Morgunblaðið - 30.10.2013, Page 19
Þykkvibær er byggðahverfi við Hólsá, sunnan við Safamýri í
Rangárþingi ytra, á milli Þjórsár og Hólsár.
Fyrsti skóli til sveita á Suðurlandi var stofnaður í Þykkvabæ, en
það var 1892. Þykkvibær er nú aðallega þekktur fyrir kartö-
flurækt, en í mörg ár var þaðan nokkurt útræði og var sjósókn
helsti atvinnuvegurinn. Nú búa um 80manns í Þykkvabæ.
Elsta sveita-
þorp landsins
og hefur verið í
byggð frá 1220
Ljósmynd/MatsWibe Lund
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. OKTÓBER 2013
Morgunblaðið/Golli
Þykkvibær Bærinn er ekki fjölmennur, en um 80 manns búa í Þykkvabæ. Þar hefur verið byggð í mörg hundruð ár.
unina frá upphafi. „Það var rosalega
mikið lagt í tónlistina og textann, sem
var hvort tveggja frumsamið eins og
oft var gert á þessum árum. Það var
líka mikið vesen að gera eyrun á Rú-
rik. Ég var ekki viðstödd þegar það
var gert. Það er enginn stórvandi en
ég efast um að þetta hafi verið gert í
tölvu.“
Ólafur Pétursson og Jón Ásgeir
Hreinsson skrifuðu handritið að aug-
lýsingunni, en Jón Ásgeir kom einnig
að gerð leikmyndarinnar, Ágúst
Baldursson leikstýrði henni og Karl
Óskarsson var tökumaður, en við-
mælendur Morgunblaðsins voru á
einu máli um að Ágúst og Karl hefðu
gjörbylt auglýsingagerð á Íslandi. Þá
sá Gunnar Gunnarsson um að breyta
eyrunum á Rúrik, sem kostaði á þeim
tíma mikla vinnu og tíma.
Mikilvægt að gefa tækifæri
Kristín sagði að hún hefði gefið
þeim Ólafi og Jóni Ásgeiri, sem unnu
hjá AUK, ásamt Höddu, nokkuð laus-
an tauminn við gerð auglýsingar-
innar. „Ég skoraði á mannskapinn að
láta það sjást hvers þau væru megn-
ug og þau stóðu sig með prýði. Það er
mikilvægt að ráða rétt fólk í vinnu –
sjá það út og gefa því tækifæri – og
treysta því.“
Kartöflur Þykkvibær er eflaust þekktastur fyrir Þykkvabæjarkartöflur … og
álfa. Þeir voru hins vegar ekki að störfum daginn sem þessi mynd var tekin.
Morgunblaðið/Golli
Landnámshæna Júlíus segir stofninn sérstakan og líkari villtum fuglum en ræktuðu hænurnar.
Dagrún Jónsdóttir, mótor-
hjólabóndi á Oddsparti í Þykkva-
bæ flutti til Þykkvabæjar fyrir
átta árum. Hún er í óða önn að
gera upp hús þar og hyggst opna
mótorhjólasafn Þykkvabæjar.
„Húsið hefur verið notað sem
ballsalur, en þar ætlum við að
hafa sýningarsalinn. Það var
fullt af hljómsveitum sem spiluðu
hérna í sumar.“
Dagrún vill ekkert gefa upp
um hvenær safnið verður opnað
og segir mörg verkefni vera eft-
ir. Bak við húsið sem mun hýsa
safnið er stórt tún með hlöðnum
veggjum utan um eldstæði.
„Hérna er tjaldsvæði sem við
rekum fyrir mótorhjólafólk og
tökum eingöngu á móti hópum.“
Meðeigandi Dagrúnar að
svæðinu er Einar „Marlboro“.
Þau hafa nú þegar sankað að
sér rúmlega 30 hjólum og er það
elsta frá 1931.
gunnardofri@mbl.is
Dagrún ætlar að opna mótorhjólasafn
Morgunblaðið/Golli
Mótorhjól Dagrún Jónsdóttir, mótorhjólabóndi á Oddsparti.
Elsta mótorhjólið
er Harley frá 1931
Morgunblaðið/Golli
Harley Mótorhjól af ýmsum
gerðum verða í safni Dagrúnar.
„Kartöflurnar eru svona tvo tíma í gegn-
um vinnsluferlið frá því þær koma inn í
verksmiðjuna,“ sagði Markús Ársælsson,
kartöflubóndi í Hákoti í Þykkvabæ.
„Það veltur samt að einhverju leyti á
hvort þær fara gegnum frönsku línuna
eða í forsoðnu, en það munar samt ekki
svo miklum tíma.“ Hann sagði Þykkvabæ
eiga íslenskum neytendum allt að launa,
því án þeirra væri fyrirtækið ekki til.
Tveggja tíma vinnsluferli
ÞYKKVABÆJARKARTÖFLUR
Álfasögur? Markús Ársælsson, kart-
öflubóndi í Hákoti í Þykkvabæ.
Skannaðu kóðann
til að skoða álfana
á mbl.is.
Næst verður komið við á
Flúðum á 100 daga hringferð
Morgunblaðsins.
Á morgun