Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Síða 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Síða 48
Í fleiri ár hefur geisað óöld í Austur- Kongó og margir hafa flúið heimili sín yfir landamærin til nágrannarík- isins Úganda. Í Kongó eru tugir uppreisnarhópa og er m.a. tekist á um yfirráð gullnáma og annarra nátt- úruauðlinda. Til að fjármagna átökin níðast þeir á fátækum íbúum svæðisins og ræna þá aleigunni. 65 þúsund manns á flótta Í sumar færðist snögglega aukin harka í átökin og fregnir bárust af því að upp- reisnarmenn hefðu farið ránshendi um þorpin í nágrenni bæjarins Kamango, nauðgað konum og drepið þá sem reyndu að verjast. Í kjölfar þessa jókst flótta- mannastraumurinn til mikilla muna. Á að- eins örfáum vikum flúðu yfir 65 þúsund manns til Úganda, aðallega konur og börn. Sumir hafa þurft að flýja í skyndi en aðrir hafa getað undirbúið ferðalagið betur, m.a. tekið með sér búsáhöld, föt og verkfæri og leigt sér farartæki til flutninganna. Fólkið er því misjafnlega á sig komið er það kem- ur í búðirnar handan landamæranna. Nokkrar flóttamannabúðir eru í Úganda. Móttökubúðirnar í Bundibugyo í Suðvestur- Úganda, sem Morgunblaðið heimsótti, eru þó stærstar. Fyrstu flóttamennirnir komu þangað í byrjun júlí og síðan þá hafa yfir 25 þúsund manns átt þar viðdvöl, því mið- ur flestir í fleiri vikur, því enn sem komið er gengur hægt að flytja fólkið til lands- svæðis sunnar í landinu sem því hefur ver- ið úthlutað. Það er þó forgangsverkefni því móttökubúðirnar hafa ekki alla þá þjónustu sem þarf, s.s. skóla fyrir börnin. Fleiri koma en fara Staðan er því sú að enn koma fleiri til búðanna í Bundibugyo en eru fluttir þaðan. Á hverjum degi bætast um 400-500 nýir flóttamenn við mannfjöldann sem fyrir er. Sífellt þarf því að reisa ný tjöld, fjölga kömrum og efla starfið í búðunum. Rauði krossinn hefur umsjón með skipulagi þeirra og þeim er nú skipt í átta svæði, hvert með sínu eldhúsi. Þar fær flóttafólkið þrjár máltíðir á dag. Nóg vatn er undir Rwen- sori-fjöllunum en helsti vandinn sem glímt er við nú er losun úrgangs, að sögn búða- stjórans, Simons Anyanzos. Dýrt er að flytja úrganginn og aka þarf með hann um langan veg. Þó að tugir kamra séu á svæð- inu er hreinlætisaðstaða alltaf forgangsmál og enn þarf að bæta við til að sinna öllum þeim 22 þúsund manns sem þar halda nú til. Nóg er af mat fyrir alla en World Food Program útvegar matinn og Rauði krossinn sér um að útdeila honum. Starfsmenn Rauða krossins segjast ekki óttast eins og er að maturinn gangi til þurrðar. En óviss- an er þó alltaf til staðar, því enginn veit hvenær og af hversu miklum þunga upp- reisnarmennirnir láta til skarar skríða að nýju. Þreytt, svöng og þyrst Er fólk kemur til búðanna er það oft þreytt, svangt og þyrst. Þannig var komið fyrir hópi fólks sem komið hafði í búðirnar nóttina áður en Morgunblaðið heimsótti þær. Konur og börn sátu í vegkantinum og biðu þess sem verða vildi. Mæður gáfu ungum börnum sínum brjóst og nudduðu fætur þeirra eldri. Hitinn var mikill og ferðalagið hafði tekið toll af mörgum. Það sást best á börnunum sem reyndu að sofa með höfuð á öxl mæðra sinna. Þau voru þögul og grandskoðuðu umhverfi sitt, um- hverfi búðanna sem verða athvarf þeirra næstu vikur og jafnvel mánuði. „Þegar þau koma eru þau hrædd og óör- ugg og vita ekkert hvað bíður þeirra,“ seg- ir Stephen Mawa Alatawa, aðstoð- arbúðastjóri Rauða krossins á svæðinu og horfir yfir hópinn sem komið hafði um nóttina. „En innan fárra daga eru þau orð- in öllum hnútum kunnug í búðunum.“ Saumað og spjallað á torginu Sumir hafa getað tekið saumavél eða verk- færi með sér og selja öðru flóttafólki þjón- ustu sína. Stemningin í kringum svæðið þar sem fólkið er að vinna minnir um margt á eitt af fjölmörgum markaðstorgum stórra sem smárra bæja í Úganda. Margir sitja og spjalla saman, segja sína sögu og spyrja nýja flóttamenn fregna að heiman. Aðrir tálga hugsi, reyna að selja nokkra ávexti eða grænmeti. Skammt frá heldur hópur kvenna til og þvær þvott af miklum móð. Meðal þeirra situr lítil stúlka og nuddar af ákveðni bletti úr fötum með vatni og sápu. Hún er frá Kongó, stödd í flóttamannabúðum í Úganda og gerir sér sjálfsagt ekki enn grein fyrir FLÓTTAMANNABÚÐIR Í BUNDIBUGYO Í SUÐVESTUR-ÚGANDA Börn með bólgna fætur ÞAU KOMA FÓTGANGANDI ÚT ÚR NÁTTMYRKRINU Í ÁTT AÐ FLÓTTAMANNABÚÐUNUM. SUM HAFA GENGIÐ DÖGUM SAMAN MEÐ LÍTIL BÖRN SÍN Á BAKINU OG BÚSÁHÖLD OG RÚMDÝNUR UNDIR HANDLEGGNUM EÐA Á HÖFÐINU. ELDRI BÖRNIN ÞURFA AÐ GANGA, JAFNVEL BERFÆTT. OG ÞEGAR ÞAU KOMA LOKS Á ÁFANGASTAÐ, EFTIR AÐ HAFA FLÚIÐ UNDAN OFBELDI OG RÁNUM Í HEIMALANDINU, ERU LITLIR FÆTUR ÞEIRRA BÓLGNIR EFTIR GÖNGUNA. Texti og myndir Sunna Ósk Logadóttir sunna@mbl.is Lítil stúlka að þvo fötin sín við þvottalaugarnar í búðunum. Börnin þurfa að hjálpa til. Sumir hafa náð ad flýja yfir landamærin með sauma- vélar og verkfæri til ad geta skapað sér atvinnu. Í búð- unum eru meðal annars saumuð föt og smíðaðir stól- ar og þeir seldir þeim sem eiga einhverja peninga. Úganda og Kongó ÚgandaAustur Kongó Viktoríu- vatn Bundibugyo- hérað Bundibugyo Kamango Kampala Rúanda Tansanía Suður-Súdan Kenía Strákar með diska sína eftir hádegismatinn i búðunum. Tjöld flótta- manna allt i kring. 48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.9. 2013

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.