Morgunblaðið - 07.10.2013, Page 8

Morgunblaðið - 07.10.2013, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. OKTÓBER 2013 Viðskiptablaðið greindi frá því aðþingflokkur Vinstri grænna beitti fyrir sig upplýsingalögum til að fá afrit af fjölda gagna frá hag- ræðingarhópi ríkisstjórnarinnar. VG vill fá afrit af öllum gögnum hagræðingarhópsins, fundar- gerðum, erindisbréfi, tölvupóstum til og frá hópnum ásamt lista yfir gesti og viðmælendur.    VG villenn- fremur fá að sjá tillög- urnar sem hópurinn hefur skilað til ráðherranefndar um ríkisfjár- mál.    Strax í sumar varð ljóst að stjórn-arandstaðan hygðist beita sér af fullri hörku gegn stjórnarmeiri- hlutanum og nú, þegar sárin hafa verið sleikt í sumar eftir erfiðar kosningar, eru hanskarnir teknir af.    Viðbúið var að stjórnarandstaðavinstriflokkanna yrði hörð þó að þeir kveinkuðu sér að ástæðu- lausu undan stjórnarandstöðunni á síðasta kjörtímabili. Þær kvartanir voru hluti af pólitískri taktík og sömu aðferðir til að halda niðri gagnrýni hafa sést hjá meirihluta vinstrimanna í Reykjavík og skila ótrúlega miklum árangri.    En vitaskuld er engin ástæða tilað kvarta undan harðri og gagnrýninni stjórnarandstöðu. Hlutverk hennar er öðru fremur að veita stjórnvöldum aðhald og gagn- rýna þau.    Af þeirri ástæðu getur ríkis-stjórnin fagnað þeirri hörku sem stjórnarandstaðan sýnir strax í upphafi kjörtímabils. Borgarstjórn- armeirihlutinn mætti einnig fagna lýðræðislegri umræðu af þessu tagi. Hörð andstaða STAKSTEINAR Veður víða um heim 6.10., kl. 18.00 Reykjavík 4 heiðskírt Bolungarvík 2 skýjað Akureyri 1 skýjað Nuuk 1 upplýsingar bárust ek Þórshöfn 11 þoka Ósló 12 heiðskírt Kaupmannahöfn 13 skýjað Stokkhólmur 12 heiðskírt Helsinki 12 heiðskírt Lúxemborg 13 léttskýjað Brussel 17 léttskýjað Dublin 18 skýjað Glasgow 16 léttskýjað London 18 léttskýjað París 17 alskýjað Amsterdam 16 heiðskírt Hamborg 15 skýjað Berlín 15 skýjað Vín 10 þoka Moskva 8 heiðskírt Algarve 23 heiðskírt Madríd 23 heiðskírt Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 20 skúrir Róm 22 léttskýjað Aþena 15 skýjað Winnipeg 7 skýjað Montreal 12 skýjað New York 20 alskýjað Chicago 13 léttskýjað Orlando 30 léttskýjað lýsingar bárust ekki Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. október Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:56 18:37 ÍSAFJÖRÐUR 8:04 18:38 SIGLUFJÖRÐUR 7:47 18:20 DJÚPIVOGUR 7:26 18:05 Alþjóðleg ráðstefna um bankahrunið og smáríkin í Evrópu í stofu N-132 í Öskju, náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, mánudaginn 7. október 2013 kl. 17–19 Dr. Eamonn Butler, forstöðumaður Adam Smith-stofnunarinnar í Lundúnum: Causes of the Financial Crisis Dr. Pythagoras Petratos, kennari í fjármálafræði í Said School of Business í Oxford: Cyprus — the other island Prófessor Hannes H. Gissurarson, Háskóla Íslands: Causes of the Icelandic Bank Collapse Dr. Ásgeir Jónsson, hagfræðilektor í Háskóla Íslands: What Happened after the Icelandic Bank Collapse? Umsegjandi: Dr. Stefanía Óskarsdóttir, lektor í stjórnmálafræði Fundarstjóri: Ásta Möller, forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála Ókeypis aðgangur Allir velkomnir, meðan húsrúm leyfir Að kvöldi sama dags verður Frelsiskvöldverður RNH, þar sem Davíð Oddsson ritstjóri verður ræðumaður og rifjar upp bankahrunið, og er uppselt í hann. Nánari upplýsingar: www.rnh.is Þegar rykið er sest: BANKAHRUNIÐ AÐ FIMM ÁRUM LIÐNUM Dýpri skilningur, ný sjónarhorn Lausamöl er talin orsök tveggja bíl- veltna sem urðu annars vegar við Vagnsstaði í Suðursveit og hins vegar á Öxi. Fyrrnefnda slysið átti sér stað á sjötta tímanum í gær og urðu engin slys á fólki. Tilkynnt var um hið síðarnefnda á fimmta tím- anum. Að sögn lögreglunnar á Fá- skrúðsfirði var nýbúið að hefla leið- ina yfir Öxi og var vegurinn því laus í sér. Ekki urðu alvarleg slys á fólki í því slysi heldur. Þriðji bíllinn valt á veginum á milli Hellissands og Rifs snemma í gærmorgun. Ökumaðurinn bar að dýr hefði hlaupið fyrir bílinn og hann þá misst stjórn á honum. Hann fór sjálfur á heilsugæslustöð í Ólafsvík en var ekki illa slasaður. Bílveltur vegna lausamalar og dýrs sem hljóp fyrir bíl Heimili og skóli og SAFT í sam- starfi við Vímulausa æsku – For- eldrahús eru að hefja fræðslu- fundaherferð sem hefst í dag og stendur til 11. október. Yfirskrift ferðarinnar er „Foreldrar og for- varnir“. Boðið verður upp á fjöl- breytt fræðsluerindi fyrir foreldra um gildi og ávinning farsæls for- eldrasamstarfs, SAFT-fræðslu um netöryggi, auk þess sem foreldrar fá ráð sem styrkt geta sjálfstraust og ábyrgð þeirra í vímuefna- forvörnum. Fundirnir verða í Ný- heimum á Höfn í Hornafirði í kvöld, í Grunnskóla Reyðarfjarðar annað kvöld, í Tjarnarborg á Ólafsfirði á miðvikudag og Fjölbrautaskóla Snæfellinga á fimmtudaginn. Fund- irnir hefjast allir kl. 20. Fræðsluherferð um forvarnir hefst í dag Leggja þarf áherslu á að hækka laun og persónu- afslátt við endurnýjun kjarasamninga til að auka kaupmátt sem kemur öllum launamönnum til góða. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á þingi Alþýðusambands Norðurlands sem lauk á laugardag. Þar er lýst þungum áhyggjum af stöðu efnahags-, kjara- og atvinnumála í landinu. Þingið hvatti aðila vinnumarkaðarins til þess að hraða vinnu við endurnýjun samninga en vegna mikillar óvissu í efnahagsmálum telur það óráð- legt að semja til lengri tíma en til hálfs eða eins árs. Jafnframt þurfi þó að hefja vinnu við lengri samninga sem taki við af skammtímasamningi. Krafa þingsins bæði í skemmri og lengri samn- ingum er hækkun lægstu launa. Þá sé nauðsynlegt að horfa til útflutningsgreina og ferðaþjónustu um sérstaka leiðréttingu. Þingið ályktaði einnig um húsnæðismál þar sem það segir að ríki ófremdarástand. Eitt stærsta kjaramálið væri að allir hefðu aðgang að húsnæði á viðráðanlegu verði. Einn stærsti útgjaldaliður heimilanna sé húsnæðiskostnaður og miklu skipti fyrir lífskjör landsmanna að hann lækki. Í ályktuninni segir að samstarf þurfi að vera á milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins um húsnæðis- og leigukerfi á félagslegum grunni. Hækka lægstu laun og persónuafslátt

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.