Morgunblaðið - 30.10.2013, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Vertu vinur okkar
á Facebook
Sparitoppar og -pils
í úrvali
St. 36-52
Smiðjuvegi 34 |Rauð gata | www.bilko.is | Sími 557-9110
HarðskeljadekkTIRES
Mundueftir að finnaBESTAVERÐIÐáður en þú kaupirdekk!
TÍSKU
MARKAÐUR
POP-UP
OPNUNARTÍMI:
MÁN.-FÖS: 13-18 - LAU.12-16
Verð:
1.900 - 9.900
MÖRKINNI 6 -108 REYKJAVÍK
Enn meiri verðlækkun!
MC PLANET
VÖRUMERKIÐ HÆTTIR!
Rafhitarar
í skip, hús og sumarhús
Ryðfríir
neysluvatnshitarar
með 12 ára ábyrgð
Hitöld (element), hitastillar,
hitastýringar og flest annað
til rafhitunar
Við erum sérfræðingar í öllu sem
Kaplahrauni 7a • Hafnarfirði
Sími: 565 3265 • Fax: 565 3260
rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is
viðkemur rafhitun.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Vertu vinur á
SKOÐIÐ HAUSTVÖRUR Á LAXDAL.IS
GARDEUR / ULLARBUXUR – SVARTAR, BRÚNAR, GRÁAR
GARDEUR / GALLABUXNATILBOÐ
BLÁAR - SVARTAR - GRÁAR
NÝ SENDING / GERRY WEBER
SVARTAR GALLABUXUR MÖRG SNIÐ
PERFECT FIT / ÞÚ MINNKAR UM EITT NÚMER
NÝ PEYSUSENDING
RÚLLUKRAGAPEYSUR - JAKKAPEYSUR - O.FL.
Hátíðardagskrá var í Sí-
vertsenhúsi, sem er hluti
af Byggðasafni Hafnar-
fjarðar, síðastliðinn laug-
ardag í tilefni af því að í
ár eru liðin 250 ár frá
fæðingu Bjarna Sívert-
sen, sem nefndur hefur
verið faðir Hafnarfjarðar.
Sýningin í Sívertsenhús-
inu hefur verið end-
urbætt og uppfærð í til-
efni af afmælinu og
verður hún opin um helg-
ar í vetur.
Á afmælishátíðinni var
fjallað um Bjarna og
Rannveigu Filippus-
dóttur, konu hans og voru margir
afkomendur Bjarna viðstaddir.
Þeirra á meðal var Kirsten Lagoni,
sem kom alla leið frá Melbourne í
Ástralíu og fjallaði um skyldleika
sinn við hina fyrrverandi húsráð-
endur í Sívertsenhúsi. Arndís Árna-
dóttir fjallaði um húsgögn í Sívert-
senhúsi í upphafi 19. aldar og þeirra
á meðal skatthol sem safnið fékk að
gjöf fyrir um ári. Það hafði gengið í
erfðir innan ættarinnar allt frá láti
Bjarna riddara.
Nýverið fundust um 100 ára
gamlar myndir og barnaskór undir
gólffjölum þegar verið var að skipta
um raflagnir á milli hæða í húsinu.
Myndirnar eru taldar hafa verið í
eigu fólks sem þá bjó í húsinu og
sýna meðal annars fólk og fram-
kvæmdir við byggingu hafskipa-
bryggjunnar í Hafnarfirði, en hún
var vígð 1913. Myndirnar þykja hin-
ar merkilegustu og verða líklega á
ljósmyndasýningu á vegum
Byggðasafnsins næsta sumar.
Mikill athafnamaður
Á heimasíðu Hafnarfjarðar kem-
ur fram að Sívertsens-húsið er elsta
hús Hafnarfjarðar, byggt á árunum
1803-05. Bjarni var mikill athafna-
maður í Hafnarfirði á árunum 1794-
1830 og rak þá útgerð, verslun og
skipasmíðastöð í bænum. Bjarni var
einn af fyrstu Íslendingunum til að
fá verslunarleyfi hér á landi eftir
daga einokunarverslunarinnar.
Húsið hefur verið gert upp í upp-
runalega mynd og er þar sýnt
hvernig yfirstéttarfjölskylda í
Hafnarfirði bjó í byrjun 19. aldar.
Auk þess sem varpað er ljósi á
merkilega sögu Bjarna Sívertsens
og fjölskyldu hans, segir á heima-
síðu Hafnarfjarðar. aij@mbl.is
Ljósmynd/Byggðasafn Hafnarfjarðar
Í Sívertsenhúsi Bjarni Sívertsen við skattholið, sem komið er aftur í þetta
elsta hús Hafnarfjarðar. Bjarni rak þar útgerð, verslun og skipasmíðastöð.
Endurbætt sýning
í Sívertsenhúsi
Gamlar myndir undir gólffjölum
Húsmóðirin Rannveig Filippusdóttir við borð-
stofuborðið eins og það var fyrir um 200 árum.
Litlar skemmdir urðu á Lundey NS
eftir að skipið tók niðri þar sem það
var að síldveiðum á Hofsstaðavogi í
Breiðafirði laust fyrir hádegi síð-
astliðinn sunnudag. Samkvæmt
upplýsingum HB Granda skemmd-
ust tvö botnstykki fyrir asdik og
smádæld kom á svokallaðan kassa-
kjöl.
Skipið losnaði eftir að sjó var
dælt úr kjölfestutönkum og er það
nú á Akranesi þar sem beðið er eft-
ir varahlutum.
Að sögn Karls Sigurjónssonar,
skipaeftirlitsmanns HB Granda á
Akranesi, eru aðstæður á Hofs-
staðavogi mjög erfiðar fyrir skip
með stórar nætur. Skipin hafa verið
að veiðum í djúpum ál á milli lands
og Purkeyjar, skammt utan við
Kóngsbakka, en sitthvorumegin við
dýpið grynnkar hratt. Skipverjar á
Lundey voru að undirbúa fyrsta
kast veiðiferðarinnar þegar óhapp-
ið varð og segir Karl það vera lán í
óláni að nótin hafi ekki verið komin
í sjó þegar skipið tók niðri.
Karl reiknar með því að Lundey
komist til veiða að nýju um næstu
helgi, að því er fram kemur á
heimasíðu HB Granda.
Lundey NS tók niðri en litlar skemmdir urðu á skipinu
Ljósmynd/Af vefsíðu HB Granda.
Núpur III fækkaði fé
Á forsíðuborða blaðsins í gær stóð
að félagsbú hefði þurft að fækka fé
vegna eldgossins. Hið rétta er að
Núpur III þurfti að gera slíkt. Beð-
ist er velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTTING
mbl.is