Morgunblaðið - 07.10.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2013
löndin þegar kæmi að möguleikum
á því að vera án einkabíla. „Við
getum helst borið okkur saman
við Færeyjar. Við erum einfald-
lega of fá og veður of vont til að
hægt sé að lifa án bíls. Samgöngur
og veðurfar gera það eiginlega
ómögulegt.“
Hann sagði að langmest sala
FRÉTTASKÝRING
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
Borið hefur á því að erfitt er að
finna ódýra bíla á sölu. Björgvin
Harðarson, eigandi Bílasölu Ís-
lands, sagði þetta þekkt vandamál.
„Eyðslugrannir bílar í verð-
flokknum 300 til 600 þúsund og
jafnvel undir milljóninni seljast oft
samdægurs.“
Fargað í góðærinu
Hann sagði þetta meðal annars
stafa af því að í góðærinu var
mörgum bílum fargað sem vel
hefði verið hægt að halda á göt-
unum, því auðvelt var á þeim tíma
að fjármagna bílakaup. „Svo hefur
það mikið að segja að það var
gríðarmikill útflutningur á eldri
bílum úr landi fyrir svona tveim-
ur, þremur árum. Markaðurinn
var næstum hreinsaður.“
Hann bendir á að viðgerð á
ódýrum bíl sem bilar kunni að
vera svo dýr að ekki borgi sig að
gera við hann. „Tími á verkstæði
er náttúrlega ekki gefins í dag og
allir varahlutir hafa hækka. Þeir
sem hafa því ekki þekkingu til að
leita að varahlutum á partasölum
og slíkt sjá það fyrir sér að það
borgi sig ekki að gera við bílinn.“
Björgvin sagði óraunhæft að
bera Ísland saman við Norður-
væri í minni bílum um þessar
mundir. „Við seljum fyrir bíla-
leigurnar og það er langmesta
hreyfingin á þessum litlu bílum
og fín sala á bílum sem kosta í
kringum tvær milljónir, en þá
eru það orðnir frekar nýlegir
bílar.“
Björgvin sagði þessa milljón til
1.200 þúsund sem upp á vanti fyr-
ir fólk sem sé að kaupa sinn fyrsta
bíl geta skipt sköpum um gæði
bílsins, en erfitt geti verið að
safna slíkum fjárhæðum.
Stórir árgangar að eldast
Hann sagðist ekki eiga von á
að ástandið batnaði á næsta ári,
en útlit sé hins vegar fyrir að á
næstu árum bætist stórir ár-
gangar af bílum sem í dag teljast
nýlegir inn á markaðinn. „Það er
talsvert til af 2009, 2010 og 2011
bílum, minnst af 2009 samt. Með
hverju árinu lækka þessir bílar
hins vegar í verði, það er helst að
ástandið lagist með því.“
Bílar seljast á örfáum klukkutímum
Bílasali segir gríðarlega eftirspurn eftir mjög ódýrum bílum Bílar sem kosta á bilinu 300 til 500
þúsund seljast á klukkustundum Mörgum bílum fargað í góðærinu Litlir bílar seljast mest
Morgunblaðið/RAX
Gamlir og lúnir Margir vildu gjarnan geta komist í gegnum daginn án þess að stíga nokkurn tíma upp í bíl. Bílafloti
landsmanna er kominn nokkuð til ára sinna eins og sjá má af þessari mynd frá Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Eamonn Butler, framkvæmdastjóri
hugveitunnar Adam Smith Insti-
tute, segir það hafa verið siðferði-
lega rangt af breskum stjórnvöld-
um, í valdatíð
Verkamannaflokksins, að setja
hryðjuverkalög á Ísland, eina bestu
vinaþjóð Bretlands.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Butler að hryðjuverkalögunum,
sem sett voru eftir hryðjuverka-
árásirnar á Bandaríkin í sept-
embermánuði 2001, hafi aldrei ver-
ið ætlað að skaða orðspor og
efnahag vinaþjóða. Hins vegar hafi
Verkamannaflokkurinn misbeitt
valdi sínu.
Butler er staddur hér á landi en
hann mun flytja erindi á alþjóðlegri
ráðstefnu um bankahrunið í dag.
Rannsóknarsetur um nýsköpun og
hagvöxt stendur fyrir ráðstefnunni
í samstarfi við AECR, Evrópu-
samtök íhaldsmanna og umbóta-
sinna.
Butler, sem hefur lokið háskóla-
prófum í heimspeki, hagfræði og
sálfræði og doktorsprófi frá Há-
skólanum í St. Andrews í Skotlandi,
mun flytja erindi um orsakir hinnar
alþjóðlegu fjármálakreppu.
Of ódýrt lánsfé
Hann segir að þrátt fyrir að
margir kenni bankamönnum og
kapítalismanum um hrunið beri
stjórnmálamenn og seðlabanka-
yfirvöld mestu sökina. Hann segir
að stjórnvöld – sér í lagi í Banda-
ríkjunum og Bretlandi – hafi boðið
upp á alltof ódýrt lánsfé. Seðla-
bankar hafi aukið peningamagn í
umferð með verulegum hætti og að
það hafi leitt til lægri vaxta sem
gáfu fyrirtækjum til kynna að auka
framleiðslu. „Ef þú ert í spilavíti
þar sem stjórnvöld afhenda öllum
ókeypis spilapeninga, þá er ljóst að
fólk mun taka heimskulegar
ákvarðanir.“
Hann bendir meðal annars á
stýrivaxtastefnu Seðlabanka
Bandaríkjanna. „Eftir hryðjuverka-
árásirnar í Bandaríkjunum 11.
september lækkaði seðlabankinn
vexti úr 6,25% niður í 1%. Það þýddi
einfaldlega að lán urðu miklu mun
ódýrari. Fjölskyldur fóru að taka
lán fyrir húsnæðiskaupum og hús-
næðisverð snarhækkaði í kjölfarið.
Það hélt áfram að hækka og hækka
en það gat auðvitað ekki hækkað
endalaust.“
Butler er gagnrýninn á kenn-
ingar breska hagfræðingsins Johns
Maynards Keynes sem segja að
samdráttur eigi sér stað vegna þess
að eftirspurn eftir vörum og þjón-
ustu í hagkerfinu sé ekki nægileg,
og að stjórnvöld geti ráðið bót á því
með því að örva eftirspurnina. But-
ler segir aftur á móti að vandinn
stafi af afskiptum stjórnvalda af
vöxtum og peningamagni í umferð.
Þess vegna sé ekki ráðlagt að leysa
vandann með því að beita sömu að-
gerðum og komu okkur í vandann
upphaflega. „Timbraður maður á
ekki að drekka meira áfengi.“
Eins og áður sagði er Butler
framkvæmdastjóri Adam Smith-
stofnunarinnar í London en hann
segir stofnunina berjast fyrir
auknu frelsi á öllum sviðum. „Við
trúum á frjálsan markað og heil-
brigða samkeppni.“
Hann segir jafnframt mikilvægt
að stjórnvöld dragi úr reglum og
einfaldi regluverk fyrir bæði banka
og fjármálamarkaði. „Stjórnvöld
eiga einnig að kappkosta að draga
úr þeim kostnaði sem felst í því að
setja á stofn og starfrækja fyr-
irtæki.“ Bætir hann því við að Ís-
land ætti ekki að ganga í Evrópu-
sambandið, meðal annars vegna
þess aukna regluverks sem myndi
lenda með fullum þunga á Íslend-
ingum.
Morgunblaðið/Ómar
Afkastamikill Butler hefur skrifað fjölda bóka um meðal annars austurrísku hagfræðingana Hayek og Mises.
Siðferðilega rangt að setja
hryðjuverkalög á góða vinaþjóð
Eamonn Butler segir að ekki sé hægt að skella skuldinni á kapítalismann
Björgvin segir lítið koma inn
af bílum í góðu ástandi sem
séu verðlagðir í kringum hálfa
milljón. „Það er yfirleitt
klukkutímaspursmál hvað þeir
eru fljótir að seljast. „Ódýrir“
bílar seljast dýrt. Svona bílar
seljast á því sem okkur finnst
vera óraunhæft verð, en eft-
irspurnin er gríðarleg.“
Hann segir það mjög oft
spurningu um heppni þegar
fólk kaupir bíl fyrir 200 til
300 þúsund krónur og að
himinn og haf sé oft á milli í
gæðum á slíkum bílum og bíl-
um sem kosti 400 til 600
þúsund.
„Ódýrir“ bílar
seljast dýrt
NOTAÐIR BÍLAR
„Við höfum ekki komist að því. Það
er enn þá ráðgáta. Það var allt sett
á fullt um helgina og öll ferskvara
athuguð. Það fannst ekki neitt þar.
Það var svo sem ólíklegt enda þrífst
hann í hita þessi snákur,“ segir
Kristinn Skúlason, framkvæmda-
stjóri Krónunnar, um rannsóknina
á því hvernig kornsnákur komst í
verslun keðjunnar í Vallakór.
„Við skoðuðum alla ávaxta- og
grænmetisgáma hjá okkur og hjá
birgjum og það fannst ekki neitt
þar. Við eru farin að hallast að því
að snáknum hafi verið komið fyrir í
versluninni, að hann hafi jafnvel
dottið úr vasanum hjá einhverjum.
Við vitum það ekki. Við höfum
eiginlega enga skýringu á því hvað
olli þessu,“ segir Kristinn.
Ráðgáta Kornsnákurinn umtalaði.
Telja að snák hafi
verið komið fyrir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
sinnti ýmsum verkefnum aðfara-
nótt sunnudags. Þannig var tæp-
lega tvítugur piltur handtekinn við
Seðlabankann um þrjúleytið en
hann hafði úðað á veggi bankans
með úðabrúsa. Hann var áberandi
ölvaður að sögn lögreglu og fékk að
gista fangaklefa. Félagi piltsins
sem var með honum komst hins
vegar undan lögreglu.
Í Hafnarfirði var kona um þrí-
tugt handtekin á skemmtistað en
hún hafði kýlt dyravörð. Hún var
mjög æst að sögn lögreglu og var
vistuð í fangaklefa. Dyravörðurinn
var með áverka á vanga eftir högg
konunnar. Ekki er vitað hvað henni
gekk til.
Skemmdarverk á
Seðlabankanum og
dyravörður kýldur