafið, gróandinn, ísheimar, fákar og
hulduheimar. Allir byrja þeir á sögumanni
sem les upp ljóð. Kaflinn „Landið“ byrjar á
ljóðinu Ísland sem styður það þema:, „Landið
er fagurt og frítt og fannhvítir jöklanna tind-
ar…“. Þannig leiðir sögumaðurinn viðkom-
andi inn í stemninguna og myndasýningin
hefst með tónlistinni. Arndís valdi að hafa
„vocalísur“ vegna þess að texti eða tal truflar
fókusinn á myndirnar og upplifunina. „Vocal-
ísur“ er tónlistarform þar sem röddin er not-
uð til að færa fram tónlistarverkið án orða.
Myndirnar voru valdar í samræmi við tón-
listina, til dæmis er meiri þungi í tónlistinni
sem spiluð er undir miklum vatnsföllum, en
þegar tónlistin er ljúf og lygn er frekar valin
mynd af fjallgarði sem speglast í vatni. Þegar
Emil Þór og Arndís Halla höfðu myndirnar
var þeim raðað þannig að upplifunin lyfti
þeim sem á horfði á æðra plan.
Bókamessan í Frankfurt
Arndís Halla og Emil Þór voru á stóra svið-
inu á Bókamessunni í Frankfurt á laug-
ardagsmorgni klukkan tíu þann 15. október
2011 en þá var sýningin opnuð almenningi.
Fagurt er
Ísland
ÍSLANDSBÓKIN, FAGURT ER FRELSIÐ, ER MENNINGARLEGT
VERK ÞAR SEM KYNNAST MÁ ÍSLENSKRI NÁTTÚRU, TÓNLIST OG
LJÓÐLIST. LAGT ER UPP MEÐ AÐ GEFA NÝJA SÝN Á ÍSLAND.
ARNDÍS HALLA ÁSGEIRSDÓTTIR ÓPERUSÖNGKONA OG EMIL ÞÓR
SIGURÐSSON NÁTTÚRULJÓSMYNDARI MÆTAST Í VERKINU
OG ARTHÚR BJÖRGVIN BOLLASON SÁ UM TEXTANN,
EN BÓKIN VAR GEFIN ÚT Í ÞÝSKALANDI.
María Lea Ævarsdóttir mae9@hi.is
Arndís Halla og Emil Þór hafa í sameiningu unnið að því að kynna Ísland fyrir Þjóðverjum.
Morgunblaðið/RAX
Torfajökull og svæðið í kring.
Flatey á Breiðafirði.
Hreindýrahjörð á Kringilsárrana, norðan Vatnajökuls.
Eyjafjallajökull í ham, mynd úr bókinni
tekin undir miðnætti í miðju gosi í
maí 2010.
ÍSLAND ÚR LOFTI
Í ferðabók Arndísar Höllu og Emils er að
finna fjölda ljósmynda sem teknar eru úr lofti.
Náttúran fær að njóta sín ekki síður en
mannlífið og dýralífið.