Morgunblaðið - 07.10.2013, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.10.2013, Blaðsíða 2
SVIÐSLJÓS Árni Grétar Finnsson agf@mbl.is „Þegar við fáum útkallið erum við þarna rétt hjá sem betur fer. Þegar við komum á staðinn voru sjúkraflutningamennirnir búnir að koma henni út í bíl og voru tilbúnir að flytja hana inn á spítala. Ég sé strax að þessi stelpa er svo veik að hún mun ekki lifa af flutninginn á spítalann, og sú spá var rétt. Það hefði verið kannski 10-15 mín- útna flutningur. Hún hefði ekki lifað það af,“ segir Viðar Magnússon læknir, sem framkvæmdi ótrúlega skurðaðgerð á fimm ára stúlku sem hafði orðið fyrir skotárás í London árið 2011. Þá starfaði hann í sem læknir í slysateymi ásamt sérþjálfuðum bráðatæknum á vegum sjúkraþyrlunnar í London. Nú, tveimur árum síðar, flaug hann til Bretlandseyja til þess að hitta stúlkuna og fjölskyldu hennar sem þakkaði honum björgunina. Fékk byssukúlu í gegnum lungað Stúlkan, Thusha Kamaleswaran, varð fyrir byssuskoti í brjóstið þegar hún var stödd með föður sínum í verslun frænda þeirra í suðurhluta London, en í versluninni hófst skothríð á milli tveggja glæpagengja. „Hún varð fyrir kúlu sem fór í gegnum brjóstið á henni og inn í hægra lungað þar sem hún splundraðist inni í líkamanum. Kúlan fór út að aftan að hluta til en brot úr henni fóru líka inn í mænuna á stúlkunni,“ segir Viðar og bætir við: „Við tókum hana út úr bílnum og vorum að undirbúa að svæfa hana vegna þess að hvað hún átti erf- itt með öndun, þegar stúlkan fór skyndilega í hjartastopp. Það var út af þrýstingi sem hafði byggst upp í brjóstholi hennar. Ég gerði því litla aðgerð sem fólst í því að opna gat á milli rifja hjá henni og hleypa út lofti sem var þarna undir þrýstingi.“ Eftir þessa aðgerð hóf hjartað að slá á ný og Thusha andaði á nýjan leik. Fór aftur í hjartastopp á spítalanum Aðgerð Viðars dugði þar til bráðateymið kom stúlkunni á sjúkrahúsið. „Þar lenti hún áfram í hremmingum og fór aftur í hjarta- stopp. Þá þurfti hún að fara á skurðstofu þar sem brjóstkassinn var opnaður til þess að gera við skaðann sem hafði orðið,“ segir Viðar. Í dag er Thusha lömuð fyrir neðan mitti en þó eru vonir um að einn daginn geti hún gengið með stuðningi. Viðar segir það ótrú- legt miðað við skaðann sem hún hefur orðið fyrir. „Ef við hefðum ekki komið á staðinn og gert það sem við gerðum hefði þessi stúlka ekki lifað af. Hún er alveg skýr í koll- num í dag sem betur fer,“ segir Viðar, sem er sérmenntaður í svæfinga- og gjörgæslu- lækningum. Hann hefur unnið við bráða- lækningar utan sjúkrahúsa frá því fljótlega eftir útskrift sem læknir, bæði á vegum breska hersins og NATO í Bosníu, en hann hefur einnig starfað við bráðalækningar og svæfingar hér á landi. Hann segir starfið í Englandi hafa verið mjög reynsluríkt. „Starfið í Englandi var ótrúlegt að því leyti að svona atvikum gat maður búist við að þurfa að sinna dags daglega. Þessari reynslu býr maður að til æviloka,“ segir Viðar að lokum. Framkvæmdi ótrúlega skurðaðgerð úti á miðri götu  Viðar Magnússon hitti unga stúlku sem þakkar honum lífið Endurfundir Viðar er hér ásamt Thushu og bráðatækninum Caroline Appleby. Thusha var glöð að sjá Viðar og Caroline, en henni heilsast vel og er bjartsýn á að ganga á ný. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2013 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Réttað var í Víðidalstungurétt í Húnaþingi vestra um helgina, en réttin er ein stærsta stóðrétt landsins. Á hverju ári koma þangað um 6-700 hross úr Þorkelshólshreppi hinum forna, það er Víðidal og Fitjárdal, og hefur réttin töluvert aðdráttar- afl fyrir ferðamenn sem og heimamenn, en yfir hundrað manns fylgdust með réttunum. Í réttinni mátti sjá fjöldann allan af unghrossum og einnig fór fram uppboð á völdum hrossum. Þá var auk þess haldið happdrætti þar sem í fyrsta vinning var folald. Margt um manninn og hundruð hrossa í Víðidalstungurétt um helgina Morgunblaðið/Eggert Ein stærsta stóðrétt landsins er í Húnaþingi vestra Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Ég held að hagvöxtur á næsta ári verði mjög dræmur. Það er reyndar ákveðin hætta á því að það verði samdráttur. Leiðandi hagvísir Analytica bendir til þess að það sé að hægja á. Framhaldið veltur á því hvort og hvernig verð- ur brugðist við. Mér sýnist að hagvöxtur næstu tvö árin gæti orðið 1% plús eða mínus 0,5%,“ segir Yngvi Harðarson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Analytica, um hagvaxtarhorfur á næsta ári. Hann telur því að vöxturinn sé ofmetinn í forsendum nýja fjárlagafrumvarpsins en þar er því spáð að hagvöxtur verði 2,7% árið 2014, 2,8% árin 2015 og 2016 og 2,9% árið 2017. Vöxturinn verði minni en spáð er Ásgeir Jónsson, lektor í hagfræði við Há- skóla Íslands, segist aðspurður óttast að hag- vöxtur á næsta ári verði minni en fjárlögin gera ráð fyrir. „Það er þó erfitt að sjá fyrir sér samdrátt nema eitthvert áfall komi til. Þegar litið er til næstu ára virðist sem ferðaþjónusta og byggingariðnaður muni leiða vöxtinn enda mikil áform um byggingu hótela og skortur á húsnæði. Raunar hefur verið töluverð starfa- sköpun á þessu ári og efnahagslífið virðist stefna á fulla atvinnu en á lágum launum. Margt ungt fólk er nú að koma inn á vinnu- markaðinn og það hlýtur að skila sér í hag- vexti,“ segir Ásgeir sem telur að ef ekki hefði verið fyrir mikinn vöxt í ferðaþjónustu síðustu misseri væri hagkerfið aftur komið í kreppu. Hætta á samdrætti  Hagfræðingar meta hagvaxtarhorfurnar Ásgeir JónssonYngvi Harðarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.