Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Blaðsíða 37
rúmlega 88 milljónir snjallsíma á öðrum fjórðungi
þessa árs, samanborið við um 32 milljónir í Banda-
ríkjunum.
Þrátt fyrir að hér sé um ódýrari útgáfu af iPhone
að ræða, mun hann samt sem áður kosta skilding-
inn. Síminn verður fáanlegur í Bandaríkjunum á 99
dollara með tveggja ára áskriftarsamningi við síma-
fyrirtæki. Án áskriftar mun síminn hins vegar kosta
549$, sem er einungis 100 dollurum minna en iP-
hone 5S. Það má því búast við að hér á landi verði
einungis um 30 þúsund króna verðmunur á þessum
símum, en reiknað er með að verðið hérlendis verði
svipað og fyrir núverandi síma.
Apple kynnti nýtt stýrikerfi, iOS7, fyrir nokkru,
en nú er ljóst að allir eigendur nýrri snjalltækja frá
Apple munu geta sótt það endurgjaldslaust frá og
með 18. september. Nýja stýrikerfið mun brydda
upp á þó nokkrum nýjungum, betri myndavéla-
stuðningi, og nýrri hönnun sem er talsvert frá-
brugðin iOS6 svo eitthvað sé nefnt.
Tim Cook hjá Apple kynnti tvo nýja snjallsíma í vikunni. Margir áttu von á því að Apple hefði fleira uppi í erminni.
Einhverjir vonuðust eftir nýjungum fyrir Apple TV eða uppfærslum á á fartölvum fyrirtækisins.
AFP
* „Með því að bjóða upp áódýrari útgáfu af iPhoneer Apple að leita leiða til að
sækja á nýja markaði og auka
hlutdeild sína til að reyna að
halda í við útbreiðslu Samsung
og annarra Android-síma.“
15.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Smáralind | Sími 512 1330
Laugavegi 182 | Sími 512 1300
Lækkuð verð
iPhone
iPhone 5
Verð frá: 109.990.-
iPhone 4/4S
Verð frá: 64.990.-
1.000 kr.
símnotkun á
mán. í 6 mán.
fylgir iPhone 4
hjá NOVA
1.000 kr.
símnotkun á
mán. í 12 mán.
fylgir iPhone 4S
hjá NOVA
Þrátt fyrir að Apple hafi kynnt til sögunnar tvær nýj-
ar gerðir af iPhone-snjallsímum, áttu margir von á
að fyrirtækið hefði eitthvað annað uppi í erminni.
Lengi hefur verið beðið eftir því að iPad-spjaldtölv-
urnar fengju yfirhalningu, en nær öruggt er talið að
stærri gerðin verði færð í heldur minni umgjörð, í
líkingu við þá sem iPad mini hefur og A7-örgjörvann
sem prýðir nýja símann. Þá er talið nær öruggt að
næsta útgáfa iPad mini muni skarta svokölluðum
Retina háupplausnarskjá. Eins eru margir sem bíða
þess enn að Apple kynni snjallúrið iWatch sem hef-
ur verið í þróun um skeið ef marka má orðróm.
Samsung kynnti slíkt úr til sögunnar ekki alls fyrir
löngu, en Apple er ekki þekkt fyrir að láta önnur
fyrirtæki skjóta sér ref fyrir rass þegar kemur að því
að kynna nýja tækni á markað.
Þá bólaði ekkert á nýjungum fyrir Apple TV, en
framleiðendur bíða spenntir eftir því að næsta upp-
færsla á því vinsæla tæki verði kynnt, en flestir telja
að tími sé til kominn að Apple opni fyrir mögu-
leikann fyrir þriðja aðila til að framleiða forrit fyrir
tólið. Eins voru engar fréttir af uppfærslum á hinum
vinsælu Macbook-vélum, hvorki Pro- eða Air-
línunni, en vitað er að uppfærslur á þeim vélum eru
handan við hornið. Sama má segja um borðtölv-
urnar öflugu, iMac, og nýja uppfærslu stýrikerfisins
OS X, en næsta útgáfa þess, Macerick, er langt á veg
komin.
Fyrir vikið þótti þessi vörukynning Apple frekar
fábreytileg. Hlutabréf í fyrirtækinu lækkuðu fyrstu
klukkustundirnar eftir kynninguna, sem er nokkuð
traust merki þess að markaðnum hafi þótt lítið til
koma.
Við nánari athugun er þó ljóst að nýjar uppfærslur
iPhone-símans eru talsverð breyting frá fyrri síma,
og allar líkur á að þessar nýju gerðir eigi eftir að
njóta vinsælda, enda breytingar núna meiri en síðast
þegar nýr sími var kynntur. Og eins og sjá má að of-
an, þá er þess varla langt að bíða að Apple blási aft-
ur til vörukynningar.
KYNNING APPLE ÞÓTTI FÁBREYTILEG
Hvað var ekki
kynnt?
Hlutabréf í Apple lækkuðu fyrstu klukkustundirnar eftir
kynningu á nýjum iPhone símum í vikunni.
AFP