Morgunblaðið - 21.11.2013, Síða 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. NÓVEMBER 2013
Tuttugu og fjórar gullstangir, sem
metnar eru á yfir 1,1 milljón dala,
jafnvirði 134 milljóna króna, fund-
ust í vikunni inni á salerni ind-
verskrar farþegaflugvélar frá fé-
laginu Jet Airways.
Stangirnar voru í tveimur tösk-
um. Þær fundust þegar verið var að
hreinsa flugvélina á flugvellinum í
Kalkútta á Indlandi en þangað kom
hún frá Bangkok í Taílandi. Enginn
hefur verið handtekinn vegna máls-
ins.
Mikil eftirspurn er eftir gulli á
Indlandi og er mikill innflutningur
á gulli ein helsta ástæða viðvarandi
viðskiptahalla í landinu. Margir
Indverjar safna gulli í þeirri trú að
það muni tryggja þeim fjárhagslegt
öryggi.
Fram kemur á vef breska ríkis-
útvarpsins, BBC, að indversk
stjórnvöld hafi ítrekað hækkað
tolla á gulli til að reyna að draga úr
þessum innflutningi, síðast úr 10% í
15%.
Gullstangir
í flugvélar-
salerni
Verðmætið yfir
130 milljónir króna
AFP
Gullstangir Mikil eftirspurn er eftir
gulli á Indlandi
Áætlað er, að 1,61 milljarður manna,
eða einn af hverjum fimm jarðarbú-
um, muni fara inn á samfélagsmiðla
á netinu að minnsta kosti einu sinni í
mánuði á þessu ári.
Bandaríska netrannsóknarfyrir-
tækið eMarketer birti þessar tölur í
vikunni. Fyrirtækið segir, að not-
endum samfélagsmiðla hafi fjölgað
um 14,2% á þessu ári og muni halda
áfram að fjölga á næstu árum. Þann-
ig megi gera ráð fyrir að rúmlega 2,3
milljarðar manna noti samfélags-
miðla á árinu 2017.
Að sögn eMarkter eru Hollend-
ingar mestu samfélagsmiðlanotend-
ur heims en 63,5% þjóðarinnar skoða
slíka miðla að minnsta kosti mánað-
arlega. Næst koma Norðmenn, hlut-
fallið er 65,3%, Svíar, 56,4%, Suður-
Kóreumenn, 54,4% og Danir, 53,3%.
Ísland er ekki að finna í töflu, sem
fyrirtækið birtir á vef sínum en hún
byggist á gögnum frá rannsóknar-
stofnunum, opinberum stofnunum,
fjölmiðlum og fyrirtækjum.
Talan, 1,61 milljarður manna,
samsvarar 22% af jarðarbúum.
Hraðasti vöxtur samfélagsmiðla-
notkunar á þessu ári er á Indlandi og
mælist nú 37,4% en samt nota aðeins
um 7,7% indversku þjóðarinnar sam-
félagsmiðla reglulega. Samfélags-
miðlanotkun vex einnig hratt í
Indónesíu og Mexíkó.
Langflestir nota Facebook eða um
1 milljarður manna um allan heim.
Fjölmennasti hópur Facebook--
notenda er í Bandaríkjunum, 146,8
milljónir manna, en búist er við að
Indverjar hreppi þann sess árið
2016. gummi@mbl.is
1,6 milljarðar nota samfélagsmiðla
AFP
Stærstur Merki Facebook í nýju gagnaveri fyrirtækisins í Lulå í Svíþjóð.
Facebook stærsti samfélagsmiðillinn á netinu Notkun eykst hraðast á Indlandi
Malala Yousafzai, 16 ára pakistönsk
stúlka, tók í gær við Sakharov-
mannréttindaverðlaununum sem við-
urkenningu fyrir baráttu hennar fyr-
ir rétti allra barna til að mennta sig.
Martin Schulz, forseti Evrópu-
þingsins, afhenti Malala verðlaunin í
þinghúsinu í Strassborg. Schulz
sagði að Malala væri einstök ung
kona sem hefði veitt milljónum
manna nýja von.
Malala er 25. einstaklingurinn,
sem hlýtur Sakharov-verðlaunin og
var 21 fyrrverandi verðlaunahafi við-
staddur athöfnina í gær. Meðal
þeirra, sem hlotið hafa verðlaunin,
eru Nelson Mandela, fyrrverandi
forseti Suður-Afríku, og Kofi Annan,
fyrrverandi framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna.
Malala sagðist taka við verðlaun-
unum í Guðs nafni en tala í nafni
þeirra 57 milljóna barna í heiminum,
sem njóta ekki menntunar.
„Börn langar ekki í iPhone eða
Xbox eða súkkulaði,“ sagði Malala.
„Þau langar aðeins í bók og
penna.“
Hún bætti við að ríkisstjórnir
yrðu að draga úr útgjöldum til her-
mála og fjárfesta þess í stað í
menntun ungmenna.
Talibanar í Pakistan reyndu á
síðasta ári að ráða Malala af dögum
fyrir að berjast fyrir menntun
stúlkna í landinu. Hún fékk skot í
höfuðið og var flutt á sjúkrahús í
Bretlandi þar sem hún gekkst und-
ir nokkrar aðgerðir.
Samband einkaskóla í Pakistan
bannaði fyrir skömmu bók sem
Malala skrifaði og sagði að í henni
væri deilt á Pakistan og íslamstrú.
Malala tók við Sakharov-verðlaununum
Börn langar ekki í snjallsíma og
leikjatölvur heldur bók og penna
AFP
Verðlaunahafi Martin Schulz af-
hendir Malala Yousafzai verðlaunin.