Morgunblaðið - 21.11.2013, Blaðsíða 16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2013
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
Í gamalli hlöðu bak við bæjarhús
Minni-Voga leynist hlaða, sem gegnt
hefur hlutverki óopinbers menning-
arhúss í Vogum. Marta Guðrún Jó-
hannesdóttir, bókmenntafræðingur
og kennari, er eigandi og umsjón-
armaður Hlöðunnar. Marta fæddist í
Garðinum á Reykjanesi, en flutti
ung þaðan til Reykjavíkur og þvæld-
ist aðeins um heiminn. Síðan flutti
hún í Voga ásamt manni sínum,
Bjarna Þórissyni.
„Þetta hófst með því að við fest-
um kaup á húsinu Minni-Vogum árið
2007. Þetta var bara sveitabær – hér
var heyjað og túnin í kring tilheyrðu
bænum,“ segir Marta. „Okkur lang-
aði að vera aðeins fyrir utan borgina.
Ég hafði ekki oft dvalið hérna í Vog-
unum og ég er ekki einu sinni viss
um að Bjarni hafi komið hingað áður
en hann lagði til að við skoðuðum að
kaupa hús hérna. Við fundum þetta
fyrir algjöra tilviljun.“ Þau áttuðu
sig fljótlega á því að húsið hefði
ákveðna merkingu í huga fólksins á
svæðinu.
Vildu opna húsið fyrir fólkinu
„Þeir sem eru ættaðir héðan
hafa verið í samskiptum við fólkið á
bænum eða eiga jafnvel rætur að
rekja hingað, til dæmis margir sem
búa hérna í kring. Við fórum því að
hugsa hvort við gætum ekki gert
eitthvað til að opna húsið og leyfa
fólkinu að njóta þess að vera hérna.“
Marta segir húsið skera sig
nokkuð úr byggðinni, þó svo það sé
núna komið inn í mitt íbúðarhverfi.
„Hér var hlaða og fjós og fjós-
haugur, sem minnir á fortíð stað-
arins, en hlaðan þjónar núna allt
öðrum tilgangi.“ Hugmynd þeirra
var að leyfa listamönnum að njóta
þess að nýta rýmið eins og þeim
hentaði.
„Hingað hafa komið hópar inn-
lendra og erlendra listamanna með
það fyrir augum að vera ekki bara í
listsköpun heldur líka í samskiptum
við fólkið í bænum.“ Meðal þeirra
listamanna sem hafa notað aðstöð-
una í Hlöðunni og Minni-Vogum til
að taka upp tónlist má nefna ungu
krúttsveitina Pascal Pinon. „Þær
tóku upp fyrstu breiðskífu sína
mestmegnis í íbúðarhúsinu. Í fram-
haldi af því kom franskur vídeó-
listamaður, Vincent Moon, með The
Take Away Show og gerði hálfgert
tónlistarmyndband með þeim.“
Myndbandið má sjá á mbl.is
með því að skanna qr-kóða með
fréttinni, en meðal þess sem þar sést
er kirkjan við Kálfatjörn, þar sem
Minjafélagið er í óðaönn að gera upp
110 ára gamalt skólahús, eins og
kemur fram í umfjöllun hér að neð-
an.
Endurskapa rýmið hvert sinn
Marta segir sveitarfélagið Voga
hafa greitt götu Hlöðunnar eins og
best verður á kosið.
Menningarhús í
bakgarði Minni-Voga
Sýningarsalur, tónlistarhús og stúdíó í Hlöðunni í Vogum
Morgunblaðið/Kristinn
Hlaðan Hlaðan er hluti af bænum Minni-Vogum. Hún hefur nú gengið í endurnýjun lífdaga sem menningarhús.
Minnsti píanósportbar landsins
„Allar treyjur, fánar og treflar hérna eru frá heimamönnum,“ segir Kristinn
Björgvinsson, Æðstistrumpur Strumpsins, sem hann segir sjálfur að sé
minnsti píanósportbar landsins. Hann bendir á að treyjan sem Peter Schmeic-
hel lék í, og hangir á barnum, sé ekki merkilegasta treyjan í húsinu.
„Nei, það er Þróttaratreyja sem er árituð af íslenska landsliðinu. Hún var
keypt á uppboði á uppskeruhátíð meistaraflokks Þróttar í knattspyrnu.“
Strumpurinn er sannarlega lítill, með leyfi fyrir 25 manns. „Það eru dálitlar
sveiflur á hverjir koma hingað. Í fyrra voru Manchester United-menn í miklum
meirihluta, en nú eru stuðningsmenn Liverpool duglegri að mæta,“ segir Krist-
inn. gunnardofri@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Landsliðstreyja Kristinn segir Þróttaratreyjuna dýrmætustu treyjuna á
barnum. Íslenska landsliðið áritaði hana alla, en hún verður römmuð inn.
Tótuflatkökur hafa verið bakaðar í gamla vigtarskúrnum við höfnina í Vogum
frá árinu 2011.
Mæðgurnar Tóta og Brynja Kristmannsdóttir hafa á hinn bóginn bakað, eða
steikt, flatkökur í aldarfjórðung. Þær baka aðallega fyrir fyrirtæki, þeirra á
meðal N1 í Vogum, 10-11 á Keflavíkurflugvelli, Menu veitingar og Kjötborg í
Vesturbænum í Reykjavík. Bökunarrýmið er ekki stórt, á að giska 10 fermetrar.
Tóta, sem fullu nafni heitir Þóranna Þórarinsdóttir, segir að þau geti flatt út
og steikt allt að 1.500 flatkökur á dag. Til stóð að rífa skúrinn sem þau nýta í
dag, en þess í stað gekk hann í endurnýjun lífdaga. gunnardofri@mbl.is
Flatkökur í vigtarskúrnum
Morgunblaðið/Kristinn
Flatkökur Brynja og Tóta í bakgrunni. Þær steikja 1.500 kökur í skúrnum á dag.
Gunnar Dofri Ólafsson
gunnardofri@mbl.is
Minjafélagið í Vogum eignaðist nýlega 110 ára gamalt
hús. Það nefnist Norðurkot og er fyrsta skólahúsið sem
reist var í sveitarfélaginu. Félagið hefur undanfarið
unnið að því að gera húsið upp.
Húsið stóð áður nokkuð frá þeim stað sem það er
núna á, en Minjafélagið flutti húsið, sem var í mjög
slæmu ástandi, í heilu lagi að gamalli steinhlöðu sem fé-
lagið á við Kálfatjarnarkirkju. Húsið er lítið, aðeins 25
fermetrar að stærð, á tveimur hæðum auk kjallara.
Endurgera
110 ára gam-
alt skólahús
Minjafélagið í Vogum
stendur í stórræðum
Morgunblaðið/Kristinn
Inn og út um gluggann Skólahúsið séð frá hlöðunni.
Bæði húsið og hlaðan hafa fengið væna yfirhalningu.
REYKJANES
DAGA
HRINGFERÐ
VOGAR
Með kveðju
Sveitarfélagið Vogar
vinalegur bær