Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2013, Blaðsíða 63
15.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 63
BUMBUNA BURT!K
YNN
ING
Þarmaflóran í venjulegri
manneskju inniheldur hundruð
mismunandi tegunda gerla og
baktería. Jafnvægi þessara
baktería getur raskast vegna
veikinda, inntöku sýklalyfja,
kaffidrykkju og margra
annarra orsaka í umhverfi
okkar. Próbíótísku gerlarnir,
þar með talið asidófílus,
losa okkur við slæmu
bakteríurnar og koma á
nauðsynlegu jafnvægi
í þörmunum. Nú hefur
komið í ljós að þessir
vinveittu gerlar geti líka
hjálpað til við að minnka
kviðfitu.
Undraverður árangur
Nýleg rannsókn (sjá:
www.consumerlab.com)
á japönskum karl-mönnum
sem allir voru of þungir
sýndi að með því að gefa
þeim stóra skammta af
próbíótískum gerlum í 12 vikur
minnkaði kviðfitan um 4.6%.
Viðmiðunarhópurinn sem
fékk lyfleysu sýndi hins
vegar engan árangur. Virkni
próbíótískra gerla felst m.a.
í því að þeir koma jafnvægi
á hormónabústapinn okkar.
Sérstaklega á hormónin leptin
og ghrelin sem senda skilaboð til
heilans um hvort við séum svöng
eða södd. Þegar þarmagerlarnir
eru í jafnvægi senda þeir “eðlileg”
skilaboð um hvort við séum
södd eða svöng en ef ójafnvæg-
is gætir á þessum hormónum
geta skilaboðin brenglast með
þeim afleiðingum að við finnum
fyrir hungurtilfinningu án þess
að vera í raun svöng og höfum
því tilhneigingu til að borða of
mikið. Með því að borða of mikið
eyðum við einnig of mikilli orku
í meltinguna sem verður til þess
að orkan
minnkar sem í framhaldi leiðir
til minnkaðrar hvatar til að
hreyfa sig. Minni hreyfing getur
svo stuðlað að því að við fitnum
meira.
Heilbrigð þarmaflóra minnkar
einnig upptöku kolvetna í
smáþörmunum, sem annars
breytast í kviðfitu, með því að
hreinlega éta þessi kolvetni.
Rannsóknir hafa að auki sýnt
að slæmar bakteríur, sem
fyrirfinnast í þörmum þar sem
ójafnvægi baktería og gerla ríkir,
framleiða eiturefnin lipopolysac-
cardies (LPS) sem geta
framkallað insulín-ónæmi eða
undanfara áunnar sykursýki
(sykursýki týpu 2).
Sýru- og gallþolnir gerlar
Mikilvægt er að gerlarnir sem
teknir eru séu sýru- og gallþolnir
því maginn inniheldur mikla sýru
og próbíótísku gerlarnir eiga
mjög erfitt með að lifa af í því
háa sýrustigi sem fyrirfinnst í
maganum. En ekki má gleyma
því að maginn á að vera súr.
Þörfin fyrir góðgerlana er í
smáþörmunum og því þurfa þeir
að lifa af ferðina í gegnum súran
magann. Dr. S.K. Dash, höfundur
Prógastró DDS+3 hefur þróað
tækni sem gerir alla hans gerla
sýruþolna. Prógastró DD+3 eru
því bæði gall- og sýruþolnir
ásamt því að vetra einn öflugasti
asídófílusinn á markaðnum í dag.
Hann inniheldur fjórar tegundir
af góðgerlum sem margfalda sig
í smáþörmunum og koma þeim í
frábært jafnvægi.
Prógastró DDS+3 þarf ekki
nauðsynlega að geyma í kæli
þ.a. á sumum sölustöðum finnst
hann í hillum en samt er ráðlagt
að geyma í kæli eftir opnun.
Hægt er að kaupa Prógastró
DDS+3 í öllum helstu apótekum,
Heilsuhúsinu, Lifandi Markaði,
Krónunni, Hagkaupum og
Fjarðarkaupum.
Nánari upplýsingar á
www.gengurvel.is.
Heimildir:
www.naturalnews.com
www.livescience.com
www.consumerlab.com
www.drhyman.com
Nýjar rannsóknir sýna fylgni milli inntöku próbíótískra gerla og minnkaðrar kviðfitu
Hljómar frá Keflavík léku óvænt á balli í
Keflavík hinn 5. október 1963 eftir að
hljómsveit úr Reykjavík hafði forfallast.
Með tímanum varð sveitin ein sú vinsæl-
asta á landinu og lög eins og Þú og ég,
Bláu augun þín, Ég elska alla, Fyrsti
kosinn og fleiri hafa orðið langlíf.
Sléttum fimmtíu árum eftir fyrsta ball-
ið verða stórtónleikar haldnir í Eldborg í
Hörpu þar sem sérstakir gestir verða
hinir upprunalegu Hljómar Engilbert Jen-
sen, Gunnar Þórðarson og Erlingur
Björnsson auk Júlíusar Freys Guðmunds-
sonar, en hann er sonur Rúnars Júl-
íussonar heitins.
Tónlistarstjóri er Eyþór Gunnarsson en
Stefán Hilmarsson, Valdimar Guðmunds-
son, Unnsteinn Manuel og Ágústa Eva
Erlendsdóttir taka þátt í að flytja hin
ódauðlegu lög Hljóma. Miðar á tónleikana
eru fáanlegir á Miði.is.
Pétur Östlund, Engilbert Jensen og Gunnar Þórðarson á tónleikum 1981. Engilbert og Gunnar
ásamt Erlingi Björnssyni koma fram í Hörpu en með þeim verður Júlíus Freyr Guðmundsson.
STJÖRNUM PRÝDDIR HLJÓMATÓNLEIKAR
Hálf öld af Hljómum
HINN 5. OKTÓBER VERÐUR
NÁKVÆMLEGA HÁLF ÖLD LIÐIN
FRÁ ÞVÍ AÐ HLJÓMAR SPILUÐU
Á SÍNU FYRSTA BALLI Í KROSSINUM
Í KEFLAVÍK. STÓRTÓNLEIKAR VERÐA
HALDNIR Í ELDBORGARSAL
HÖRPU TIL AÐ FAGNA
TÍMAMÓTUNUM.
Tónlistarfólkið Unnsteinn Manuel Stefánsson, Ágústa Eva Erlendsdóttir og Stefán Hilmarsson eru
meðal flytjenda á Hljómatónleikunum í Hörpu hinn 5. október næstkomandi.
Danski leikstjórinn Søren Kragh-Jacobsen er
einn af þeim sem mæta með sína nýjustu
mynd á Alþjóðlega kvikmyndahátíð, RIFF.
Myndin heitir Stund gaupunnar og er
sálfræðitryllir. Kragh-Jacobsen hefur verið
lengi að og ein af þekktari myndum sem hann
hefur leikstýrt er Gúmmí-Tarsan eftir sögu
Oles Lunds Kirkegaards árið 1981.
RIFF fer fram dagana 26. september til 6.
október næstkomandi og má nálgast dag-
skrána í heild og upplýsingar um einstaka
viðburði á vef hátíðarinnar, www.riff.is.
Kvikmyndin um Gúmmí-Tarsan naut mikilla vin-
sælda á níunda áratug síðustu aldar.
Leikstjóri
Gúmmí-
Tarsans til
landsins